Fréttablaðið - 10.04.2017, Side 2
2
FRtTTIR ■ FRÉTTABLAÐIÐ
10. APRÍL 2017 MÁNUDACUR
Veöur
■*! cO
Grunur um ólöglegar rannsóknir
2*4-5
Ö
2*4-5
-r* I
Suðaustanátt og slydda eða snjókoma
sunnan-ogvestantil. Rigníngvið
suðvesturströndina. Dálitil snjókoma
norðan-ogaustanlands SJÁSÍÐU22
Milljónir
manna í hættu
Maria Pálsdóttir að setja sig í spor hjúkrunarkonu frá timabilinu. mynd aðsend
ábendingar og það er dásamlegt,
þetta tengist eiginlega inn í allar
fjölskyldur landsins."
María tekur þátt í viðskiptahrað-
linum Startup Tourism um þessar
mundir, en þeim tíu vikna hraðli
lýkur í lok mánaðarins. Hún segir
það mjög gott að hafa aðgang að
öðrum í sömu sporum, sem og
leiðbeinendunum sem koma að
hraðlinum. „Við erum öll með
margar sömu spurningarnar og
svipuð vandamál til að leysa. Ég er
búin að hitta fullt af frábæru fólki
sem er búið að hjálpa mér.“
María leitar nú eftir fjárfestum
inn í verkefnið en þann 28. apríl
stendur Startup Tourism að opnum
fjárfestadegi þar sem hægt verður að
hlusta á kynningar allra teymanna.
saeunn(a)frettabladid.is
Á meðal verkefna í
Startup Tourism í ár
• Traustholtshólmi: Einstök eyj
í Þjórsá sem verið er að þróa
sem sjálfbæran og umhverfis
vænan áfangastað
• Coldspot: Boðar nýjan
ferðamáta, hverferð verður
einstakt sambland af likam-
legri áskorun, ferðalagi inn á
við, mögnuðum upplifunum
náttúru, og stafrænni afeitru
• Bergrisi: Hugbúnaðurinn Álf-
heimar sem heldur utan um
rafræn viðskipti
• Arctic Trip: Nýstárlegar og sai
félagslega ábyrgar ferðir á og
við Grímsey
AFRiKA Hungursneyð ríkir nú í Suð-
ur-Súdan og að auki eru Jemen, Níg-
ería og Sómalía á barmi hungurs-
neyðar. Ástandið er það versta frá
stofnun Sameinuðu þjóðanna fyrir
rúmum 70 árum, segir í tilkynningu
frá UNICEF á íslandi sem hefur í dag
neyðarsöfnun fyrir vannærð börn á
þessum stöðum.
„Þegar hafa fjölmargir hér á landi
stutt við neyðaraðgerðir UNICEF
í Suður-Súdan og það veitir oklcur
von að finna þann mikla stuðning.
Þar sem hungursneyð vofir nú yfir i
þremur ríkjum til viðbótar höfum
við ákveðið að blása til sérstakrar
neyðarsöfnunar til að bregðast við
þessum fordæmalausu aðstæðum,"
segir Bergsteinn Jónsson, fram-
kvæmdastjóri UNICEF á fslandi.
Nærri 1,4 milljónir barna eru í
lífshættu í löndunum fjórum og
gætu dáið af völdum alvarlegrar
vannæringar. Alls ógnar hungurs-
neyð nú lífi allt að 20 milljóna
manna. Hægt er að styrkja söfnun-
ina með því að senda sms-ið BARN
í nr. 1900 og verða þá gjaldfærðar
1.000 lcrónur.-jhh
KS hagnast um
1,3 milljaröa
VIDSKIPTI Hagnaður Kaupfélags
Skagfirðinga á síðasta ári var 1.367
milljónir króna. Frá þessu er greint
í Feyki en aðalfundur Kaupfélagsins
fórffam um helgina í matsal Kjötaf-
urðastöðvarinnar á Sauðárkróki.
Þórólfur Gislason kaupfélags-
stjóri sagði á fúndinum að rekstur á
síðasta ári hafi verið sambærilegur
og árið2015.
