Fréttablaðið - 07.04.2017, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 07.04.2017, Blaðsíða 18
1906 Ingvarsslysið. Tuttugu menn fórust þegar þilskipið Ingvar RE 100 strandaði í ofsaveðri skammt undan Viðey. Í sama veðri fórust 48 menn með tveim skipum við Mýrar (Sophie Wheatly RE 50 og Emilie RE 25). 1941 Togarinn Gulltoppur bjargaði 33 mönnum af björg- unarbát frá flutningaskipinu Beaverdale út af Reykjanesi og bátar frá Hellissandi björguðu 32 mönnum af björgunarbát frá sama skipi út af Snæfellsnesi. Skipið hafði verið skotið niður fjórum dögum áður. 1943 Stjórnarskrárnefnd Alþingis skilaði áliti og var sam- mála um að leggja til að 17. júní 1944 yrði valinn til stofn- unar lýðveldisins. 1943 Laugarnesspítali í Reykjavík brann. Hann var byggður árið 1898 sem holdsveikraspítali en síðustu árin hafði bandaríski herinn hann til umráða. 1968 Lög um tímareikning öðluðust gildi klukkan 01.00. Samkvæmt þeim skal hvarvetna á Íslandi telja stundir árið um kring eftir miðtíma Greenwich.  Merkisatburðir Ástkær móðir okkar, tengdamamma og amma, Sesselja Hrönn Guðmundsdóttir lést á heimili sínu, Hrafnistu í Hafnarfirði, miðvikudaginn 29. mars í faðmi fjölskyldunnar. Útför verður frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 7. apríl kl. 13. Fjóla Eðvarðsdóttir Justin Wallace Geir Eðvarðsson Ingibjörg S. Eðvarðsdóttir Baldur I. Sæmundsson Elísabet Hrönn, Eðvarð Geir, Sylvía Guðrún Emma Ósk, Inga Fjóla og Ronja Valgý Okkar ástkæri eiginmaður, sonur, faðir, tengdafaðir og afi, Vigfús Aðalsteinsson viðskiptafræðingur, Arnartanga 80, Mosfellsbæ, lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum 2. apríl. Útför hans fer fram frá Bústaða - kirkju þriðjudaginn 11. apríl kl. 15.00. Ástvinir afþakka blóm og kransa, en þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarkort Rótarýklúbbanna eða líknarfélög. (Minningakort Rótarý má finna á /www.rotary.is/ umrotary/kort/minningarkort.) Svala Árnadóttir Guðbjörg Vigfúsdóttir Heiða G. Vigfúsdóttir Leifur Eiríksson Hafdís G. Vigfúsdóttir Árni Gunnar Vigfússon Aðalheiður Vigfúsdóttir Vigfús Þór Sveinbjörnsson og afabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Guðmundur Magnússon bifreiðasmiður og verslunarmaður, lést á Dvalarheimilinu Hlíð þriðjudaginn 28. mars. Útförin hefur farið fram í kyrr þey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir eru færðar til starfsfólks og íbúa Furuhlíðar. Jóna Þórólfur Geir Matthíasson Magna Úlfar Björnsson Guðmundur Baldvin Soffía Gísladóttir Rannveig Antonía Vilhjálmur Grímsson barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Kristján Þór Kristjánsson til heimilis að Engihjalla 25, 200 Kópavogi, lést á Landspítalanum í Fossvogi þann 29. mars sl. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 10. apríl kl. 13.00. Kolbrún Kristjánsdóttir Elías J. Friðriksson Kristján Þór Kristjánsson Helga Loftsdóttir Fríða Dröfn Kristjánsdóttir Eyþór Víðisson Ester Sif Kristjánsdóttir Hlynur Hreinsson barnabörn og barnabarnabörn. Sigurbjörg Siggeirsdóttir Hrafnistu, Hafnarfirði, áður Melhaga 10, er látin. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinar látnu. Örn Jóhannsson Edda Jónsdóttir Valur Jóhannsson Jenny Forberg Anna Sigríður Jóhannsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Einar Sigmundur Kristjánsson Skúlagötu 20, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Mörk 8. febrúar. Útförin hefur farið fram. