Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Blaðsíða 36
24 Fólk Vikublað 19.–21. janúar 2016 n Rick og Kathy Hilton eru að verða afi og amma í fyrsta skiptið n Ástfangin Paris H ilton-fjölskyldan er að stækka. Nicky Hilton, litla systir Paris, á von á sínu fyrsta barni með eigin- manni sínum, banka- erfingjanum James Rothschild. Paris brúðarmær Hjónakornin létu pússa sig saman í fyrrasumar í fallegri athöfn sem fram fór í Kensington-kastalanum á Englandi en kastalinn er nú heimili Vilhjálms Bretaprins, Kate hertogaynju og barna þeirra. Nicky, sem er 32 ára, klæddist síðerma silkikjól frá Valentino í athöfninni. Paris systir hennar var að sjálfsögðu brúðarmær og klæddist fal- lega bláum, síðum, ermalausum kjól. Dásamlegt hjónalíf Stuttu eftir brúðkaupið mætti Nicky í viðtal við sjónvarpsstöðina E! þar sem hún dásamaði hjónalífið. „Ég mæli með þessu. Ef manni tekst að finna rétta einstaklinginn þá er þetta dásamlegt,“ sagði Nicky í viðtalinu og bætti aðspurð við að hún vildi eignast börn í framtíðinni. „Það væri frábært en alls ekki strax,“ sagði hótelerfinginn en núna, sex mánuðum seinna, er annað hljóð komið í strokkinn. Barnið, sem er að vænta í sumar, mun verða fyrsta barna- barn Hilton-hjónanna, Kathy og Ricks Hilton, sem samkvæmt tals- manni fjölskyldunnar eru í skýjun- um með komandi erfingja. Hittust í brúðkaupi Nicky og James kynntust í brúðkaupi Petru Ecclestone, dóttur Formúlu 1-milljarðamæringsins Bernies Ecclestone, og auðkýfingsins James Stunts árið 2011. James Rothschild kemur úr einni þekktustu og auð- ugustu fjölskyldu Evrópu og því ljóst að Nicky þarf ekki að hafa áhyggjur af því að hann hafi kvænst henni til fjár. Partíljón- ið Paris fékk að sjálf- sögðu að skipuleggja gæsun systur sinnar þar sem vel völdum vinkonum og frænkum var boðið í helgarferð til Miami. Paris gerði sér lítið fyrir og pantaði eins fatnað á allan hópinn auk kór- ónu handa Nicky og hélt svo stuðinu uppi með eigin tónlist sem hún hef- ur unnið að upp á síðkastið. Ástfangin Paris Tónlistin er þó ekki það eina sem á huga og hjarta Paris þessa dagana því samkvæmt slúðurmiðlunum vestanhafs er hún yfir sig ástfangin. Sá heppni heitir Thomas Gross og er 39 ára athafnamaður og milljarða- mæringur frá Austurríki. Gross býr í Sviss og samkvæmt fréttum ætlar Paris að flytja til Sviss til að vera nær ástinni sinni. Það er ekki tíðinda- laust hjá Hilton-fjölskyldunni. n Fjölgun í Hilton- FjölsKyldunni Plötsnúður Paris hefur verið upptekin af tón- listarferli sínum upp á síðkastið. Gift Nicky og James Rothschild héldu glæsilega athöfn í Kensington-kastalanum. Fann ástina í Evrópu Kærasti Paris er austur- rískur viðskiptajöfur sem býr í Sviss. Systur Nicky er yngri systir Paris. Hilton-fjölskyldan Barron Nicholas, Paris, Nicky, Kathy og Rick. Láttu þér ekki vera kalt Sími 555 3100 www.donna.is hitarar og ofanar Olíufylltir ofnar 7 og 9 þilja 1500W og 2000 W Keramik hitarar með hringdreifingu á hita Hitablásarar í úrvali Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.