Fréttablaðið - 13.05.2017, Page 26

Fréttablaðið - 13.05.2017, Page 26
gildir ekki nema svigrúm sé til að forgangsraða.“ Katrín: „Mér finnst rosa margt í lífinu vera eftir einhverri forskrift sem maður samþykkti aldrei. Eins og maður sé búinn að skrifa undir ósýnilegan samning og svo stefnir allt í einhverja átt sem maður var aldrei viss um af hverju var valin. Við Kristín reynum að spyrja spurn- inga um þessa vegferð og sérstaklega áfangastaðinn. Kristín var aldrei með þau langtímaáform að verða borgarleikhússtjóri en fyrst hún fékk þetta tækifæri þá var tilvalið fyrir mig að hægja á mér. Þegar hún svo ákveður að fara að gera eitthvað annað get ég tekið mössun í vinnu- málunum.“ Kristín: „Kata er leynivopnið mitt og ég gæti aldrei gert þetta án henn- ar, í gegnum samtöl við hana fæ ég mínar bestu hugmyndir og hennar stuðningur er lykillinn að því að ég geti látið þetta allt saman ganga upp. Þegar ég hugsa fimm ár aftur í tímann skil ég ekki hvað ég var að gera á daginn. Þá var ég barnlaus en fastráðin í Borgarleikhúsinu og vann tvær uppfærslur á ári að meðaltali. Núna er hver einasta mínúta skipu- lögð. Amma hennar Kötu sagði að lífið kæmi í gusum og það er svolítið þannig. Dóttir okkar var bara nokk- urra mánaða þegar mér var boðið að taka við starfi leikhússtjóra.“ Katrín: „Ég vil meina að Kristín hafi verið í eðlunni svokölluðu á þessum rólega tíma. Eðlan getur legið grafkyrr á steini tímunum saman með opin augun og bara verið. Það get ég ekki. Ég sef aldrei út og það er í eðli mínu að vera alltaf á fullu, er með svo hratt tempó en Kristín rosa rólegt. Oft sækja and- stæður hvor í aðra. Kristín er líka góður stjórnandi, réttsýn og úrræða- góð, af því að hún hefur tamið sér rólyndi. Þannig að hún er að upp- skera þótt hún hafi ekki verið á fullu að rembast við að komast upp á ein- hvern topp.“ Djarft leikhús Kristín er einmitt þessa dagana á fullu að skipuleggja næsta leikár. „Við erum búin að stilla öllu árinu upp, raða í hlutverk og ráða list- ræna stjórnendur. Tíminn sem leikhúsið er algerlega í fríi er júlí, svo fer allt í gang aftur,“ lýsir hún og segir Borgar leikhúsið verða djarft og pólitískt ögrandi á næsta leikári sem hefst með frumsýningu á 1984, leik- gerð eftir bók George Orwell. „Kannski er það þannig með klassísk verk að maður getur alltaf lesið þau inn í samtímann, en þegar maður les þetta í dag þá upplifir maður að þetta sé skrifað nákvæm- lega um það sem er að gerast í Bandaríkjunum og víða í kringum okkur. Í verkinu er einstaklingur sem vinnur við að breyta fréttum hjá Sannleiksráðuneytinu, því það er bara einn sannleikur og allur heimurinn ritskoðaður út frá því en mennskan og ástin verða algerlega hornreka. Svo erum við að gera verk út frá Rannsóknarskýrslu Alþingis, sem ber vinnuheitið Guð blessi Ísland. Bak við það er sami hópur og stóð að Njálu og verður mjög hressandi og afhjúpandi sýning, mikil músík og dans og verið að rannsaka okkar mannlega eðli. Svo erum við að fara í Rocky Horr or, sem er beitt partí með þungri undiröldu og valinn maður í hverju rúmi. Við erum með níu frumsýningar á næsta ári, Ellý heldur áfram en Mamma Mia! rennur sitt skeið fyrir sumarfrí. Þegar við klárum leikárið verða tæplega 104 þúsund miðar seldir, það er mikið í rúmlega 300 þúsund manna samfélagi.