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug. Sendum sérstakar þakkir til starfsfólks Markar fyrir frábæra umönnun, góðvild, hlýju og þolinmæði á erfiðum tímum. Sólrún Gestsdóttir Guðjón Einarsson Karólína Pétursdóttir Sonja Einarsdóttir Símon Sverrisson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi, sonur og bróðir, Magnús Hólm Sigurðsson vélfræðingur, Grenigrund 31, Akranesi, lést á heimili sínu þann 17. mars sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð. F.h. aðstandenda, Magnús Birkir Magnússon Þetta er hugmynd sem spratt hjá honum Sjón. Málið er það að þessi hugmynd bak við kvöldin Svarta sunnu-daga í Bíói Paradís varð til í Facebook-grúppu sem heitir Gríðarlega undarlegar kvikmyndir – og eftir því sem ég best veit er þessi hópur nefndur eftir ritinu Incredibly strange films, sem kom út 1986 og er rit um költ- myndir – og af því að Svartir sunnudagar hafa gengið vel hjá okkur þá erum við svo- lítið að halda upp á það með því að hafa þemamánuð til heiðurs þessu riti,“ segir Hugleikur Dagsson, nefndarmeðlimur Svartra sunnudaga, en með honum í því batteríi eru þeir Sigurjón Kjartansson og áðurnefndur Sjón. Þeir hafa lýst því yfir að apríl verði ótrúlega undarlegur og munu fylgja því eftir með sýningu á þremur ótrúlega undarlegum kvikmyndum í Bíói Paradís í mánuðinum. Hvað er það sem ræður valinu hjá ykkur? „Incredibly strange films var á tímabili eitt af því fáa sem kvikmynda- nördar gátu nálgast til að sækja þekk- ingu á skrítnum myndum, öðruvísi myndum, brjáluðum myndum, furðu- legum myndum og svo framvegis. Við ákváðum að velja þrjár skrítnar myndir sem eru efstar á lista í okkar bók. Þær myndir sem við sýnum eru allar svolítið gamlar, alveg hálfrar aldar gaml- ar eða eldri – ef þær eru enn þá skrítnar núna þá voru þær alveg drullu skrítnar þá. Þannig að í raun og veru eru þær djarfari en skrítnar myndir núna myndi ég alveg þora að segja.“ Hvaða myndir er um að ræða? „Þetta eru kvikmyndirnar Spider Baby, Faster Pussycat, Kill Kill! og The Mask. Myndin Faster Pussycat, Kill Kill! er í rauninni eina myndin af þessum þremur sem ég hef séð – hinar hafa lengi vel verið á lista hjá mér, enda er ekkert auðvelt að nálgast þær. Núna loksins, eins og ég hef oftast notað Svarta sunnudaga til að gera, hef ég séð þær myndir sem hafa alltaf verið á lista hjá mér,“ segir Hug- leikur og bætir við: „Það er líka svo sniðugt að sjá þessar skrítnu myndir í bíói, því að ef þú ert að horfa á þær heima hjá þér þá hefurðu svolítið valdið til að slökkva á þeim. Stundum geta þær verið svolítið frá- hrindandi, eða kannski ekki alveg það sem þú vilt horfa á í þynnkunni – eitt- hvert svona brjálæði. En þegar þú ert í bíói þá ertu fastur þarna í salnum og verður að horfa á þetta og það gerir það einfaldlega að verkum að maður verður reynslunni ríkari og sér myndina eins og maður á að sjá hana. Ég er gífurlega þakklátur fyrir tækifærið. Bíómyndir eru ekki bara til að gleðja, þær eru líka til að vekja aðrar tilfinningar. En allar þessar þrjár myndir eru frá- bær skemmtun, þær eru allar húmor- ískar og meðvitað óþekkar. Til dæmis er Faster Pussycat, Kill Kill! frábært dæmi um það. Hún er alveg eðal „exploitation- pönk“ með bílum, gellum og ofbeldi.“ Leikar hefjast næsta sunnudag en þá verður kvikmyndin Spider Baby sýnd. Sunnudaginn eftir er það svo Faster Pussycat, Kill Kill! og að lokum The Mask. stefanthor@frettabladid.is Apríl verður ótrúlega skrítinn í Bíói Paradís Næstkomandi sunnudag hefst formlega nýjasti þemamánuður Svartra sunnudaga og að þessu sinni er það Ótrúlega skrítinn apríl þar sem þemað er, eins og nafnið gefur til kynna, alveg ótrúlega skrítnar myndir. Í boði verða þrjár gríðarlega skrítnar myndir. En þegar þú ert í bíói þá ertu fastur þarna í salnum og verður að horfa á þetta og það gerir það einfald- lega að verkum að maður verður reynslunni ríkari. Þeir Sjón og Hugleikur Dagsson auk Sigurjóns Kjartanssonar hafa starfrækt Svarta sunnudaga í þó nokkur ár. Fréttablaðið/SteFán 7 . a p r í l 2 0 1 7 F Ö S T U D a G U r18 T í m a m ó T ∙ F r É T T a B l a ð i ð tímamót Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. 0 7 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :4 1 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C A 0 -3 D 0 C 1 C A 0 -3 B D 0 1 C A 0 -3 A 9 4 1 C A 0 -3 9 5 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 6 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.