Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1993, Page 6
Á þessu höfðum við mikla trú. Ég veit ekki
alveg hvort við höfúm það lengur og ég held
að orsökin sé meðal annars sú að við höfúm
verið heldur ragar við að gera upp mistök
okkar. Við höfum verið uppteknar við að
halda í ímynd góðu, samviskusömu, heiðar-
legu konunnar. Það er mjög ríkt í uppeldi
okkar að standa sig vel, vera alltaf til fyrir-
myndar og við viljum ógjarnan brjóta skarð í
þennan glæsta hreinleikamúr.“
G.H. „Þessi hreinleikadilla
hefúr nú alltaf farið í taugarnar
á mér!“
Þ. „Já, já, en hún var samt
nauðsynleg í upphafi; að við
hefðum þessa ofúrtrú. En við
höfúm samt ver-
ið alltof duglegar
að sópa undir
teppið. Við erum
stundum að end-
urtaká mistök af
ótta við að særa
einhverjar eða
brjóta ímyndina
út á við. Stund-
um notum við sem rök; „já en
við sögðum þetta fyrir fimm ár-
um.“ Við ættum ekki að vera
hræddar við að standa upp og segja
„og hvað með það, það eru fimm ár
síðan!“
G.H. „Við óttumst líka að utanaðkomandi
aðilar komi og hendi ágreining okkar á lofti,
kjamsandi, og „ . . . aha, það er óeining í
Kvennalistanum“. Um slíkan útúrsnúning eru
mörg dæmi - þegar aðeins er um eðlileg skoð-
anaskipti að ræða.“
Þorum viS þá ekki lengur aí takast á um hug-
myndir eSa erum við búnar að afgreiSa þetta
allt’
G.A „Við mætum ekki eins dyggilega á
fundi og áður til þess að takast á um hug-
myndir. Það er ekki það að við veigrum okkur
við því. Reynslan hefur leitt okkur í alls kyns
önnur félagsstörf sem kvennalistakonur.
Þannig höfum við líka haft óbein áhrif og
hugmyndafræðin breiðist út. Áður en vuTvit-
um af er tíminn runninn manni úr greipum
og við erum líka búnar að koma okkur upp
erindrekahópi sem við treystum svolítið á.“
Þ. „Ég ansa því ekki að tímaleysi hrjái okk-
ur. Þegar ég var í Kvennaframboðinu átti ég
börn á hverju ári, var með fúllt hús af börnum
og alltaf hafði ég tíma. Þá fór maður á hverju
kvöldi og var fram á nótt af því erindi manns
var nógu bfynt og - við skulum ekki gleyma
því - það var svo asskoti gaman."
„Ég er sammála Þórhildi, þetta er
ekki spurning um tímaskort. Hér áður fyrr
varð ég að standa fyrir mínu máli sjálf, þá
voru engar þingkonur til þess. Nú hef ég
minn erindrekahóp og þarf ekki lengur að
svara knýjandi spurningum sjálf. Þær sem eru
núna í forsvari fyrir okkur sjá um að svara.“
Þ. „Ég held ekki að hugmyndirnar hafi úr-
elst, frekar að við höfum ekki megnað að
endurnýja hugmynd-
irnar á þann hátt að
það knýi mann til
svara, til þátttöku. Ég
er voðalega ánægð þeg-
ar ég sé einhvern er-
indreka minn, eins og
þið kallið það, standa
sig vel á opinberum
vettvangi og ánægð að
hafa kvennalistakonur hér og þar.“
Nýjar konur - nýir tímar
HaftS þiS ekki bara allt aSra sýn á
Kvennalistann en margar aSrar nýrri
konur í Kvennalistanum?
Þ. „Það getur vel verið og það er mjög
gleðilegt að nýjar konur taki við.“
Einhver skýtur inní: „Gerjunin er sko
aldeilis til staðar og það drífur að nýjar konur
á alla fundi.“
K. „Þetta er auðvitað partur af því sem ég
nefndi í upphafi þegar við fundum allar svo
fyrir því sem ég kalla háska. Það kallaði á okk-
ur alveg stöðugt að hittast og ræða hugmynd-
irnar og styðja hver aðra í því hvernig við ætt-
um að svara öllu áreitinu; „hvað meiniði með
þessu og hvernig ætliði að framkvæma hitt?“
Nú erum við auðvitað margbúnar að fara yfir
þetta allt og skilgreina og við vitum að okkar
konur í fulltrúahlutverkunum svara þessu.
Við höfúm líka stefnuskrána, ótal greinar og
þykkar möppur með þingmálum og upplýs-
ingum um allt sem við höfum gert. Okkur
finnst kannski meira og minna búið að af-
greiða þetta og það dregur auðvitað úr þörf-
inni hjá okkur sjálfum til að vera alltaf á
staðnum."
