Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Blaðsíða 21
Vikublað 19.–21. janúar 2016 Kynningarblað - Íslenskt sjávarfang 7 Hollur og bragðgóður matur tilbúinn á fimm mínútum G rímur kokkur ehf. er fjöl­ skyldufyrirtæki í fremstu röð í framleiðslu á tilbúnum sjávar réttum. Markmið fyrir­ tækisins er að framleiða að­ eins fyrsta flokks vörur, úr fyrsta flokks hráefni, sem eru hollar, bragðgóðar og fljótlegar í framleiðslu. Grímur Þór Gíslason á fyrirtækið með eiginkonu sinni, Ástu Maríu Ástvaldsdóttur, og bræðrum sínum, Sigmari og Gísla Matthíasi. Framsækið fyrirtæki á matvælamarkaði „Markmið okkar er að vera framsæk­ ið fyrirtæki á matvælamarkaði, láta hlutina gerast og ná árangri, til hags­ bóta fyrir fyrirtækið, starfsfólkið og allra helst fyrir viðskiptavini okkar,“ segir Grímur. „Þar sem við höfum að­ gang að ferskasta fiski í heimi, höfum við lagt megináherslu á tilbúna fisk­ rétti úr úrvals hráefni. Einnig erum við að framleiða nokkrar tegundir af grænmetisbuffum sem hafa verið mjög vinsæl,“ bætir hann við. Sendir ferskar vörur frá sér tvisvar á dag Fyrirtækið er staðsett í Vestmanna­ eyjum og sendir frá sér ferskar vörur tvisvar á dag til Reykjavíkur. „Við erum með yfir 30 vörutegundir og seljum út um allt land í langflestar verslan­ ir landsins, bæði í verslunarkeðjur og búðir í eigu einstaklinga,“ segir Grím­ ur. Að sögn Gríms selja þau einnig til mötuneyta. „Bæði stór og smá mötu­ neyti geta pantað og fengið gæða­ vörur senda á staðinn,“ segir Grímur. Evrópuverkefni: gerum réttina enn hollari með viðbættu omega 3 „Við erum dugleg í vöruþróun og leggjum mikla áherslu á nýjungar,“ segir Grímur. „Sem dæmi má nefna Evrópuverkefnið okkar sem snýst um viðbætt omega 3 í fiskréttina sem og grænmetisréttina okkar. Með þessu gerum við réttina enn hollari. Núna í mars munu tveir nýir réttir líta dags­ ins ljós með þessu viðbætta omega 3 og munu verða framleiddir und­ ir merkjum Heilsurétta fjölskyldunn­ ar sem við erum með,“ segir Grímur. „Heilsuréttir fjölskyldunnar eru réttir án glúteins, laktósa, gers, eggja og allra óþolsvaldandi efna,“ bætir hann við. Staðsett í Vestmannaeyjum „Við erum með alla framleiðsluna í Vestmannaeyjum og hjá okkur starfa tuttugu manns sem er flott viðbót í atvinnuflóruna í Vestmannaeyjum,“ segir Grímur. „Gaman er að nefna að við vorum nýlega að flytja í nýtt hús­ næði og það gengur allt svo ljómandi vel,“ bætir hann við. n Efla þarf íslenska fiskmarkaði F iskmarkaður Íslands hf. (FMIS) hefur um árabil verið stærsti fiskmarkaðurinn á Ís­ landi en á síðasta ári voru seld rúmlega 36 þúsund tonn hjá FMIS að verðmæti 9,6 milljarða. Páll Ingólfsson, framkvæmdastjóri FMIS, segir að um 35% af öllu seldu magni á íslenskum fiskmörkuðum fari í gegnum Fiskmarkað Íslands. Mikilvægt er að ná samstöðu allra sem í sjávarútvegi starfa um að efla og treysta tilvist og grundvöll fyrir íslenska fiskmarkaði. Það hefur sýnt sig á undanförnum árum að fjöl­ breytni í veiðum og vinnslu sem og ný viðskiptatækifæri hafa skapast með tilkomu fiskmarkaða. Miðla fiski frá seljendum til kaupenda „Við erum brú á milli útgerðar og fiskvinnslu. Við miðlum fiski frá seljendum til kaupenda og önnumst alla umsýslu við þá yfirfærslu. Fisk­ markaðurinn vinnur bæði fyrir kaupendur og seljendur og veitir þeim margvíslega þjónustu í tengsl­ um við meðhöndlun fisksins,“ segir Páll. Fiskmarkaður Íslands stuðl­ ar að jafnvægi og stöðugleika í ís­ lenskum sjávarútvegi með því að uppfylla ólíkar þarfir viðskiptavina sinna. „Við tryggjum að útgerðir geti selt veiddan fisk og að vinnslu­ aðilar fái fisk til vinnslu á öruggan og hagkvæman hátt. Fiskmarkað­ urinn treystir með því starfsskilyrði sjávar útvegs vítt og breitt um landið og hefur mikil samfélagsleg áhrif,“ bætir Páll við. Gæði lykilatriði Páll segir Fiskmarkað Íslands leggja áherslu á gæði, sem felast meðal annars í vönduðum vinnubrögðum við meðhöndlun fisks og upplýsinga­ gjöf. Starfsemi fyrirtækisins byggist á fyrsta flokks þjónustu og traustu sambandi við viðskiptavinina. Kaupendum tryggður góður og ferskur fiskur „Meirihluti þess afla sem seldur er hjá okkur er af dagróðrabátum og er fiskurinn þá oftast seldur áður en honum er landað. Það tryggir kaup­ andanum góðan og ferskan fisk. Við löndun er þess gætt að fiskurinn sé vel ísaður og að honum sé raðað í einangruð fiskikör, jafnframt er hitastig fisksins mælt og það skráð,“ segir Páll. Starfa víðs vegar um landið Félagið starfar á níu stöðum víðs vegar um landið: á Arnarstapa, Rifi, Ólafsvík, Grundarfirði, Stykkis­ hólmi, Skagaströnd, Akranesi, Reykjavík og Þorlákshöfn. Aðal­ skrifstofa fyrirtækisins er í Ólafs­ vík en Rif er stærsti móttökustaður­ inn. Einnig rekur fyrirtækið öfluga flokkunar­ og slægingarþjónustu á Rifi. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.