Fréttablaðið - 10.04.2017, Síða 24
10. APRÍL 2017 MÁNUDAGUR
*
\
Við erum komin í
við hliðina á Bónus
Þjónustumiðstöð
tónlistarfólks
TONASTODm
Allt fyrir tón 1 istarmanninn
y,'55ír I°iá
Barnaheill
Save the Children á íslandi
Pö r'etdL™' bera
i!K(KrO\e^rr
yn&Qtft ccb/r
, cxndle^ OJ féicxpte.^
Siftrlí*,
ÚrÁlfahöllinni i Þjóðleikhúsinu i leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar. mynd/hörður sveinsson
Á álfaeyrunum
LEIKHÚS
Álfahöllin
eftir Þorleif Örn Arnarsson
Þjóðleikhúsið
Handrit: Jón Atli Jónasson og Þor-
leifurörn Arnarsson
Leikarar: Aldis Amah Hamilton,
Arnar Jónsson, Alti Rafn Sigurðar-
son, Baldur Trausti Hreinsson,
Hallgrimur Ólafsson, Lára Jóhanna
Jónsóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir,
Ólafur Egill Egilsson, Sigurður Þór
Óskarsson, Vigdís Hrefna Pálsdóttir
og Þórir Sæmundsson
Leikstjórn: Þorleifurörn Arnarsson
Tónlist ogtónlistarstjórn: Arnbjörg
María Daníelsen
Hljóömynd: ArnbjörgMaría Daníel-
sen og Elvar Geir Sævarsson
Leikmynd: Börkur Jónsson
Búningar: Sunneva Ása Weiss-
happel
Lýsing: Jóhann FriðrikÁgústsson
Myndbandshönnun:Gaukur
Úlfarsson
Dramatúrg: Símon Birgisson og
Uwe Gössel
Leikhúsið speglar alltaf samtímann
á einhverskonar hátt, allt frá verk-
efnavali til viðtöku áhorfenda á
efninu. En leikhúsið og sviðslista-
fólk þarf ávallt að endurskilgreina
tilgang sinn og fínna nýjar leiðir til
að tengjast áhorfandanum. í Álfa-
höllinni gerir leikstjórinn Þorleifur
Örn Arnarsson, í slagtogi við hóp
listafólks, tilraun til að varpa fram
hugmyndum um gildi og tilgang
sviðslista, fjalla um sögu Þjóðleik-
hússins og íslenskan samtíma. Allt
í einni sýningu, niðurstaðan er mis-
jöfn.
Þegar tjaldið er dregið frá stóra
sviðinu blasir við einskonar spegil-
mynd af sviðinu: forsetasvalirnar
eru orðnar fjórar og litið svið situr
aftast, listilega hannað af Berki jóns-
syni. Sviðsmyndin er síðan felld
fallega saman síðar í sýningunni.
Sunneva Ása Weisshappel hannar
búningana en leyfir sér óþarfa prjál
og sýndarmennsku í búningavali
sem skilar litlu. Það eru grunnbún-
ingarnir, svartar buxur og hvítar
skyrtur, sem eru áhrifaríkastir.
Jóhann Friðrik Ágústsson vinnur
lýsinguna einstaklega vel, þá sér-
staklega í dimmbláa lokakaflanum.
En lítið fer fyrir tónlist Arnbjargar
Maríu Daníelsen en tónfistarstjórn
og hljóðmynd bæta það upp, sú
síðari er í samvinnu við Elvar Geir
Sævarsson.
Leikskáldið Guðmundur Steins-
son var þekktur fyrir að vinna lengi
að sínum handritum og endurskrifa
oft til að finna hárrétta tóninn.
Þorleifur Örn og Jón Atli Jónas-
son mættu temja sér slíkan aga en
sýningin skoppar stöðugt milli
misgóðra hugmynda, þó er hraður
hóplestur á atriði úr Stundarfriði
eftir Guðmund hugvitsamleg og
skemmtilega súr. Annars saman-
stendur fyrri hluti Álfahallarinnar af
textabrotum, sögulegum samtíningi
og innslögum um þekktar sýningar
Þjóðleikhússins. Hlé sýningar er
ágætis merki um þann hrærigraut
sem sýningin er: allskonar innslög
sem skilja mismikið eftirsig.
{þessari höll álfanna skiptir sam-
vinna leilrhópsins mestu en Ólafía
Hrönn Jónsdóttir er álfadrottn-
ingin sem leiðir oldtur í gegnum
sýninguna, Arnar Jónsson er álfa-
lróngurinn og Þórir Sæmundsson
er hirðfíflið klæddur sem Ronald
McDonald. Allir fá tældfæri til að
leggja hönd á plóg þar sem mörkin
á milli persóna og feikenda eru
óljós. Flestir standa sig meö ágæt-
um en kaldhæðnishúmorinn verð-
ur stundum þreyttur. Aldís Amah
og Vigdís Hrefna eru með kómíslcu
timasetningarnar á hreinu, Sig-
urður Þór hefur verið vannýttur í
ár enda fínasti leilcari og reyndari
einstaklingar eins og Ólafur Egill,
Atli Rafn og Baldur Trausti leysa
sín verkefni eins og að drekka vatn.
Veilcustu hlekkimir eru Þórir og
Lára Jóhanna en þau eiga bæði til
að vera eintóna.
En skilaboðin þarf ekki að tyggja
ofan í áhorfendur. Álfaeyrun og
undirstrikanir eru óþarfi. Eins og
sagt er í sýningunni: það þarf ekki
að lesa Sjálfstætt fólk til þess að
skilja bókina. Áhorfendur þurfa
ekki útskýringar á meðan á sýn-
ingu stendur né að skilaboðin séu
mötuð ofan i þá, eins og er reyndar
bókstaflega gert rétt fyrir hlé með
þjóðarkökunni.
Verra er að kraftmesta atriði
sýningarinnar dofnar vegna þess
að upplýst var um innihald hennar
í blöðunum fyrir sýningu. Ræða
Ólafíu Hrannar um fátækt á íslandi
er áhrifamikil og hjartnæm en
kemur lítið á óvart bæði í innihaldi
og sviðsrænni útfærslu. Það eru klár
forréttindi að verða vitni að Arnari
fara með brot úr einu sínu þekkt-
asta hlutverld sem lokar sýningunni
á eftirminnilegan hátt. Á þessum
lokametrum nær Þorleifur Örn að
lenda smiðshögginu en samt sem
áður eru þessar tvær senur alveg á
skjön við annað sem á undan hefur
komið.
Sýningin sveigist og beygist í allar
áttir en skortir skýra stefnu sem má
lcannski rekja til þess að tveir hand-
ritshöfundar, tveir dramatúrgar og
tuttugu-og fimm meðhöfundar eru
skrifaðir fyrir handritinu. Þorleifur
Örn er einn af okkar bestu leik-
stjórum en þarf sterkari ramma
til að njóta sin. Álfahöllin er skjá-
skot af samtímanum en berst viö
svipaða galla og tölvuvædda til-
vist okkar: á sínum bestu stundum
er hún skondin, ögrandi og hittir
beint í mark en alltof oft dettur hún
niður í sjálfhverfu, smábrandara og
sniðugheit.
Sigríður Jónsdóttir
NIÐURSTAOA:Athyglisverð sviðs-
listarsamsuða sem skortir aga.