Fréttablaðið - 07.04.2017, Síða 12
Aðalfundur
Félags íslenskra félagsliða
Fimmtudaginn 27. apríl 2017 verður aðalfundur Félags íslenskra félagsliða haldinn
í húsi BSRB, Grettisgötu 89, 1. hæð. Fundurinn byrjar kl. 17:00
Aðalfundur 2017 – fundarefni:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla formanns
3. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga
4. Ákvörðun um árgjald
5. Kosning stjórnar
6. Fjárhagsáætlun næsta árs lögð fram.
7. Önnur mál
Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Stjórn Félags íslenskra félagsmanna.
Tilboð á
vínberjatvennu! -50%
Í Fréttablaðinu á miðvikudaginn síðastliðinn skrifaði Kári Stef-ánsson enn einn pistilinn þar
sem hann beinir spjótum sínum
að Bjarna Benediktssyni forsætis-
ráðherra. Kári byrjar pistil sinn á
að hreykja sér af því að hafa í fyrri
skrifum sínum dregið Bjarna yfir
naglabrettið, gert að honum grín,
ásakað um ljóta hluti og gert lítið
úr honum. Í stað iðrunar lýsir Kári
því næst yfir aðdáun sinni á still-
ingu Bjarna og langlundargeði yfir
níðskrifum hans.
Kári er margbrotinn maður
og það er erfitt að átta sig á hvað
honum gengur til – hvort hann sé
að brýna Bjarna til góðra verka
eða hvort hann sé markvisst að
reyna að grafa undan trúverðug-
leika hans. Það er svo sem aukaat-
riði í sjálfu sér hvaða hvatir liggja
að baki skrifunum. Það sem meira
máli skiptir eru dylgjurnar sem
hann ber á borð. Í pistli sínum tínir
Kári til gróusögur í fjórum liðum og
óskar eftir því að Bjarni stígi fram
og svari þeim opinberlega. Kári
gætir sín á því að taka það fram að
hann trúi sögunum ekki sjálfur en
hann vilji þó fá Bjarna til að bera
þær af sér. Mér finnst ólíklegt að
Bjarni skemmti skrattanum og
svari pistli Kára. Það ætla ég hins
vegar að gera.
Það vill nefnilega svo til að í
öllum fjórum gróusögunum sem
Kári tínir til er vikið með einum
eða öðrum hætti að föðurbróður
Bjarna, þ.e. föður mínum, Einari
Sveinssyni, og viðskiptum sem
hann tengist. Mér rennur því blóð-
ið til skyldunnar að leiðrétta það
sem þar kemur fram, í þeirri röð
sem það var skrifað.
1. Í fyrsta lið fjallar Kári um blekkingar S-hópsins við kaup
Búnaðarbankans. Þykir honum
Bjarni þar ekki hafa verið nógu
afgerandi í fordæmingu sinni á
þeirri fléttu auk þess sem honum
þykir hann ekki nógu áhugasamur
um frekari rannsókn á einkavæð-
ingu bankanna. Vísar Kári svo til
ónefndra manna sem segja ástæð-
una fyrir þessu meinta áhugaleysi
Bjarna vera þá að fjölskylda Bjarna
„hafi verið á bólakafi í bankaskítn-
um“ og er í því sambandi vísað til
stjórnarsetu föður míns í Íslands-
banka og hvernig „[okkur] tókst
að selja [okkur] út úr bankanum
nokkrum klukkustundum áður en
hann fór á hausinn“.
Það er ekki alveg einfalt að svara
áburði Kára um að fjölskylda
okkar Bjarna hafi verið „á bólakafi
í bankaskítnum“. Til þess hefði
Kári mátt vera skýrari. Um aðkomu
föður míns að Íslandsbanka/Glitni
og brotthvarf hans get ég þó sagt að
hann var stjórnarmaður í Íslands-
banka frá 1991, þar af formaður frá
Ef ætlarðu að svívirða saklausan mann
2004. Á aðalfundi bankans í febrúar
2007 var hann endurkjörinn í
stjórn og sat áfram sem formaður.
