Fréttablaðið - 10.04.2017, Síða 34
VAXTALAUSAR*
AFBORGANIRFRÁ
5.571
KRÓNUM
FERMINGARTILBOÐ
i L. æL s
: CHIRO UNIVERSE
34 LÍFIÐ • FRÉTTABLAÐIÐ 10. APRÍL 2017 MÁNUDACUR
Þeir Halldór og Úlfur segjast hafa haft áhuga á svipuðum hlutum í gegnum tíðina, en þeir eru til dæmis báðir tónlistar-
menn. fréttablaðið stefán
Komdu með út I geim
Bræðurnir Úlfiir ogHalldór Eldjárn munu báðir senda frá sér
verkefni í vikunni. Úlfur er með plötu á leiðinni þar sem geimurinn
og vísindaskáldskapur var innblásturinn en Halldór er með tónverk
og innsetningu byggða á ljósmyndum teknum í Apollo-ferðunum.
FERMINGARTILBOÐ
HEILSURÚM FYRIR UNGT, VAXANDI FÓLK
STÆRÐ FULLT VERÐ M/CLASSIC BOTNI FERMINGAR- TILBOÐ AFBORGUN Á MÁNUÐI*
90X200 79.900 KR. 59.900 KR. 5.571 KR.
100X200 89.900 KR. 69.900 KR. 6.434 KR.
120X200 99.900 KR. 79.900 KR. 7.296 KR.
140X200 114.900 KR. 94.900 KR. 8.590 KR.
Miðað vaxtalausar kreditkortagreiðslur í 12 mánuði, með 3,5% látökugjaldi
og 405 kr. greiðslugjaldi pr. afborgun
CHIRO UNIVERSE HEILSURÚM
• Fimm svæðasldpt poka- • Vandaðar kantstyrJdngar.
gormakerfi. • Slitsterkt og mjúkt áldæði.
• Heilsu- og hægindalag • Val um svart eða hvítt PU
tryggir réttan stuðning. leður eða grátt áldæði á botni.
DUNSÆNG + DUNKODDI
Dúnsæng og dúnkoddi. 100% bómull í
áklæði. Sæng: 60% moskusdúnn,
40% smáfiður og fáðu vandaðan
dúnkodda með.
FERMINGARTILBOÐ
23.900 KR 1 '
FULLT VERÐ ÞYKK OG HLÝ DÚNSÆNG
29.800 KR-.
FAXAFENI5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT1 Akureyri 5881100 SKEIÐI 1 Isafirði 456 4566 Betra BAK
ð mínu mati hefur
tónlist og geimurinn
alltaf haft einhverja
tengingu. í forn-
öld var tónfræði og
stjörnufræði alltaf
sama fagið. Menn trúðu því að þaö
væru sömu lögmál á bakvið það
hvernig stjörnurnar virkuðu og
þau sem eru á bakvið tónfræðina.
Ég held að þetta sé pínu tilviljun að
við séum báðir með verkefni sem
eru tengd geimnum svona - en við
höfum svo sem haft áhuga á svipuð-
um hlutum í gegnum tíðina," segir
tónskáldið Úlfur Eldjárn en hann
og Halldór bróðir hans eru báðir að
fara að senda frá sér verkefni sem
tengjast geimnum - Úlfur fjallar
um Voyager-verkefnið og Halldór
um Apollo.
Hvaðan kemurþessi hugmynd um
geiminn hjáykkur? „{ mínu verkefni
var þetta þannig að ég var kominn
með vísi að sólóverkefni, en það
var alltaf pínu stefnuleysi í því sem
ég var að gera. Svo allt í einu datt
ég inn á það að gera konsertplötu
sem væri meö einhverskonar geim-
ferða- og vísindaskáldsögu-þema og
að platan sjálf væri konsertverk en
ekki beint með popplögum og ekki
heldur kvikmyndatónlistarplata.
