Fréttablaðið - 07.04.2017, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 07.04.2017, Blaðsíða 28
Garður er bær þar sem gott er að búa með börn. Hér búa um fimmtán hundruð manns og öll grunnþjónusta er til staðar. Í leikskólanum eru um 90 börn og um 210 nemendur í grunnskól- anum. Svo er Fjölbrautaskóli Suður- nesja í næsta nágrenni. Íbúum hefur fjölgað um sex prósent á einu ári og sveitarfélagið er að vinna í að auka framboð á íbúðalóðum. Við finnum þegar fyrir aukinni eftir- spurn eftir lóðum,“ segir Magnús Stefánsson bæjarstjóri. Gott íþrótta- og menningarlíf Í Garði er lögð mikil áhersla á gott íþrótta- og menningarlíf. „Hér er mjög fín íþróttamiðstöð með góðri aðstöðu fyrir íþróttir og tómstund- ir barna og fullorðinna. Íþrótta- miðstöðin er fullbúið íþróttahús fyrir alla íþróttaiðkun og keppt er í íþróttagreinum á borð við körfu- bolta, fótbolta og handbolta, þá er fullbúin og glæsileg líkamsræktar- stöð. Sundlaugin hér í Garði er 25 metra löng með heitum pottum, vaðlaug, gufubaði, flottri renni- braut og góðri aðstöðu til sólbaða,“ segir Magnús. Á Byggðasafninu við Garð- skaga er áhugavert safn muna sem tengjast lífi og störfum Garðbúa í gegnum tíðina. Þá er gaman að heimsækja Unuhús, sem er gamla heimili Unu í Garði en því er haldið við eins og hún skildi við það. Garðskaginn er mikil náttúru- paradís og fegurðin óviðjafnanleg. Sólsetrið töfrar marga og á kvöldin yfir veturinn má oft sjá norðurljós. Að sögn Magnúsar koma margir gestir gagngert til að skoða norður- ljósin. Fjölbreytni í atvinnulífi Sjávarútvegur er mikilvæg atvinnu- grein í Garði og margir sem byggja afkomu sína á honum. „Suðurnesin eru eitt atvinnusvæði. Fólk sækir vinnu á flugvöllinn, í Sandgerði, til Keflavíkur og á höfuðborgar- svæðið. Ferðaþjónustan er að sækja í sig veðrið en hingað koma um 200 þúsund gestir á ári og nóg pláss fyrir fleiri. Hér er hótel í bygg- ingu, Hotel Lighthouse Inn, sem verður opnað í maí. Svo er verið að byggja upp afþreyingarþjónustu á Garðskaga. Á sumrin er starfrækt kaffihús í Gamla vitanum sem var byggður árið 1897 og er næstelsti viti landsins. Í nýja vitanum, frá 1944, verða margs konar sýningar,“ upplýsir Magnús. Tjaldsvæði er á Garðskaga, en þar er einnig veitingahúsið Röst. Listahátíð barnanna er mjög stór viðburður í bænum og í ár er hún haldin í tólfta sinn. Þetta byrjaði allt árið 2006 með því að einn lítill leikskóli ætlaði að halda litla listahátíð fyrir for- eldra barnanna í Duus-húsunum, sem eru lista- og menningarhúsin okkar. Við tókum þessa hugmynd og þróuðum hana áfram. Smátt og smátt bættust við fleiri leikskólar og núna er staðan þannig að allir leikskólarnir tíu, allir sex grunn- skólarnir, listnámsbrautin við fjölbrautaskólann, dansskólarnir tveir og tónlistarskólinn taka þátt í hátíðinni,“ segir Guðlaug María Lewis, fræðslufulltrúi menningar- mála og verkefnisstjóri hátíðar- innar í Reykjanesbæ. Þema ákveðið að hausti Að hausti er þema ákveðið fyrir listahátíðina til að vinna út frá, líkt og gert var strax í upphafi, að sögn Guðlaugar. „Við höfum verið með alls kyns þema í gegnum árin, eins og hafið og himininn, afmæli, sögur og ævintýri og tröllin og fjöllin. Í ár er þemað Dýrin mín stór og smá. Á hátíðinni hafa grunnskólanem- endur sýnt úrval úr list- og verk- greinum en öll Duus-húsin hafa verið lögð undir listahátíðina. Leik- skólabörnin hafa búið til veröld úr stórum skúlptúrum og lýsing og hljóð eru notuð til að skapa réttu stemninguna. Gestir ganga því inn í töfraveröld.