Þremur vikum eftir aðalfundinn í
febrúar juku FL Group og Baugur/
Stoðir við eignarhlut sinn í bank-
anum og vildu þeir aðilar sem að
þeim félögum stóðu taka yfir stjórn
bankans. Faðir minn átti ekki sam-
leið með þeim og seldi því hlut sinn
um það leyti. Hluthafafundur var
svo haldinn í apríl 2007 þar sem
hann gekk út úr stjórn og ný stjórn
var kjörin. Glitnir var svo tekinn
yfir af Fjármálaeftirlitinu einu og
hálfu ári síðar, 7. október 2008.
2. Í öðrum lið víkur Kári að nýleg-um breytingum á eignarhaldi
Arion banka og hefur ónefnda
aðila fyrir því að meint áhugaleysi
Bjarna á eignarhaldi Arion banka
megi rekja til þess að fjölskylda
Bjarna sé að „undirbúa að kaupa
sig inn í bankakerfið öðru sinni,
til dæmis með því að láta Borgun
kaupa Íslandsbanka með aðkomu
lífeyrissjóða“.
Það er makalaust að Kári skuli
telja Bjarna þurfa að svara svona
þvælu. Í fyrsta lagi eru þetta sam-
hengislausar dylgjur. Í öðru lagi er
fjarstæðukennt að láta sér detta í
hug að Borgun, sem er að 63,5% í
eigu Íslandsbanka, ætli að kaupa
Íslandsbanka með aðkomu lífeyris-
sjóða. Sú hugmynd hefur, svo ég viti
til, hvergi verið viðruð.
3. Í þriðja lið nefnir Kári sölu Landsbankans á hlutnum í
Borgun. Segir hann þá sögu ganga
að fyrst hafi stjórnendur Borgunar
falast eftir kaupum á hlut bankans
án árangurs en síðan þegar frændi
Bjarna, faðir minn, hafi bæst í
hópinn að þá hafi bankinn verið
viljugur að selja og það á gjafverði.
Sagan segi jafnframt að frændsemi
föður míns og Bjarna hafi verið
ástæða fyrir því hvernig að sölunni
var staðið.
Það hefur margt verið skrifað
og sagt um söluna á Borgun. Þegar
fréttir bárust fyrst af sölunni ein-
kenndist umræðan af samsæris-
kenningum og ásökunum um spill-
ingu. Mikið var gert úr hlut föður
míns í kaupendahópnum en félag
í hans eigu keypti hlut sem svaraði
til u.þ.b. 5% hlutar í Borgun. Nú
þegar rykið hefur sest eftir mold-
viðrið sem þyrlað var upp og stað-
reyndirnar liggja fyrir þá er öllum
ljóst sem málið skoða að Bjarni
hafði hvorki aðkomu né vitneskju
um fjárfestingu föður míns. Bjarni,
þá sem fjármálaráðherra, hafði
heldur ekkert um sölu á hlut bank-
ans í Borgun að segja. Ákvörðun um
slíkt var einungis á forræði banka-
stjóra og bankaráðsins. Það hefur
enda enginn sem að sölunni kom
haldið öðru fram.
Það má hins vegar taka undir
gagnrýni á það hvernig Lands-
bankinn stóð að söluferlinu. Það
hvernig að sölunni var staðið var
þó alfarið ákvörðun bankans, ekki
kaupenda. Í skýrslu Ríkisendur-
skoðunar til Alþingis í nóvember
2016 voru vinnubrögð Lands-
bankans átalin og þá einkum að
bankinn skyldi hafa selt tilteknar
eignir sínar í lokuðu ferli. Tilgreindi
Ríkisendurskoðun þar sérstaklega
söluna á hlutnum í Borgun ásamt
sölunni á hlutum sínum í Vestia,
Promens, Icelandic Group og Val-
itor svo dæmi séu nefnd. Eins og
þekkt er fór svo að Bankasýsla
ríkisins gerði breytingar á stjórn
bankans og bankastjóranum var
sagt upp störfum.
Hvað snýr að kaupverði hlutanna
í Borgun þá hafði hvorki ég né faðir
minn neina aðkomu að samninga-
viðræðum við bankann. Í október
2014 fengum við kynningu hjá for-
svarsmanni fjárfestahópsins þar
sem okkur var kynnt verkefnið, en
undirbúningur kaupanna hafði þá
staðið yfir frá því í mars sama ár. Á
þeim tíma sem við fengum kynn-
inguna lá verðið og kaupsamning-
ur fyrir og beðið var endanlegrar
staðfestingar bankaráðs. Fjárfesta-
hópurinn var á þessum tíma enn
í mótun og faðir minn var beðinn
um að taka þátt í kaupunum, sem
og hann gerði.
