Fréttablaðið - 10.04.2017, Qupperneq 6
6
FRÉTTIR • FRÉTTABLAÐIÐ
10. APRÍL 2017 MÁNUDAGUR
Björguöu 19 frá
sjóræningjum
SÓMALÍ A Nítján meðlimum áhafnar
túvalúsks gámaskips var bjargað
undan sómölskum sjóræningjum á
Adenflóa í gær. Snemma í gærmorg-
un sendi áhöfnin út neyðarkall.
Sltip frá þremur löndum brugðust
skjótt við. Komu herskip frá Ind-
landi, Kína og Pakistan áhöfninni til
bjargar en meðlimir áhafnar höfðu
læst sig inni í öryggisbyrgi skipsins
sem var sérstaklega hannað fyrir
uppákomur sem þessa.
I yfírlýsingu frá indverska hernum
segir að sjóræningjarnir hafí verið
farnir þegar kínverskir hermenn
fóru um borð í túvalúska skipið.
Fyrsta sjórán sómalskra sjóræn-
ingja í fimm ár var framið í mars-
mánuði. Var þetta því annað sjó-
ránið á skömmum tíma. - þea
Uber gert aö
fara frá Ítalíu
iTALlA Leigubílaþjónustunni Uber
hefur verið gert að hætta allri starf-
semi á Ítalíu. Reuters greindi frá
og sagði dómstól í Róm kveða upp
dóm þess efnis þar sem Uber sé
ósanngjörn samkeppni við hefð-
bundna leigubílaþjónustu.
Rökstuðningurinn að baki dómn-
um er sá að Uber sé samgöngufyrir-
tæki sem virði ekki lög um sam-
göngur. Samgönguyfirvöld fái til
að mynda eklti að ákveða fargjald.
Þar af leiðandi gætu hefðbundnar
leigubílaþjónustur ekki verið sam-
keppnishæfar í verði. - þea
Hungursneyö yfirvofandi
Sómalskur maður á sínu nýja heimili, tjaldbúðunum í Kaxda-úthverfi höfuðborgarinnar Mogadishu. Sómalía er á barmi sinnar þriðju hungursneyðar í 25
ár. AFP greindi frá þessu í gær. í síðustu hungursneyð, árið 2011, létust 260.000 manns. Þar af helmingurinn börn undir fimm ára aldri. nordicphotos/afp
Konur greiöa meölag í auknu mæli
Kvenkyns meölagsgreióendum hefur fjölgaö undanfarin ár þrátt fyrir aö einstæöir feöur séu enn einungis eitt prósent affjölskyldu-
mynstrum íslendinga. Forstööumaöur hjá Innheimtustofnun sveitaifélaga segir engan mun á karlkyns og kvenkyns greiöendum.
SAMFÉLAC Konum sem greiða með-
lag vegna bama sinna hefúr fjölgað
um 76 prósent frá aldamótum og
hafa nú aldrei verið fleiri. Konur eru
nú um sex prósent þeirra sem greiða
meðlag vegna bama sinna.
Árið2016greiddu 727konurmeð-
lag samanborið við 409 árið 2001.
Töluvert stökk var í hlutfalli kvenna
á meðal meðlagsgreiðenda árið 2012
en þá fjölgaði konum um 125 á milli
ára, og urðu 674 talsins. Síðan hefúr
konum á meðal meðlagsgreiðenda
fjölgað jafntogþétt
Konur eiga þó ekkert í karla sem
greiða meðlag en 10.989 karlar greiða
meðlag á íslandi, samkvæmt tölum
frá Innheimtustofnun sveitarfélaga.
Á sama tíma hefur einstæðum
Börn koma frá ólíkum fjölskyldum. fréttabladio, vilhelm
2f
II
<S:
S'rl
fl|
III
121
fi!
III
Beltone Legend'"
Enn snjallara
heyrnartæki
Nýja Beltone Legend™ heyrnartækið tengist þráðlaust
beint í iPhone, iPad og iPod touch. Komdu í ókeypis
heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki
lánað til reynslu.
HEYRNARSTÖÐIN
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
feðrum fjölgað um tæplega 60 pró-
sent. Árið 2016 voru þeir 1146 tals-
ins en um aldamótin voru þeir 720
talsins. Einstæðum mæðrum hefur á
sama tíma ijölgað um 22 prósent sem
helst noklturn veginn í hendur við
mannfjöldaþróun en íslendingum
hefur fjölgað um 19 prósent frá alda-
mótum til ársins 2016, miðað við
tölur frá Hagstofú íslands.
„Þetta er svona eitt af fjölmörgu
sem sýnir hvernig samfélagið er að
breytast á margvíslegan hátt. Ef að
fólk er í raun að skipta börnunum
jafnt á milli sín þá hlýtur þetta að
vera réttiátt en svo þarf auðvitað að
taka tillit til launa og aðstöðu for-
eldra,“ segir Kristín Astgeirsdóttir,
framkvæmdastýra Jafnréttisstofu.
„Meðlagið var tekið upp á sínum
tíma, snemma á tuttugustu öldinni,
til að tryggja mæðrum að þær hefðu
nú eitthvað fyrir sig og börnin sín.
Þær voru yfirleitt á miklu miklu
lægri launum og margar mjög
fátækar. Ég held að þetta beri vott
um það að fólk sé í samkomulagi
að skipta þessu á milli sín enda er
þetta til að tryggja barninu betri
aðbúnað."
Bragi R. Axelsson, hjá Innheimtu-
stofnun sveitarfélaga, segir að stofn-
unin finni ekki mun á ltvenlcyns
meðlagsgreiðendum og karlkyns
þegar kemur að skilum. Um ára-
mót haf! tólf konur fengið afskrifaða
meðlagsskuld, að hluta eða í heild.
snaeros@frettabladid.is