Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1972, Blaðsíða 42
mál. Voru margar fyrirspurnir born-
ar fram af félagskonum, og fengust
góð svör við þeim öllum. Urðu fjör-
ugar umræður um almannavarnir al-
mennt.
Þriðji fundurinn var haldinn í
febrúar. Hafði deildinni borizt bréf
frá bæjarstjóranum á ísafirði, þar
sem í voru frumdrög að byggingar-
lýsingu á fyrirhuguðu sjúkrahúsi og
heilsugæzlustöð fyrir ísafjörð og ná-
grenni.
Var deildin beðin að semja álit um
byggingarlýsinguna og bæta því inn
í, sem að hennar dómi vantaði í hana.
Þetta verk vann stjórnin, og voru
athugasemdir hennar síðan lagðar
fram á fundinum, ræddar, endur-
bættar og síðan samþykktar.
Voru þær síðan sendar bæjar-
stjóra með þeirri ósk, að við mættum
fylgjast með framgangi málsins.
Næst skeður það í þessu máli, að
bæjarstjórn Isafjarðar biður Hjúkr-
unarfélag Islands að tilnefna tvo
fulltrúa úr félaginu, sem geti starf-
að með arkitekt og læknum að undir-
búningi þessa máls.
Var ákveðið eftir ýtarlega athug-
un að velja tvær hjúkrunarkonur
staðsettar í Reykjavík, vegna þess að
þetta verk yrði að öllu leyti unnið
þar,
Völdust til þess Sigríður Jakobs-
dóttir og Anna Guðrún Jónsdóttir,
en Kristrún Guðmundsdóttir, búsett á
Isafirði, á að vera þeim til aðstoðar.
Væntum við mikils af þessu sam-
starfi.
Nú hefur verið lögð fram önnur
byggingalýsing, sem stjóni deildar-
innar hefur endurbætt eftir beztu
getu, og var hún síðan send þeim að-
ilum í Reykjavík, sem vinna að und-
irbúningi að byggingu nýs sjúkra-
húss og heilsugæzlustöðvar á Isa-
firði.
Fjórði og síðasti fundurinn var
haldinn 30. apríl s.l., og var það aðal-
fundur deildarinnar. Var samþykkt
á þeim fundi að vinna eftir beztu
getu að framgangi sjúkrahúsmálsins.
Munum við beita okkur fyrir því
af öllum mætti, að nýtt sjúkrahús
og heilsugæzlustöð rísi hér sem fyrst
og verði þannig, að aðstaða komi til
meiri og betri heilbrigðisþjónustu í
okkar heimahéraði.
Síðan var ákveðið að safna fé til
kaupa á einhverju af þeim tækjum,
sem tilfinnanlega vantar í sjúkra-
húsið.
Reikningar deildarinnar voru lesn-
ir upp og samþykktir.
Þær, sem áttu að ganga úr stjórn,
voru endurkosnar.
Guðrún Gisladóttir.
formaður.
II<‘iinilissjó)liur
Gjöld Iteksl rarroikningur
Rekstur á Þingholtsstræti 30. Viðhald Hiti, í'æsting og opinber gjöld .... -=- Endurgi-eitt af leigjendum .... Kr. 27.000.00 — 15.716.50 Kr. 678.00 — 11.283.50
Vextir af lánum Gjöf til sumarhúss í Mosfellssv. . . Rekstrarhagnaður — 37.745.03 — 10.000.00 — 154.398.01
Kr. 214.104.54
Eignir Efnahagsreikningnr
Hæð í Þingholtsstræti 30 Bankainnstæður Hlutabréf (Loftleiðir) Skuldabréf (Guðrún Jónsdóttir). Kr. 2.000.000.00 — 320.909.80 — 3.000,00 — 96.000.00
Kr. 2.419.909.80
Minuiujíarsjóiiur llans Adolfs lljnrfarsonar —
Aánis- og feriVasjóiVur II F I
I'|i|igj iir fyrir áriiV 1SI71
Innstæða í bók nr. 1289
í Landsbanka Islands pr. 1. jan. 1971 ..
Minningargjafir 1971:
Boi'garspítalinn ..................
Landspítalinn .....................
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur . .. .
Akranesdeild HFl ..................
Skrifstofa HFl ....................
Aheit ..................................
Endurgreiddur námsstyrkur frá
Rannveigu Jónasdóttur .............
Auði Angantýsdóttur veittur styrkur
ársins 1971 ......................
Vextir pr. 31. 12. 1971 ................
Mismunur pr. 31. 12. 1971 ..............
Kr. 271.064.30
— 1.650.00
— 1.200.00
— 2.000.00
— 1.000.00
— 6.100.00
— 1.100.00
— 20.000.00
— 22.081.40
Kr. 22.000.00
— 304.195.70
Kr. 326.195.70 Kr. 326.195.70
Inneign pr. 1. 1. 1972
í sparisjóðsb. 1289, Landsbanka íslands . . Kr. 304.195.70
112 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS