Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.04.2017, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 10.04.2017, Qupperneq 24
10. APRÍL 2017 MÁNUDAGUR * \ Við erum komin í við hliðina á Bónus Þjónustumiðstöð tónlistarfólks TONASTODm Allt fyrir tón 1 istarmanninn y,'55ír I°iá Barnaheill Save the Children á íslandi Pö r'etdL™' bera i!K(KrO\e^rr yn&Qtft ccb/r , cxndle^ OJ féicxpte.^ Siftrlí*, ÚrÁlfahöllinni i Þjóðleikhúsinu i leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar. mynd/hörður sveinsson Á álfaeyrunum LEIKHÚS Álfahöllin eftir Þorleif Örn Arnarsson Þjóðleikhúsið Handrit: Jón Atli Jónasson og Þor- leifurörn Arnarsson Leikarar: Aldis Amah Hamilton, Arnar Jónsson, Alti Rafn Sigurðar- son, Baldur Trausti Hreinsson, Hallgrimur Ólafsson, Lára Jóhanna Jónsóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Ólafur Egill Egilsson, Sigurður Þór Óskarsson, Vigdís Hrefna Pálsdóttir og Þórir Sæmundsson Leikstjórn: Þorleifurörn Arnarsson Tónlist ogtónlistarstjórn: Arnbjörg María Daníelsen Hljóömynd: ArnbjörgMaría Daníel- sen og Elvar Geir Sævarsson Leikmynd: Börkur Jónsson Búningar: Sunneva Ása Weiss- happel Lýsing: Jóhann FriðrikÁgústsson Myndbandshönnun:Gaukur Úlfarsson Dramatúrg: Símon Birgisson og Uwe Gössel Leikhúsið speglar alltaf samtímann á einhverskonar hátt, allt frá verk- efnavali til viðtöku áhorfenda á efninu. En leikhúsið og sviðslista- fólk þarf ávallt að endurskilgreina tilgang sinn og fínna nýjar leiðir til að tengjast áhorfandanum. í Álfa- höllinni gerir leikstjórinn Þorleifur Örn Arnarsson, í slagtogi við hóp listafólks, tilraun til að varpa fram hugmyndum um gildi og tilgang sviðslista, fjalla um sögu Þjóðleik- hússins og íslenskan samtíma. Allt í einni sýningu, niðurstaðan er mis- jöfn. Þegar tjaldið er dregið frá stóra sviðinu blasir við einskonar spegil- mynd af sviðinu: forsetasvalirnar eru orðnar fjórar og litið svið situr aftast, listilega hannað af Berki jóns- syni. Sviðsmyndin er síðan felld fallega saman síðar í sýningunni. Sunneva Ása Weisshappel hannar búningana en leyfir sér óþarfa prjál og sýndarmennsku í búningavali sem skilar litlu. Það eru grunnbún- ingarnir, svartar buxur og hvítar skyrtur, sem eru áhrifaríkastir. Jóhann Friðrik Ágústsson vinnur lýsinguna einstaklega vel, þá sér- staklega í dimmbláa lokakaflanum. En lítið fer fyrir tónlist Arnbjargar Maríu Daníelsen en tónfistarstjórn og hljóðmynd bæta það upp, sú síðari er í samvinnu við Elvar Geir Sævarsson. Leikskáldið Guðmundur Steins- son var þekktur fyrir að vinna lengi að sínum handritum og endurskrifa oft til að finna hárrétta tóninn. Þorleifur Örn og Jón Atli Jónas- son mættu temja sér slíkan aga en sýningin skoppar stöðugt milli misgóðra hugmynda, þó er hraður hóplestur á atriði úr Stundarfriði eftir Guðmund hugvitsamleg og skemmtilega súr. Annars saman- stendur fyrri hluti Álfahallarinnar af textabrotum, sögulegum samtíningi og innslögum um þekktar sýningar Þjóðleikhússins. Hlé sýningar er ágætis merki um þann hrærigraut sem sýningin er: allskonar innslög sem skilja mismikið eftirsig. {þessari höll álfanna skiptir sam- vinna leilrhópsins mestu en Ólafía Hrönn Jónsdóttir er álfadrottn- ingin sem leiðir oldtur í gegnum sýninguna, Arnar Jónsson er álfa- lróngurinn og Þórir Sæmundsson er hirðfíflið klæddur sem Ronald McDonald. Allir fá tældfæri til að leggja hönd á plóg þar sem mörkin á milli persóna og feikenda eru óljós. Flestir standa sig meö ágæt- um en kaldhæðnishúmorinn verð- ur stundum þreyttur. Aldís Amah og Vigdís Hrefna eru með kómíslcu timasetningarnar á hreinu, Sig- urður Þór hefur verið vannýttur í ár enda fínasti leilcari og reyndari einstaklingar eins og Ólafur Egill, Atli Rafn og Baldur Trausti leysa sín verkefni eins og að drekka vatn. Veilcustu hlekkimir eru Þórir og Lára Jóhanna en þau eiga bæði til að vera eintóna. En skilaboðin þarf ekki að tyggja ofan í áhorfendur. Álfaeyrun og undirstrikanir eru óþarfi. Eins og sagt er í sýningunni: það þarf ekki að lesa Sjálfstætt fólk til þess að skilja bókina. Áhorfendur þurfa ekki útskýringar á meðan á sýn- ingu stendur né að skilaboðin séu mötuð ofan i þá, eins og er reyndar bókstaflega gert rétt fyrir hlé með þjóðarkökunni. Verra er að kraftmesta atriði sýningarinnar dofnar vegna þess að upplýst var um innihald hennar í blöðunum fyrir sýningu. Ræða Ólafíu Hrannar um fátækt á íslandi er áhrifamikil og hjartnæm en kemur lítið á óvart bæði í innihaldi og sviðsrænni útfærslu. Það eru klár forréttindi að verða vitni að Arnari fara með brot úr einu sínu þekkt- asta hlutverld sem lokar sýningunni á eftirminnilegan hátt. Á þessum lokametrum nær Þorleifur Örn að lenda smiðshögginu en samt sem áður eru þessar tvær senur alveg á skjön við annað sem á undan hefur komið. Sýningin sveigist og beygist í allar áttir en skortir skýra stefnu sem má lcannski rekja til þess að tveir hand- ritshöfundar, tveir dramatúrgar og tuttugu-og fimm meðhöfundar eru skrifaðir fyrir handritinu. Þorleifur Örn er einn af okkar bestu leik- stjórum en þarf sterkari ramma til að njóta sin. Álfahöllin er skjá- skot af samtímanum en berst viö svipaða galla og tölvuvædda til- vist okkar: á sínum bestu stundum er hún skondin, ögrandi og hittir beint í mark en alltof oft dettur hún niður í sjálfhverfu, smábrandara og sniðugheit. Sigríður Jónsdóttir NIÐURSTAOA:Athyglisverð sviðs- listarsamsuða sem skortir aga.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.