Þetta var konseptið sem mig vant-
aöi til aö vita hvaö ég væri að gera,“
segir Úlfur og bætir við:
„Hugmyndin kom líka að ein-
hverju leyti frá því að vera að búa til
hljóðheim úr analog hljómborðum,
það er náttúrulega svolítið sci-fi-
legt, það er vísindaskáldskapur í
því hljóði. Geimurinn er endalaus
innblástur líka. Ég fór að kynna
mér aðeins geimferðir og Juri Gag-
arin.fyrsta geimfarann og ég varð
til dæmis mjög innblásinn af því að
lesa skýringu á því sem hann sagði
þegar hann var úti í geimnum og
sá jörðina þaðan í fyrsta skiptið.
Verkefnið hans Halldórs er með
alit öðruvisi tengingu við geiminn..."
„Verkefnið mitt heitir Poco Apollo
í; ' ÉG HELD AÐ ÞETTA SÉ
PÍNU TILVILJUN AÐ
VIÐ SÉUM BÁÐIR MEÐ VERKEFNI
SEM ERU TENGD GEIMNUM
SVONA - EN VIÐ HÖFUM SVO
SEM HAFT ÁHUGA Á SVIPUÐUM
HLUTUM í GEGNUM TÍÐINA.
og er í rauninni hálfpartinn tón-
verk og hálfpartinn innsetning
sem verður aðgengilegt á netinu.
NASA gaf út allar myndir sem voru
teknar í Apollo-geimferðunum og
byggist verkið á þeim. Það var farið
alveg fjórum eða fimm sinnum til
tunglsins oggeimfararnir tóku ljós-
myndir allan tímann til að búa til
eins mikið efni og hægt var. Þetta
mikla safn telur 14.000 ljósmyndir.
Ég fékk þá hugmynd að búa til
forrit eða vefsíðu sem getur tekið
þessar myndir og búið til lítið tón-
verk við hverja einustu mynd með
ákveðnum stærðfræði- og forrit-
unarreglum. Útkoman verður
sú að maður getur farið inn
á þessa síðu, séð handa-
hófskennda mynd og
hlustað á tónverkiö
sem verður til út
frá myndinni.
Það kemur alltaf
sama lag viö
hverja mynd,
en þau eru öll
frekar ólík,
þannig aö ég er
búinn aö búa til
forskriftaffjórtán
þúsund litlum tón-
verkum," segir Hall-
dór Eldjárn en verkið
hans kemur út 11. apríl
og verður því hrint úr vör
með hátíðlegri athöfn.
„Ég verð með opnunarsýningu á
verkinu. Þaö veröur í gangi á Mengi
á Óðinsgötu frá klukkan fimm til tíu
og það verður „ribbon cutting cere-
mony“ klukkan fimm, þar sem ég
mun opna vefsíðuna eins og emb-
ættismenn gerðu alltaf árið 1997.
Ég verð með skæri og mun klippa
á ethernet snúru sem opnar vef-
síðuna formlega."
Platan hans Úlfs kemur svo aftur
á móti út daginn eftir eða þann 12.
Apríl. Hægt er að hala niður laginu
Bon Voyage á ulfureldjarn.com og
síðan mun vera hægt að nálgast
verkefni Halldórs á hdor.is
En eruði ekkert að vinna saman
brœðurnir? „Jú. Ég er að búa til
einskonar 3D upplifun af einu af
lögunum af plötunni hans. Það er
næsta útgáfa en það er ekki alveg
tilbúið," segir Halldór og Úlfur
bætir við, „Við erum líka að bralla
ýmislegt annað saman, sem er rosa-
lega spennandi. Sumt af því eru nú
háleynilegir hlutir sem við þorum
ekki að segja frá alveg strax því
kannski misheppnast þeir algjör-
lega.“
stefanthor@frettabladid.is
Halldór fékk innblástur frá Ijós-
myndum sem teknar voru i Apollo-
ferðum Nasa
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR - AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason eustaf@365.is.
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is. Hjördis Zoéga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is. örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK SÉRBLÖÐ SIMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is. Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson oiafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir soiveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is