Fréttablaðið - 13.05.2017, Page 28
4. september 2013
James Comey verður yfirmaður
alríkislögreglunnar (FBI). barack
Obama, þáverandi forseti, skipar
hann í embættið.
2. mars 2015
The New York Times greinir frá því
að Hillary Clinton, síðar forseta-
frambjóðandi Demókrata, hafi
notað einkatölvupóstþjón í starfi
sínu sem utanríkisráðherra.
24. Júlí 2015
Upp kemst að leyniskjöl hafi verið
geymd á hinum óörugga póstþjóni.
Málið er sent til alríkislögreglunnar
til rannsóknar.
4. ágúst 2015
The Washington Post greinir frá
rannsókn FBI.
27. Júní 2016
loretta lynch, þá dómsmála-
ráðherra, fundar með bill
Clinton, fyrrverandi forseta og
eiginmanni Hillary, um borð í
einkaþotu. Þau neita því síðar að
hafa rætt rannsóknina.
1. Júlí 2016
lynch tilkynnir að hún muni sam-
þykkja meðmæli FBI hvað varðar
mögulega ákæru í málinu.
5. Júlí 2016
Comey tilkynnir á blaðamannafundi
að hann mæli ekki með ákæru á
hendur Clinton. Hann segir þó að
hún hafi verið „gífurlega kærulaus“.
7. Júlí 2016
Comey ítrekar fyrir eftirlitsnefnd
fulltrúadeildar Bandaríkjaþings að
Clinton hafi ekki brotið lög.
Júlímánuður 2016
FBI hefur rannsókn á mögulegum
afskiptum Rússa af forsetakosn-
ingabaráttunni, meðal annars
mögulegum tengslum
við aðila í herbúðum
Donalds trump,
sem átti eftir að
vinna kosning-
arnar.
28. september 2016
Comey segir fyrir dómsmálanefnd
þingsins að hann hyggist ekki hefja
rannsókn á máli Clinton á ný.
28. Október 2016
Comey tilkynnir í bréfi til þing-
manna að FBI rannsaki nýfundna
tölvupósta, tengda máli Clinton,
sem fundust á tölvu anthonys
Weiner, fyrrverandi þingmanns.
6. nóvember 2016
Comey segir
að yfirferð
yfir hina
nýfundnu
tölvupósta
sé lokið.
Niður-
staða
rannsókn-
arinnar
hafi ekki
breyst.
8. nóvember 2016
Donald trump sigrar í forseta-
kosningum.
12. nóvember 2016
Clinton kennir Comey um tap sitt
þegar hún hringir í stuðningsaðila
framboðs síns.
13. nóvember 2016
Í viðtali við 60 Minutes
segist trump ekki hafa
ákveðið hvort hann
muni reka Comey.
9. Desember 2016
Obama fer fram á að
leyniþjónustustofnanir
rannsaki áhrif Rússa á
kosningarnar.
6. Janúar 2017
Leyniþjónustustofnanir
skila skýrslu sem í segir að
Rússar hafi reynt að hafa
áhrif á kosningarnar, minnka
sigurlíkur Clinton og þar með
stuðla að sigri trumps.
10. Janúar 2017
Upplýsingamálanefnd öldunga-
deildar þingsins tilkynnir um
óháða rannsókn á skýrslu leyni-
þjónustustofnananna.
20. mars 2017
Comey segir fyrir upplýsingamála-
nefnd fulltrúadeildarinnar að FBI
rannsaki hvort framboð
trumps hafi unnið með
Rússum í kosninga-
baráttunni.
27. apríl 2017
rod rosenstein
verður aðstoðar-
dómsmálaráð-
herra.
2. maí 2017
Hillary Clinton segir í
viðtali við CNN að Comey hafi
kostað hana sigurinn. Hún segir að
ef kosið hefði verið 27. október
hefði hún unnið.
3. maí 2017
Comey ver starfshætti sína fyrir
dómsmálanefnd öldungadeildar-
innar. Hann segir að það veki
honum ógleði að hann hafi mögu-
lega haft áhrif á úrslit kosninganna.
9. maí 2017
Comey er rekinn.
Comey, tölvupóstarnir og Rússland
Comey sver embættiseiðinn. Það var barack Obama sem skipaði hann í embætti. nOrDiCpHOtOs/aFp
Comey er hann kom fyrir þingnefnd.
nOrDiCpHOtOs/aFp
JEPPADEKK
Í MIKLU ÚRVALI
590 2045 | BENNI.IS 561 4200 / NESDEKK.IS
James Comey var rekinn úr stöðu yfirmanns alríkis-lögreglunnar (FBI) í Banda-ríkjunum í vikunni. Er það einungis í annað skipti sem forseti Bandaríkjanna rekur
mann úr þeirri stöðu en það
gerði Bill Clinton einnig í til-
felli Williams Sessions.
