Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1972, Blaðsíða 9
kvilla. Meðferðin er mjög um-
fangsmikil og tímafrek og gerir
miklar kröfur til foreldra og að-
standenda barnanna. Mikilvægt
er, að sjúklingar séu undir
reglubundnu lækniseftirliti, til
þess að unnt sé að grípa fljótt
inn í, ef ástand þeirra versnar.
Meltingarfæri: Leitazt er við að
halda sjúklingum í sem beztu
næringarástandi. Þeim er gefin
fæða, sem er hitaeininga- og
eggjahvíturík, en fitusnauð.
Bætiefnagjöf er þýðingarmikil
og fá sjúklingar gjarnan tvö-
faldan venjulegan dagsskammt
allra bætiefna. Til að sjúklingar
geti nýtt fæðuna sem bezt, þarf
að gefa þeim briskirtilshvata.
Efnið er gefið með hverri mál-
tíð. Skammturinn er einstak-
lingsbundinn. Sé skammturinn
fullnægjandi, verða hægðir eðli-
legar, og jafnframt veldur betxú
nýting fæðunnar því, að hin gíf-
urlega matarlyst verður minni.
Öndunarfæri: Sú hlið meðferð-
arinnar, sem að öndunai’færum
snýi’, hefur tvenns konar til-
gang: annai’s vegar að koma í
veg fyrir sýkingu í öndunarfær-
um og hins vegar að útiýma
þeirri sýkingu, sem náð hefur
fótfestu. Til að koma í veg fyrir
sýkingu er beitt gufumeðfei’ð,
öndunarmeðferð og lyfjameð-
fei'ð.
Markmiö gufumeöferöar er að
sjá sjúklingum fyrir vatnsmett-
uðu öndunai’lofti, sem þynnir
slím í bei’kjum og losar um það,
þannig að sjúklingurinn eigi
auðveldai-a með að hósta því
upp. Þessi meðferð er viðhöfð
á hverri nóttu, þegar sjúkling-
urinn sefur, og í hvíldartíma á
daginn. Sérstakan tækjaútbún-
að þai’f til þessarar meðferðar
(mynd 2). Barnið liggur í plast-
tjaldi. Til tjaldsins er leidd guf-
an, sem framleidd er með há-
tíðnibylgjum, sem sendar ei’u
gegnum vökva. Nauðsynlegt er
að nota dauðhi’einsað vatn til
gufuframleiðslunnar til að forð-
ast, að sýklar setjist að í gufu-
tækinu. í vatnið er bætt efni,
sem eykur notagildi gufunnar
með því að hafa áhrif á yfir-
borðsspennu di'opanna. Oftast
er til þessa notað propylen gly-
col, en einnig má nota salt.
Markmiö öndunarmeöferöar er
að losa um og fjai’lægja slím úr
öndunarfærum. Meðfei’ðin er
nxeð þi’ennum hætti:
1) Sjúklingi er hallað og velt,
þannig að þyngdarlögmál-
ið hjálpi til við tæmingu
slímsins úr berkjunum.
2) Bankað er á bi’jóstkassa
sjúklings yfir þeim hluta
lungans, sem verið er að
hreinsa.
Fram. á bls. 117.
Báðir foreldrar
hata
eiginleikann
Annað foreldrið
hefur
eiginleikann
1 barn hefur fibrosis cystica
2 börn hafa eiginleikann
1 barn hefur ekki eiginleikann
2 börn hafa eiginleikann
2 börn hafa ekki eiginleikann
arfhreinn
einstaklingur
(heterozygot)
narfblendinn
einstaklingur
(homozygot)
I I eðlilegur
einstaklingur
!• mynd.
2. myná.
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 83