Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Blaðsíða 24
Vikublað 19.–21. janúar 201610 Íslenskt sjávarfang - Kynningarblað Litla fiskbúðin með besta verðið L itla fiskbúðin er einna helst þekktust fyrir að vera langódýr- ust og með gæða fisk. Að sögn Jóns Garðars Sigurvinssonar, annars eigenda Litlu fiskbúðar- innar, ákváðu hann og meðeigandi hans, Gylfi Norðdal, að stofna versl- unina árið 2008 vegna mikillar eftir- spurnar á ódýrum fiski á íslenskum markaði. „Í dag eru verslanirnar orðn- ar þrjár í heildina hjá okkur en við opn- uðum þriðju verslunina fyrir jól við hliðina á Bónus í Helluhrauni í Hafnar- firði,“ segir Jón. „Samkvæmt könnun- um erum við alltaf langódýrastir,“ bætir hann við en samkvæmt verð- lagskönnun Alþýðusambands Íslands er lægsta verðið á ferskum fiski oftast í Litlu fiskbúðinni. Könnunin náði til 23 verslana vítt og breitt um landið. Í um- ræddri könnun var kannað verð á 25 algengum tegundum af fiskmeti og var munur á hæsta og lægsta verði oftast 25 til 75 prósent. Ferskur og góður fiskur „Við sérhæfum okkur fyrst og fremst í góðum og ferskum fiski,“ segir Jón. „Við erum einnig með ýmiss konar fiskrétti sem viðskiptavinir geta keypt. Auk þess tökum við sérpantanir frá veitingastöðum svo dæmi séu dæmi nefnd,“ segir Jón. Hráefnið er sótt á markað á hverjum morgni og leitast eigendur verslunarinnar við að vera með allt hráefni sem allra ferskast. Litla fiskbúðin er opin sem hér segir; í Helluhrauni í Hafnarfirði er opið alla virka daga frá kl. 11.00 til 18.30. Í Miðvangi í Hafnarfirði er opið á mánu- dögum og þriðjudögum frá kl. 09.00 til 18.30. Miðvikudaga til föstudaga frá kl. 10.00 til 18.00. Á Háaleitisbraut er opið alla virka daga frá kl. 10.00 til 18.00. n Myndir Sigtryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.