Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Blaðsíða 28
16 Lífsstíll Vikublað 19.–21. janúar 2016 Hugmyndir að hægeldun n Það er hægt að matreiða mjög fjölbreytta rétti í hægeldunarpotti n Einfalt og þægilegt H ægeldunarpottar eða „slow cooker“ njóta mikilla vin- sælda um þessar mundir. Um er að ræða potta þar sem maturinn er eldaður á lág- um hita í nokkrar klukkustundir. Fólk setur jafnvel hráefni í pottana áður en það fer að vinna á morgnana og þá er maturinn tilbúinn þegar heimilisfólk kemur heim á kvöldin. Sumir virð- ast þó ekki alveg vita hvað er best að matreiða í slíkum pottum og festast í að gera einhvers konar pottrétti. Raunin er hins vegar sú að það er hægt að útbúa ótrúlegustu rétti með hægeldun. Það er meira að segja hægt að gera súkkulað- iköku í hægeldunarpotti. Þétt og seig „brownie“ Galdurinn við að töfra fram guð- dómlega „brownie“-súkkulaði- köku í hægeldunarpotti er að klæða hann með ál- pappír að innan og setja bökunarpappír í botn- inn. Þetta er gert til að endarnir á kökunni brenni ekki og svo auð- velt sé að ná henni úr pottinum. Best er að nota hefðbundið „brownie“-deig sem inniheldur smjör, svo kakan verði sem mýkst í miðjunni. Dásamleg pönnupítsa Það geta auðvitað allir búið til pítsu en þá er ekki þar með sagt að allir geti búið til góða pítsu. Það getur nefni- lega þurft smá æfingu til að ná henni alveg eins og þú vilt hafa hana. Pítsa getur auðveldlega farið úr því að vera hálf hrá í ofninum í að brenna aðeins við. En ef notaður er hægeldunar- pottur þá verður þetta ekki vanda- mál. Kosturinn við að gera pönnu- pítsu í hægeldunarpotti er líka sá að það þarf ekki jafn mikla olíu og ef hún væri matreidd á pönnu. Auð- velt er að finna uppskrift að hentugu pítsudeigi fyrir hægeldunarpott með leitarvélinni Google. Lasanja frá grunni Það er mun auðveldara en þig gæti grunað að gera lasanja frá grunni í hægeldunarpotti. Það er auðvitað hægt að nota hvaða uppskrift sem er en prófaðu þig endilega áfram með uppskriftir sem eru sérstaklega fyrir hægeldun. Ítalskar kjötbollur Það getur verið subbulegt að steikja kjötbollur á pönnu. Olían slettist um allt og bæði eldavél og veggir verða skítugir. Lausnin á þessu vandamáli er hægeldunarpottur. Þú þarft aðeins að brúna kjötbollurnar á pönnu og skella þeim í pottinn. Margfalt minni subbuskapur og þú getur gert eitthvað annað á meðan bollurnar steikjast. Grjónagrautur Öllum finnst grjónagrautur góður. Þér mun án efa finnast hann enn betri þegar þú kemst upp á lagið með að útbúa hann í hægeldunarpotti. Vafalaust einn einfaldasti rétturinn sem hægt er að bera á borð. n Ítalskar kjötbollur Skelltu þeim í hægeldunarpott. Er skipulagið í lagi...? Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki Brettarekkar Gey mslu - og dekk jahi llur Mikil burðargeta Einfalt í uppsetningu KÍKTU VIÐ Á WWW.ISOLD.IS OPIÐ 08:00 - 17:00 Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík Sími 53 53 600 - Fax 567 3609

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.