“ Heppnar með foreldra Nú vil ég vita aðeins um uppruna þeirra Kristínar og Katrínar. Kristín: „Ég er uppalin á Sel- tjarnarnesi, mamma mín, Kristín Guðmundsdóttir, vann lengi sem ritari hjá Alþingi og síðan Hæsta- rétti. Pabbi, Eysteinn Jósefsson, var múrari, hann er látinn. Ég á tvö systkini sem eru tíu og þrettán árum eldri en ég. Ég er ættleidd innan fjöl- skyldunnar og þekki alveg líffræði- lega foreldra mína líka. Átti mjög góða æsku. Bróðir minn Illugi hafði mikil áhrif á það að ég fór að starfa við listir. Ég var mikið í tónlist sem barn, ætlaði alltaf að verða tónlist- armaður og gaf út plötu þegar ég var 21 árs með eigin lögum. En ég var í leikfélagi í Kvennó og röð tilviljana ýtti mér inn á þessa leikhúsbraut. Ef maður skrúfar fyrir einn krana þá fer orkan út einhvers staðar ann- ars staðar og eftir að ég fór að sinna leikhúsinu og skapa þar hef ég haft litla þörf fyrir annað. Ég lærði leik- húsfræði í Danmörku og svo fórum við Kata saman í framhaldsnám til London 2006.“ Kata: „Pabbi minn og mamma eru Oddur og Día, Oddur Benediktsson sem var prófessor í tölvunarfræði en er látinn og Hólmfríður R. Árnadótt- ir sem var í alls konar framkvæmda- stjórastöðum en var menntaður loftskeytamaður. Af því að hún var kona komst hún aldrei á sjó sem var þó draumurinn hennar og minn líka að einhverju leyti. Ég hef aldrei fylgt honum en mig langar að prófa að vera til sjós. Mér var ekki einu sinni boðið á sjóinn þegar ég starfaði einn vetur á Norðfirði sem blaðamaður, eins og ég eignaðist nú frábæra vini þar. Foreldrarnir mínir áttu tvö börn hvort þegar þau tóku saman og eignuðust svo tvö þannig að við erum sex alls. Því líður mér best þegar fullt er af fólki á heimilinu og algerlega óvíst hversu margir verði í mat. Þannig var það hjá okkur, alls konar heimagangar. Ég ólst upp í Faxaskjólinu, afi og amma byggðu hús þar og þangað komu þeir sem koma vildu og fóru þeir sem fara vildu. Mamma var ein af stofnendum Kvennalistans og bæði hún og pabbi börðust eins og ljón fyrir alls konar hlutum, friði og jafnrétti, til dæmis. Ég hef reyndar forritast af því og hef tileinkað mér að reyna að hafa áhrif. Mamma er í Sóltúni, fékk heilablóð- fall fyrir nokkrum árum, samt með sína orku enn sem ég sæki í. Hún er dálítið ólíkindatól og amma Kata var það líka. Ég er full áhuga á að vera sjálf ólíkindatól og bíð spennt eftir að verða óþekk amma. Held að það hafi verið til þess sem ég var skrifuð inn í þennan heim og vænti þess að börnin mín eignist mörg börn svo ég geti sinnt þeirri köllun minni. Ég ólst mikið upp hjá Kötu ömmu, hún kenndi mér póker og við höfðum Snickers í kvöldmatinn ef við vildum. Hennar lífssaga var mögnuð og efni í heila bók. Ég hef tekið að mér að viðhalda þeirri óþekkt og ófyrirsjáanleika sem hún tileinkaði sér því ef við leikum alltaf þá leiki sem eru sennilegir, þá að lokum deyr skákin en ef maður gerir hluti eftir innsæinu viðhelst líf og fjör. Amma Kata hét Katrín Ólafsdóttir Pjetursson.“ Kristín: „Hún var dálítil Astrid Lindgren. Ég hitti hana aldrei enda dó hún þegar Kata var ellefu ára en hún hefur samt áhrif á mitt líf, bara sögurnar af henni og hvernig allir tala um hana. Kata er til dæmis mjög hjátrúarfull, hún á mynd af ömmu sinni og alltaf þegar við höfum flutt á nýjan stað þá setur hún þessa mynd upp inni í svefn- herbergi, áður en allt annað fer inn.“ Kata: „Amma sagði mömmu í draumi að þetta ætti að vera svona, við fylgjum því. Hún er tveggja, þriggja ára á þessari mynd, mjög sæt og þetta er eini hluturinn sem ég mundi bjarga í eldsvoða.“ Gönguhrólfar Þegar talið berst að tómstundum segir Kristín: „Við höfum alltaf ferðast mikið en aðeins minna síðustu ár, nú er meira um að ég fari vegna leikhússins og Kata með fyrir- lestra.“ Kata: „Já, við erum rosa mikið fyrir göngur, það er mjög gott fyrir sálina að vera á fjöllum og helst með allt á bakinu en höfum ekki komist tvö síðustu árin.