Comey hafði gegnt stöðunni
síðan árið 2013 en áður var hann
meðal annars saksóknari. Hinn
tröllvaxni Comey, sem er rúmir
tveir metrar á hæð, hefur hins vegar
ekki verið óumdeildur í starfi.
Tvö stór mál hafa komið inn á
borð alríkislögreglunnar sem hafa
valdið því að jafnt Demókratar sem
Repúblikanar hafa bæði hampað
honum og hatað hann. Annars
vegar er um að ræða rannsókn á
notkun Hillary Clinton, fyrrver-
andi forsetaframbjóðanda Demó-
krata, á einkatölvupóstþjóni í starfi
sínu sem utanríkisráðherra. Hins
vegar er um að ræða rannsókn á
afskiptum Rússa af bandarísku
forsetakosningunum og meintum
tengslum rússneskra stjórnvalda við
framboð Donalds Trump, núverandi
forseta Bandaríkjanna.
tölvupóstmálið
Óumdeilanlega hefur tölvupóst-
málið valdið Comey meiri vand-
ræðum en Rússamálið. Stuðnings-
menn Trumps, sem og margir aðrir
Repúblikanar, eru fullvissir um að
Clinton hafi brotið lög þar sem hún
var með leyniskjöl á umræddum
tölvupóstþjóni. Mátti reglulega
heyra köll þeirra á baráttufundum
Trumps um að loka ætti Clinton
bak við lás og slá. Sjálfur sagði
Trump í einum kappræðna forseta-
frambjóðendanna að hann myndi
sjá til þess að Clinton yrði stungið
í steininn.
Það reitti stuðningsmenn
Trumps, sem og Trump sjálfan, því
til reiði þegar Comey tilkynnti í júlí
að alríkislögreglan mælti ekki með
því að Clinton yrði ákærð í málinu.
Var Comey kallaður „mörður“ og
kröfðust margir Repúblikanar þess
að hann segði af sér eða yrði rekinn.
Nokkrum mánuðum seinna,
nánar tiltekið í október og einungis
örstuttu fyrir forsetakosningarnar,
tilkynnti Comey að rannsókn á
málinu væri hafin á ný vegna þess
að nýir tölvupóstar hefðu fundist.
Þrátt fyrir að Comey hafi tilkynnt
tveimur dögum fyrir kosningarnar
að nýju tölvupóstarnir breyttu ekki
ákvörðun FBI eru margir Demó-
kratar, til að mynda Clinton sjálf,
á þeirri skoðun að tímasetning
Comeys hafi kostað hana forseta-
embættið.
Þá var komið að Demókrötum að
kalla eftir afsögn Comeys eða eftir
því að Barack Obama, sem þá átti
rúma tvo mánuði eftir sem forseti,
ræki hann úr embætti.
rússamálið
Hitt málið sem um ræðir, og Clinton
telur sömuleiðis að hafi kostað sig
sigurinn, eru meint afskipti Rússa
af kosningunum og tengsl þeirra
við framboð Trumps.
Segir Comey rannsókn hafa leitt
í ljós að Rússar hafi vissulega reynt
sitt besta til að hafa áhrif á forseta-
kosningarnar og að það hafi tekist
að einhverju leyti.
Þar sem rannsóknin tengist
Trump með beinum hætti vilja
margir Demókratar meina að
ákvörðun Trumps um að reka
Comey hafi byggst að miklu leyti á
einmitt henni. Hefur Chuck Schu-
mer, leiðtogi Demókrata í öldunga-
deild þingsins, til að mynda vefengt
þá fullyrðingu Trumps að honum
hafi ekki þótt Comey standa sig
nógu vel og að hann hafi íhugað
brottreksturinn allt frá því að hann
tók við embætti forseta.
Snörp
skoðanaskipti
Þórgnýr Einar
Albertsson
thorgnyr@frettabladid.is
um James
Comey
Fyrrverandi yfirmaður alríkislögreglunnar
í Bandaríkjunum hefur verið umdeildur um
nokkurra mánaða skeið. Báðir flokkar hafa
hampað honum og hatað. Ákvörðun Banda-
ríkjaforseta um að reka hann í vikunni hefur
þó valdið miklu fjaðrafoki vestanhafs.
1 3 . m a í 2 0 1 7 L a U G a R D a G U R28 H e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
1
3
-0
5
-2
0
1
7
0
3
:5
6
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
D
9
-5
B
7
4
1
C
D
9
-5
A
3
8
1
C
D
9
-5
8
F
C
1
C
D
9
-5
7
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K