“ Vinsælasta sýning ársins Sýningin stendur yfir í tvær til þrjár vikur og er alltaf mjög vel sótt, enda lífgar hún mikið upp á bæinn og skapar góða stemningu. „Sýningin í Duus-húsunum er sú allra vin- sælasta yfir árið og við fáum á milli þrjú og fjögur þúsund gesti. Þessi hátíð snertir nánast allar fjölskyld- ur í bænum,“ upplýsir Guðlaug. „Svo höfum við spunnið í kringum þetta dag fyrir fjölskylduna. Þar er boðið upp á listasmiðjur og ýmis- legt tengt þessu.“ Hæfileikahátíð í Stapanum Í kringum listahátíðina hafa skap- ast margs konar spennandi verk- efni. Eitt þeirra er hæfileika hátíð grunnskólanna sem í ár verður haldin þann 5. maí í Stapanum. Þar verður sýnt úrval úr árshátíðar- atriðum úr öllum grunnskólum bæjarins. Annað verkefni snýr að sam- tvinnun tónlistar og myndlistar. „Eftir að Hafliði Hallgrímsson, tónskáld og myndlistarmaður, færði Listasafni Reykjanesbæjar rúmlega 20 verk, hafa nemendur úr tónlistarskólanum og mynd- listarnemar úr grunnskólunum unnið út frá þessum verkum. Þeir spila út frá myndlistinni og mála verk út frá tónlistinni. Úr þessu verður skemmtilegur gjörningur sem fluttur verður á hátíðinni. Í raun má segja að hátíðin snerti flestar fjölskyldur í bænum þar sem leikskólabörn bæjarins, flest grunnskólabörnin og einnig eldri nemendur eru beinir þátttakendur í listahátíðinni,“ segir Guðlaug. Þetta byrjaði með því að lítill leikskóli ætlaði að halda listahátíð. Guðlaug María Lewis Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@365.is Skessan í hell- inum tekur á móti gestum og gangandi. „Þetta byrjaði allt árið 2006 með því að einn lítill leikskóli ætlaði að halda litla listahátíð fyrir foreldra barnanna í Duus-húsunum,“ segir Guðlaug. Í kringum listahátíðina hafa skapast margs konar spennandi verkefni. Listahátíð barnanna undirbúin Undirbúningur Listahátíðar barna í Reykjanesbæ er í fullum gangi. Hátíðin verður sett 4. maí með pompi og prakt og stendur yfir í 2-3 vikur. Hún er einn vinsælasti viðburður ársins í bænum. Gott að búa með börn í sveitarfélaginu Garði Fagleg þjónusta við íbúa, góðir leik- og grunn- skólar og fjöl- breytt íþrótta- og tómstundastarf- semi er í fyrirrúmi hjá sveitarfélag- inu Garði. Íbúum í Garði hefur fjölgað um 6% á einu ári og sveitarfélagið er að vinna í að auka framboð á íbúðalóðum. Garður er bær þar sem gott er að búa með börn. Hér búa um fimmtán hundruð manns og öll grunn- þjónusta er til staðar. Magnús Stefáns- son bæjarstjóri 4 KYNNINGARBLAÐ 7 . a p R í L 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R 0 7 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :4 1 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C A 0 -3 8 1 C 1 C A 0 -3 6 E 0 1 C A 0 -3 5 A 4 1 C A 0 -3 4 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 6 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.