Fréttablaðið - 10.04.2017, Side 56
Til ungsfólks.
Á hverjum degi dynja á okkur fréttir um hversu ómögulegt það sé að eignast íbúð.
Sérfræðingar lýsa áhyggjum og draga kjarkinn úr ykkur sem þurfið - og ætlið - að
eignast eigið húsnæði.
Við skiljum að fólk sé áhyggjufullt. Við vitum að ástandið er ekki gott. En á sama
tíma hafa þessi skilaboð til ungsfólks líkasttil aldrei verið mikilvægari:
EKKIGEFAST UPP.
Hvort sem þú kaupir fljótlega, eftir ár eða síðar, þá er fyrsta skrefið að vera með
plan. Þvífyrr sem þú byrjar, því betra. Plönin eru auðvitað ólík, því ekki geta allir
bætt við sig vinnu, selt bílinn eða flutt tímabundið heim til tengdó.
Það hefur alltaf verið erfitt að eignast sína fyrstu íbúð - spyrðu bara mömmu og
pabba eða ömmu og afa. Það tekur á, það kostar málamiðlanir og þolinmæði, en
þegar upp er staðið margborgar það sig að halda áfram og leggja ekki árar í bát.
Undanfarið höfum við safnað sögum af ungu fólki sem, með því að hugsa hlutina
upp á nýtt og leggja hart að sér, hefur gert plan og þannig tekist að eignast eigið
húsnæði. Þeirra sögum ætlum við að deila ívon um að þær verði þér hvatning
og innblásturtil að ná þínu markmiði.
Ráðgjafar okkar hafa einsett sér að veita þér allar þær upplýsingar og liðsinni sem
þú þarft við að gera þitt plan og fylgja því eftir.
Það verður kannski ekki auðvelt en ...
ÞAÐ ER HÆGT.
Starfsfólk íslandsbanka