Heildartekjur kaupfélagsins
lækkuðu lítið milli ára og voru
31,2 milljarðar árið 2012. Þá var
rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og
fjármagnsliði 4,2 milljarðar sem er
sama tala og árin 2015 og 2014.
Laun og launatengd gjöld voru 7,5
milljarðar króna á síðasta ári. Eigið
fé, ásamt hlutdeild minnihluta, nam
27,8 milljörðum króna í árslok. - þea
Rannsóknarskipið Seabed Constructor við bryggju í Reykjavík. Grunur er um að skipið hafi stundað ólöglegar rannsóknir í lögsögu íslands. „Við
fengum óljós og misvísandi svör og sáum því ástæðu til að kanna máliö frekar,” sagði Georg Kr. Lárusson, forstjóri Gæslunnar. fréttablaðið, eyþór
Fjöldamótmæli
víöa í Serbíu
SERBiA Hundruð þúsunda hafa mót-
mælt kjöri Aleksandars Vucic, nýs
forseta Serbíu, frá kosningunum sem
fóru fram 2. apríl síðastliðinn. Var
gærdagurinn engin undantelcning og
greindi Independent frá því að þús-
undir hefðu barið í potta og pönnur
fyrir utan stjómarráðshús Serbíu.
Tveggja umferða kosningakerfi
er í Serbíu en ekki þurfti að kjósa
tvisvar þar sem Vucic fékk 55 prósent
atkvæða í fyrstu umferð. Næstflest
atkvæði fékk Sasa janlcovic, sextán
prósent.
Samkvæmt AP eru flestir mót-
mælenda nemar. Telja mótmælendur
flokk Vucic, SPP, spilltan og hafa hag-
rætt kosningunum með þvi að koma í
veg fyrir að ríkisfréttastofan RTS upp-
lýsti almenning.
Þá segir í frétt Independent að
mótmælendur telji sig ekki fá fjöl-
miðlaathygli sem skyldi ogfjölmiðlar
hundsi mótmælin vísvitandi. - þea
Setur upp sýningu á
gamla berldahælinu
Stefnt er aö opnun á setri um sögu berklanna í maí 2018. Frumkvööullinn aö
baki setursins tekur þátt í viöskiptahraólinum Startup Tourism. Hún segir
gaman fyrir feröamenn aö kynnast líka erfiöleikum í sögu lands.
VIDSKIPTI „Þetta er þannig að ég
ætla að opna í maí 2018 setur um
sögu berklanna, annars vegar sýn-
ingu og hins vegar kaffihús sem
verður í anda fjórða áratugar síð-
ustu aldar. Þetta verður á Kristnesi
sem er dásamlegur staður, tíu kíló-
metra sunnan við Akureyri. Þar var
annað berklahæli landsins reist árið
1927,“ segir María Pálsdóttir, leik-
kona og frumkvöðull.
„Þetta eru æskustöðvarnar mínar.
Hugmyndin kviknaði þegar ég var
að rölta þarna um og sá hvernig
hlutirnir voru aðeins að drabbast
niður. Ég ákvað að gera eitthvað í
málunum," segir María.
Hún segir sögu berklana ein-
staklega merkilega og er hún búin
að sökkva sér ofan í hana síðast-
liðið árið. „Þetta er stórmerkilegur
tími og svakalegur sjúkdómur sem
geisaði hérna snemma á 20. öldinni.
Engin lyf voru til fyrr en upp úr
miðri öldinni. Fólk var tekið og sett
í einangrun, margir voru ungir og
vissu ekki hvort þeir næðu þrítugs
aldri," segir María.
Sýningin mun vera upplifunar-
tengd. „Eg vil hafa þetta meira eins
og leikhús, að fóllc gangi inn í ein-
hvern heim. Það verða sjónrænar
lausnir, myndir, myndupptökur,
og hljóðheimur. Markmiðið er að
fræða fólk um þennan sjúkdóm og
segja þessar persónulegu sögur sem
eru margar magnaðar," segir María.
Hún hefur stofnað Facebook-síðu
í kringum setrið og biðlar til fólks
sem hefur áhugaverða sögu að segja
af ættingjum með berkla, eða á ljós-
myndir eða muni frá berklatíman-
um, að hika eklci við að senda slcila-
boð. „Mér eru endalaust að berast