G.A. „En er þetta ekki að vissu leyti boð-
hlaup; konur koma og fara. Er ekki eðlilegt að
konur sem hafa starfað lengi fari um hríð, fái
að endurnýja sig áður en þær koma aftur. Það
koma líka alltaf nýjar!"
Þ. „Þú segir boðhlaup - ég er ekkert nógu
ánægð með það eitt og sér að ungar konur
taki við, þær verða líka að finna aðrar leiðir en
við, þær mega ekki bara
taka við keflinu og taka
næsta sprett.
Ég held
að við hefð-
um allar vilj-
að sjá meiri
árangur. Fólk er kannski orðið
svolítið ónæmt fyrir okkur, farið
að taka okkur eins og staðreynd,
við erum kannski hættar að koma
á óvart. Flestir eru sammála um
að það hafi verið gagn að okkur
og endilega ekki að hætta og allt það. En get-
uni við leyft okkur að hætta að vekja fjaðra-
fok?
Það má vel vera að ég sé bara æsingamann-
eskja en þann dag sem ég finn lykt af fjaðra-
foki verður ekki spurning um hvar ég verð
næstu kvöld. Við þurfum að knýja betur á,
eða annars staðar, það er búið að ganga svo
vel frá framdyrunum að höggin heyrast ekki
vel þar. Þurfum við ekki að finna bakdyrnar
eða athuga hvort kjallaradyrnar eru opnar eða
kannski risglugginn? Mér sýnist ýmis teikn á
lofti um það að konur séu að því - e.t.v. er
nýtt áhlaup í vændum. Skildi engan undra!“
Framundan ???
Kvennalistakonur hafa þá ekki lokiS œtlunar-
verki sínu, eSa hvaS? Hvar stöndum viS núna?
G.H. „Við megum ekki gleyma því að við
komum inn sem tímabundið afl - ætluðum
aldrei að verða stofnun, í því felst hættan á
stöðnun.“
G.A. „Við erum búnar að tala mikið hver
við aðra, við ættum kannski að snúa umræð-
unni meira að körlunum!"
K. „Það er kominn tími til að rífa upp nýja
hugmyndafræðiumræðu. Við megum aldrei
líta svo á að við séum búnar að finna upp
sannleikann, og það var ekki meiningin í upp-
hafi. Þess vegna held ég að það sé mjög bfynt
að kvennalistakonur, hvar svo sem þær eru,
endurmeti þetta allt saman. Skoði gömlu hug-
myndirnar, athugi hvort ekki séu nýir fletir
og jafnvel ný vinnu-
brögð og nýjar að-
ferðir og í guð-
anna bænum að
banka fastar á
allar dyr.
Hér látum við staðar numið og þökk-
um þessum hressu, hugmyndaríku og
reyndu konum fyrir spjallið. Ef vel ætti
að vera þyrfti annað opnuviðtal til að
skilgreina stöðuna nákvæmlega eins og hún er
nú. Eitt er víst - verkefnin eru ærin, hvort
sem það er innan eða utan „kerfisins“. Nú er
um að gera að láta ekki deigan síga. „Það er
náttúrlega kominn tími til að við fáum að
ráða - og þó fyrr hefði verið“ . . . þær eru
komnar á flug í framhaldið!
Steinunn V. Óskarsdóttir
sagnfræðingur
Guðrún Ögmundsdóttir
borgarfúlltrúi Kvennalistans
í Reykjavík
Lopi - hnotulopi
3ja þráða plötulopi. 10 sauðalitir.
Gulir, rauðir, bláir, grænir og fjólubláir litir.
Sölustaðir:
Allt verslunin - lopi - Drafnarfelli 6, R.
Handprjónasamband íslands - lopi og hnotulopi - Skólavörðustíg 19, R
Hof, verslunin - lopi og hnotulopi - Ingólfsstræti 1, R
RammaoerDin - hnotulopi - Hafnarstræti 19, R
HannyrðabúDin - 2ja og 3ja þráða plötulopi - einnig country hnotulopi -
Strandgötu 11, Hafnarfirði.
íslensk ull - iopi - Þingholtsstræti 30, R.
Steinaríki - lopi - country - Lækjargötu 30, R.
Sendum
o>
Lopi ullarsalan - heildsala smásala - sími 30581 - Reykjavík |
____________________________________________I
Til þeirra sem huga á þátttöku
í Nordisk forum
SÆNSKA OG FINNSKA FYRIR FERÐAFÓLK:
Með sérstakri áherslu á finnskt samfélag og finnska sögu.
Tekið er mið af því að vænta má að næsta ár muni íslendingar
fjölmenna til Abo í Finnlandi á norrænt kvennaþing.
Hafið samband við Námsflokka Reykjavfkur hið fyrsta.
Námsflokkar Reykjavíkui; Fríkirkjuvegi 1,101 Reykjavík,
Sími 12992 - 14106