Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Page 24
Vikublað 19.–21. janúar 201610 Íslenskt sjávarfang - Kynningarblað
Litla fiskbúðin
með besta verðið
L
itla fiskbúðin er einna helst
þekktust fyrir að vera langódýr-
ust og með gæða fisk. Að sögn
Jóns Garðars Sigurvinssonar,
annars eigenda Litlu fiskbúðar-
innar, ákváðu hann og meðeigandi
hans, Gylfi Norðdal, að stofna versl-
unina árið 2008 vegna mikillar eftir-
spurnar á ódýrum fiski á íslenskum
markaði. „Í dag eru verslanirnar orðn-
ar þrjár í heildina hjá okkur en við opn-
uðum þriðju verslunina fyrir jól við
hliðina á Bónus í Helluhrauni í Hafnar-
firði,“ segir Jón. „Samkvæmt könnun-
um erum við alltaf langódýrastir,“
bætir hann við en samkvæmt verð-
lagskönnun Alþýðusambands Íslands
er lægsta verðið á ferskum fiski oftast í
Litlu fiskbúðinni. Könnunin náði til 23
verslana vítt og breitt um landið. Í um-
ræddri könnun var kannað verð á 25
algengum tegundum af fiskmeti og var
munur á hæsta og lægsta verði oftast 25
til 75 prósent.
Ferskur og góður fiskur
„Við sérhæfum okkur fyrst og fremst
í góðum og ferskum fiski,“ segir Jón.
„Við erum einnig með ýmiss konar
fiskrétti sem viðskiptavinir geta keypt.
Auk þess tökum við sérpantanir frá
veitingastöðum svo dæmi séu dæmi
nefnd,“ segir Jón. Hráefnið er sótt á
markað á hverjum morgni og leitast
eigendur verslunarinnar við að vera
með allt hráefni sem allra ferskast.
Litla fiskbúðin er opin sem hér
segir; í Helluhrauni í Hafnarfirði er opið
alla virka daga frá kl. 11.00 til 18.30. Í
Miðvangi í Hafnarfirði er opið á mánu-
dögum og þriðjudögum frá kl. 09.00 til
18.30. Miðvikudaga til föstudaga frá kl.
10.00 til 18.00. Á Háaleitisbraut er opið
alla virka daga frá kl. 10.00 til 18.00. n
Myndir Sigtryggur Ari