Fréttablaðið - 07.04.2017, Blaðsíða 11
Það blés ekki byrlega fyrir kattargreyinu sem fátæki malarsonurinn fékk í arf
eftir föður sinn. Hinn nýi eigandi
var svo sárafátækur að það fyrsta
sem honum datt í hug var að slátra
kvikindinu og búa til úr skinninu
hanska.
Eins og nærri má geta leist
kettinum sjálfum engan veginn
á þessar hugmyndir. Og þar sem
kötturinn var ekki þeirrar gerðar
sem tekur örlögum sínum af æðru-
og aðgerðarleysi þá tókst honum
af miklum sannfæringarþunga að
telja sinn nýja eiganda af þessum
áformum.
Kisi fær stígvél
Það segir eflaust eitthvað um vits-
muni malarasonarins að hann
virðist engin fjárhagsleg tækifæri
hafa séð í því að halda lífi í ketti sem
bjó yfir þeim undraverða eiginleika
að kunna að tala mannamál. Kisi
þurfti líka að hafa eitthvað vitrænt
að segja.
Og malarasonurinn var ekki
aðeins blindur á augljós viðskipta-
tækifæri; hann var líka sérlega
kærulaus í fjármálum. Ekki nóg
með að hann samþykkti að þyrma
kattargreyinu heldur féllst hann
líka á að fara út í umtalsverða
fjárfestingu í óljósum tilgangi að
áeggjan kattarins, því nærri má geta
að það hafi kostað skildinginn að
láta sérsníða á dýrið stígvél. En það
varð malarasyninum til gæfu að
örlög hans voru upp frá því ekki á
hans eigin valdi, heldur kattarins.
Stígvélaði kötturinn reynist
traustsins verður og rúmlega það.
Um leið og hann var kominn í stíg-
vélin tók hann til við að framkvæma
áætlun sína. Hann byrjaði á því að
koma sér rækilega í mjúkinn hjá
ríkjandi stjórnvöldum með því að
færa konungi ýmiss konar fágætar
gjafir og afhendir þær með tilheyr-
andi fagurgala, smjaðri og skrúð-
mælgi; og tilkynnti hátíðlega í hvert
sinn að gjafirnar væru frá hinum
dularfulla greifa af Karabas.
Konungur lætur sér vel líka örlæti
hins framandi erlenda auðmanns
og verður stöðugt forvitnari um
hann. Kötturinn sætir svo lagi þegar
konungurinn er úti að aka vagni
sínum og platar hann til þess að lána
hinum grunlausa malarasyni höfð-
ingleg klæði úr sínum eigin fataskáp
eftir að hafa falið larfana af eiganda
sínum. Svo hefur kötturinn í hót-
unum við alþýðufólkið í sveitinni
og pínir það til þess að halda því
fram við konunginn að eigandi og
stjórnarherra hinnar fögru sveitar
sem hann ríður um sé einmitt hinn
örláti greifi sem konungurinn þekkir
aðeins af afspurn.
Þar sem kostgæfnisathugun kon-
ungsins takmarkast við að yfirheyra
þetta sama alþýðufólk þá telur
hann fullvíst að greifinn af Karabas
sé sannarlega sá mikli efnamaður
og höfðingi sem sendiboði hans,
kötturinn, hafði svo fjálglega lýst.
Skrúðklæði handa greifanum
Þannig gerist það að þegar stjórn-
völd hitta malarasoninn í fyrsta
sinn þá stendur hann frammi fyrir
þeim skrúðklæddur á kostnað kon-
ungsins, og með köttinn kunnug-
lega sér við hlið. Eins og gjarnan
er siður slyngra ráðgjafa þá gætti
stígvélaði kötturinn þess í hvívetna
að malarasonurinn hefði aldrei
minnstu hugmynd um hina flóknu
og úthugsuðu fléttu. Malarasyn-
inum hæfileikalitla má þó telja til
tekna að hann virðist hafa búið yfir
þeim bráðnauðsynlega eiginleika
stjórnmálamannsins að sannfærast
samstundis um að dýrðarmyndin
sem ráðgjafinn dró upp af honum
væri sönn.
