Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1972, Blaðsíða 43
Hjúkrunaríólags íslands
árid 1»71 Tekjur
Húsaleiga frá leigjendum ........ Kr. 174.000.00
Vaxtatekjur af láni ............. — 8.960.00
Vaxtatekjur af bankainnstæðum . . — 15.783.30
Arður af hlutabréfi ............. — 2.700.00
Minningargjafir og áheit ........ — 12.661.24
Kr. 214.104.54
31. des. 1071 Skulilir
Lífeyrissjóður Hjúkrunarfélags íslands Kr. 362.444.17
Sami 122.407.30
Lán frá hjúkrunarkonu Skuldlaus eign 31/12 Tekjuafgangur Kr. 1.780.160.32 — 154.398.01 — 500.00 — 1.934.558.33
Kr. 2.419.909.80
Endurskoðað
Reykjavík, 5/5 ’72.
Lilja Harðardóttir.
Fjóla Tómasdóttir.
Miuniiigarsj ú«lur
Guilrúnar Gísladóttur Ujörns
Vppgjðr íyrir áriö 1971
Jan. 1. Inneign í banka f. f. ári ......... kr. 72.287,90
Des. 31. Sala minningarkorta 1971 ......... — 4.425,00
— 31. Vextir af bankainnstæðum ............ — 6.126,00
kr. 82.840,90
— 31. Til næsta árs:
Innstæða í spsj. bók nr. 11027 .......... kr. 19.616,00
Innstæða í spsj. bók nr. 6420 ........... — 63.224,90
kr. 82.840,90 kr. 82.840,90
Reykjavik, 7. mai 1972.
Agnes Jóhannesdóttir.
Gerða Ásrún Jónsdóttir.
Hertlia W. Jónsdóttir.
Höfum endurskoðað og samþykkt.
Reykjavík, 5. maí 1972.
Lilja Harðardóttir.
Fjóla Tómasdóttir.
Ársskýrsla
Akranesdeildar II F í
AÐALFUNDUR var haldinn í deild-
inni 2. nóv. s.l. og fór þá fram stjórn-
arkjör.
Úr stjórn gengu:
Þóra Björk Kristinsdóttir, form.
Ásthildur Einarsdóttir, ritari.
Jónína Halldórsdóttir, gjaldkeri.
I stjórn voru kosnar:
Brynja Einarsdóttir, form.
Ragnhildur Theódórsdóttir, ritari.
Guðrún Víkingsdóttir, gjaldkeri.
Fundir hafa verið haldnir einu
sinni í mánuði og verið vel sóttir.
Buðum við hjúkrunarkonum úr Borg-
arnesi og nágrenni að heimsækja
okkur, sem þær hafa gert eftir ástæð-
um. Við höfum leitazt við að efla
þekkingu okkar og þá aðallega með
því að fá lækna sjúkrahússins til að
flytja erindi og svara fyrirspurn-
um. Þeir læknar, sem það hafa gert
í vetur, eru: Jóhann Guðmundsson,
sérfræðingur í ortopedískum sjúk-
dómum, sem talaði um aðgerðir í
mjaðmalið o. fl. Guðjón Guðmunds-
son, sérfræðingur í almennum hand-
lækningum, er talaði um sjúkdóma í
nrostata. Og nú síðast Jón Jóhanns-
son, aðstoðai'læknir á lyfjadeild, er
fræddi okkur um ýmis lyf, meðferð
þeirra og áhrif. Einnig fengum við að
láni fræðslumynd, er fjallaði um sýk-
ingar á sjúkrahúsum, og var einnig
sýnd starfsfólki sjúkrahússins.
Aðalstarf deildarinnar hefur ver-
ið bókasafn sjúkrahússins. Það var
í mestu óreiðu, og tókum við að okk-
ur að skrásetja það og setja bækurn-
ar í plastkápur. Er þetta unnið und-
ir stjórn sérmenntaðs bókavarðar,
Stefaníu Eiríksdóttur, sem hefur með
höndum stjórn Bókasafns Akraness.
Höfum við unnið við þetta að meðal-
tali einu sinni í viku, þar til við urð-
um að hætta nýlega vegna anna
bókavarðarins við Bæjarbókasafnið.
En hún hefur tjáð okkur, að reynt
verði að fá nema í þessum fræðum
til vinnu í sumar og muni hún þá
ljúka við skráningu okkar safns.
Við höfum unnið að því að efla
bókakostinn, sótt í því sambandi um
styrk úr bæjarsjóði Akraness, um 10
þús. kr., og er það í athugun. Enn-
fremur mun sjúkrahúsið láta af
hendi rakna 10 þús. kr. Ríkið veitir
árlega styrk til sjúkrahúsbókasafna,
sé um hann sótt. Er það eitthvað
ákveðið miðað við sjúklingafjölda,
eða um 20 þús. kr., sem við gerum
okkur vonir um að fá. Fyrir um það
bil mánuði skrifuðum við bréf, er við
sendum til ýmissa bókaforlaga, þar
sem við sögðum frá starfi okkar við
safnið og nauðsyn á að efla það. Sem
sagt, við báðum þau um aðstoð. Hafa
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 113