4. Í fjórða og síðasta liðnum fjallar Kári um rútufélagið
Kynnisferðir. Segir Kári þá sögu
ganga að ekkert rútufyrirtæki hafi
notið meiri undanþágu frá fullum
virðisaukaskatti en „þessi gullmoli
fjölskyldu [Bjarna]“.
Kári heldur því næst fram að
Kynnisferðir hafi einkaleyfi á
akstri flugrútunnar og að sagan
segi að þetta einkaleyfi hafi fengist
hjá Isavia þar sem „náinn vinur
fjölskyldu [Bjarna]“, Ingimundur
Sigurpálsson, er stjórnarformaður.
Þessum dylgjum er auðsvarað.
Það er rangt sem Kári heldur fram
að einkaleyfi sé á akstri flugrútunn-
ar. Sérleyfi á akstri flugrútunnar var
við lýði þar til það var afnumið árið
2011 og í kjölfarið fór annað rútu-
fyrirtæki, Allrahanda, að bjóða upp
á akstur á sömu leið í beinni sam-
keppni við Kynnisferðir. Flugrútan
og önnur ferðaþjónusta, nema
hótel og bílaleigur, var undanþegin
virðisaukaskatti þar til 1. janúar
2016 þegar sú starfsemi var sett í
11% virðisaukaskattþrepið. Þegar
sú skattskylda var innleidd var
Bjarni nokkur Benediktsson fjár-
málaráðherra. Það er því fjarri lagi
að Kynnisferðir hafi notið forrétt-
inda umfram aðra í ferðaþjónustu.
Benedikt
Einarsson
lögmaður
Kári er margbrotinn maður
og það er erfitt að átta sig
á hvað honum gengur til
– hvort hann sé að brýna
Bjarna til góðra verka eða
hvort hann sé markvisst að
reyna að grafa undan trú-
verðugleika hans. Það er svo
sem aukaatriði í sjálfu sér
hvaða hvatir liggja að baki
skrifunum. Það sem meira
máli skiptir eru dylgjurnar
sem hann ber á borð.
Það er viðeigandi að ljúka þessari yfirferð
með ljóði eftir Pál J. Árdal.
Ef ætlarðu að svívirða saklausan mann,
þá segðu aldrei ákveðnar skammir um hann,
en láttu það svona í veðrinu vaka,
þú vitir, að hann hafi unnið til saka.
En biðji þig einhver að sanna þá sök,
þá segðu að til séu nægileg rök,
en náungans bresti þú helst viljir hylja,
það hljóti hver sannkristinn maður að skilja,
og gakktu nú svona frá manni til manns,
uns mannorð er drepið og virðingin hans,
og hann er í lyginnar helgreipar seldur,
og hrakinn og vinlaus í ógæfu felldur,
en þegar svo allir hann elta og smá,
með ánægju getur þú dregið þig frá,
og láttu þá helst eins og verja hann viljir,
þótt vitir hans bresti og sökina skiljir.
Og segðu hann brotlegur sannlega er
en syndugir aumingja menn erum vér,
því umburðarlyndið við seka oss sæmir,
en sekt þessa vesalings faðirinn dæmir.
Svo leggðu með andakt að hjartanu hönd,
með hangandi munnvikjum varpaðu önd,
og skotraðu augum að upphimins ranni,
sem æskir þú vægðar þeim brotlega manni.
Já, hafir þú öll þessi happsælu ráð,
ég held þínum vilja þú fáir náð,
og maðurinn sýkn verði meiddur og smáður,
en máske að þú hafir kunnað þau áður.
RÁÐNINGARRÁÐGJÖF RANNSÓKNIR
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
7 . a p r í l 2 0 1 7 F Ö S T U D a G U r12 S k o ð U n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
0
7
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:4
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
A
0
-4
1
F
C
1
C
A
0
-4
0
C
0
1
C
A
0
-3
F
8
4
1
C
A
0
-3
E
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
6
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K