Konungurinn verður vitaskuld
mjög uppnuminn yfir hinum
glæsilega greifa af Karabas og sér
í hendi sér að það hljóti að vera
mikil viðurkenning fyrir sig og
þjóð sína að svo forframaður og
dularfullur alþjóðlegur athafna-
maður sýni landinu slíkan áhuga.
Til þess að tryggja að tækifærið
renni nú ekki úr greipum sér þá
gerir konungurinn umsvifalaust
þá tillögu að greifinn gangi að eiga
dóttur sína, prinsessuna, og taki án
tafar við hálfu konungsríkinu. Svo
segir sagan að kötturinn hafi fengið
að launum að fá að vera ráðgjafi
konungs og fengið stöku sinnum að
skjótast út á músaveiðar.
Konungsríki kattarins
Það hlýtur margt að hafa verið
hvíslað í ríkinu eftir að konungur-
inn ákvað að gefa dóttur sína og
hálft ríkið dularfullum greifa frá
framandi landi sem enginn hafði
áður heyrt um. Kannski hefur ein-
hverjum fundist þessi náungi vera
kunnuglegur að sjá. Ef til vill fannst
sumum að honum svipaði töluvert
til bláfátæks alþýðumanns sem
hvarf sporlaust á svipuðum tíma og
greifinn birtist skyndilega.
Vera má að sögusagnir hafi verið
á kreiki um að greifinn sjálfur væri
bara ómerkilegt handbendi hinna
raunverulegu valdhafa. Það gæti
jafnvel verið að einhverjir hafi
haldið því fram fullum fetum að
heilinn á bak við þetta allt saman
væri köttur greifans. En svona sögur
hafa örugglega verið afskrifaðar
og þeir sem trúðu þeim taldir vera
truflaðir á geðsmunum eða hel-
þjakaðir af öfund og vænisýki.
Þeir sem lesið hafa ævintýrið
um stígvélaða köttinn vita hins
vegar mætavel að hinn svokallaði
greifi hafði enga burði til þess að
stjórna hálfu konungdæmi. Ekki
getur annað verið en kötturinn hafi
sjálfur haldið um alla valdaþræði af
sinni aðdáunarverðu list.
Ævintýrin enn gerast
Það var ekki fyrr en miklu síðar
sem sannleikurinn kom í ljós. Og þá
var orðið alltof seint að vinda ofan
af því sem löngu var liðið. Vissu-
lega mátti hneykslast á trúgirni
konungsins. En margir hafa líkast
til huggað sig við að svona sögur
yrðu slíkt víti til varnaðar að aldrei
aftur féllu yfirvöld svo kylliflöt
fyrir innantómri glæsimennsku
framandi stórgreifa.
En það vita slyngir klækjakettir
að flestir konungar kjósa að trúa því
sem best kemur þeim sjálfum og að
alltaf er hægt að skapa úr litlu eða
engu nýja og glæsilega greifa sem
njóta slíkrar frægðar, virðingar og
trausts að engum nema rugludöllum
dettur í hug að draga í efa myndug-
leik þeirra og fögur fyrirheit.
Hvernig fór með hinn helm-
inginn af konungdæminu—þann
sem ekki var gefinn greifanum
af Karabas—fylgdi ekki sögunni
um stígvélaða köttinn. En það er
auðvitað allt önnur saga og annað
ævintýri; og kannski eru þau
fleiri—og kannski gerast þau enn.
Kötturinn og greifinn hans
Þórlindur
Kjartansson
Í dag
Konungurinn verður vita-
skuld mjög uppnuminn yfir
hinum glæsilega greifa af
Karabas og sér í hendi sér
að það hljóti að vera mikil
viðurkenning fyrir sig og
þjóð sína að svo forframaður
og dularfullur alþjóðlegur
athafnamaður sýni landinu
slíkan áhuga.
afsláttur af
völdum vörum30%
VORÚTSALA 30%
afsláttur af völdum vörum í verslunum okkar í Smáralind 2. hæð
CORTEFIEL.COM
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 11F Ö S T u d a g u R 7 . a p R Í L 2 0 1 7
0
7
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:4
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
A
0
-4
6
E
C
1
C
A
0
-4
5
B
0
1
C
A
0
-4
4
7
4
1
C
A
0
-4
3
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
6
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K