Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1993, Side 9

Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1993, Side 9
Meðlag og mæðra- laun Ríkisstjórnin þurfti að losa rík- issjóð undan þungum bagga. Nei, ekki jeppakaupum heldur mæðralaunum. Mæðralaun eru greidd einstæðum mæðrum til að hjálpa þeim að tóra og voru í lok ársins 1992 tæpar 5000 kr. á mánuði til einstæðrar móður með eitt barn en eru nú 1000 kr. Ríkisstjórnin ákvað að lækka mæðralaun en til að skerða ekki hlut mæðra og barna var ákveðið að hækka meðlag. Hækkun meðlagsins nam þó ekki alveg þeirri upp- hæð sem mæðralaunin lækk- uðu um - en hvern munar um 1000 kall á mánuði! Nú er liðið nær ár frá þess- um breytingum. Hefur þú kynnt þér árangurinn? Vissir þú...? ’ að eftir að barnameðlag var hækkað og mæðralaun lækkuð hefur einstæð móðir með eitt barn 12.000 krónum minna til framfærslu á ári og einstæð móðir með þrjú börn 35.000 krónum minna? ' að við sömu breytingar fær kona sem er í sambúð og fær meðlag með einu barni 33.000 krónum meira á ári og eigi hún þrjú börn aukast tekjur hennar um 99.000 krónur? * að skuldir meðlagsgreiðenda við ríkið hafa aukist um rúm- lega 645 milljónir eftir hækk- un meðlags um síðustu ára- mót? að á tímabilinu janúar til september árið 1992 inn- heimtust 81% af meðlags- greiðslum en á sama tímabili 1993, eftir meðlagshækkun, aðeins 64%? * að þetta eru afleiðingar „sparnaðar" ríkisstjórnarinnar? Myndir þú spara á þennan hátt? 4 Hin hagsýna húsmóbir hefur fundib réttu sparnaharleibina í nútímaþjóöfélagi taka konur í ríkari mæli ákvarðanir um hvernig verja eigi tekjum og eignum fjölskyldunnar og þaö er til marks um breytta tíma að um helmingur þeirra 15 þúsund Islendinga, sem eru áskrifendur aö spariskírteinum ríkissjóös, eru konur. Sú fyrirhyggja í fjármálum, sem felst í því að leggja reglulega fyrir meö áskrift að spariskírteinum, fellur vel aö hugsunarhætti karla og kvenna í dag, hugsunarhætti hinnar hagsýnu húsmóöur sem blundar í okkur öllum. Áskrift aö spariskírteinum ríkissjóðs er einfaldur, þægilegur og áhyggjulaus sparnaður. Ætlar þú ekki aö gerast áskrifandi? Hringdu eða komdu í heimsókn í Þjónustumiöstöö ríkisverðbréfa. Við erum fyrir konurnar og mennina í landinu. ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ RÍKISVERÐBRÉFA Hverfisgötu 6, sími 91-62 60 40 og Kringlunni, sími 91-68 97 97 Gottfólk/SlA

x

Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans
https://timarit.is/publication/1231

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.