“ Kristín: „Ég gekk Jakobsstíginn allan árið 2011 þegar Kata var í Stjórnlagaráði og við gengum saman yfir hálendi Skotlands fyrir nokkrum árum. Göngur voru okkar helsta áhugamál, svo spilum við bridds en nú erum við með ung börn og þá breytist forgangsröð- unin. Við hlökkum til að fara með þau í göngur og erum farin að kenna þeim aðeins á skíði.“ Kata: „Svo auðvitað erum við allt- af í leikhúsinu. Kristín reynir að sjá sem flestar sýningar og minn helsti mentor í lifanda lífi er hann Ragnar Aðalsteinsson lögmaður. Hann er ein af ástæðunum fyrir því að ég ákvað að verða lögfræðingur. Á jólahádegisverði í vinnunni sat hann við enda borðsins og við yngri spurðum: „Jæja, Ragnar, hvað gerir lögmann góðan?“ Hann fór strax að tala um listina, að sjá nógu mikið af henni, svo í fimmta sæti voru ein- hverjir lögmannshættir. Mér finnst það merki um and- legan þroska þegar maður fattar að það sem maður fæst við sjálfur er hvorki byrjun né endir á neinu heldur tengist allt og við erum öll hluti af sömu heildinni. Leikhúsið er mikilvægur miðill um samfélagið okkar og hvert við stefnum. Svo elskum við öll góðar sögur og séu þær vel sagðar fær þær enginn stað- ist. En sögur verða bara góðar af því að þær hafa samhljóm við eitthvað sem við þekkjum. Þær eru leit að því sameiginlega sem er svo fallegt.“ Kristín: „Leikhúsið er líka í dag einn af fáum stöðum þar sem við erum í rauntíma með öðrum mann- eskjum að upplifa það sama og þær. Ekki með kveikt á símanum og getum ekkert annað gert á meðan. Það hefur því enn meiri sérstöðu en áður. Ég held það skipti mjög miklu máli í því samfélagi sem við lifum í í dag. Leikhúsið er ákveðin kirkja sam- tímans. Það skortir oft virðingu fyrir hinum andlegu gildum og siðfræði. Mestu fordómar sem maður upplifir í dag eru gagnvart trú og trúarbrögð- um. En um leið og trú er gerð svona útlæg þá finnst mér skorta samtal um kærleika og umburðarlyndi og hvers vegna við viljum frekar standa saman en sundruð.“ Kata: „Ekki verður það samtal auðveldlega til í pólitíkinni, þar er fólk sundrað út af því hvernig kerfið er byggt upp. Þó það sé kannski sammála í grunninn þá lætur það dveljast í þessum örfáu prósentum sem það er ósammála um. Mér finnst skorta umræðu um gildi og framtíðarsýn þar. Síðan má kirkjan ekki anda þá verða allir brjálaðir. Mér finnst mik- ilvægt að segja þetta því við Kristín erum hvorug sérstaklega trúaðar eða kristnar, okkur stóð ekki einu sinni til boða að gifta okkur lög- formlega í kirkju á sínum tíma en það hefur sem betur fer breyst núna. En að fólk megi ekki fara til kirkju án þess að það þyki hallærislegt. Af hverju má það ekki leita andlegs fóðurs í hvaða formi sem er og hvar sem er?“ Kristín: Ég held að um leið og áhrif trúarinnar fara minnkandi í samfélaginu skapist tómarúm því þá vantar andlega næringu. Leik- húsið og listirnar eru á því svæði og því höfum við svo mikla þörf fyrir það. Ég held við getum ekki þrifist eða liðið vel sem manneskjum án þess að þörfinni fyrir þessa andlegu næringu sé fullnægt.“ „Ef við leikum alltaf þá leiki sem eru sennilegir, þá að lokum deyr skákin, en ef maður gerir hluti eftir innsæinu viðhelst líf og fjör.“ Fréttablaðið/GVa Ég vil meina að Kristín hafi verið í eðlunni svoKölluðu á þessum tíma. eðlan getur legið grafKyrr á steini tím- unum saman með opin augun og bara verið. það get Ég eKKi. Kata 1 3 . m a í 2 0 1 7 L a U G a R D a G U R26 H e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 1 3 -0 5 -2 0 1 7 0 3 :5 6 F B 1 2 8 s _ P 1 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C D 9 -6 F 3 4 1 C D 9 -6 D F 8 1 C D 9 -6 C B C 1 C D 9 -6 B 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 2 8 s _ 1 2 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.