Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1970, Síða 3

Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1970, Síða 3
1. Fylgt úr hlaði. Um nokkurt skelð hefur það verlð ósk og von stjórna Félags Löggiltra Endurskoðenda, að útgáfa tímarits gæti orðið að raun- veruleika. Ýmsir og kunnir erfiðleikar hafa hinsvegar valdið því, að dráttur hefur orðið þar á. Það ber því að fagna því, aö með þessu fyrsta töiublaði er náð merkum áfanga í félagsstarfi F.L.E., sem vonandi verður hvattning til allra félagsmanna í auknu félagsstarfi. Verulegur skriður komst á mál þetta s.l. vetur, þegar félags- fundur kaus 3 félagsmenn í ritnefnd til þess að gefa út tímarit þetta, sem vera skyldi prófsteinn á fasta útgáfu rits F.L.E.. í ritnefnd voru kosnir: Bergur Tómasson, Eyjólfur Sverrisson og Friðbjörn Agnarsson. Hafa þessir félagsmenn unnið mjög þarft og gott starf, sem ber að þakka. Ekki er enn að fullu búið að móta rekstrargrundvöll tímarits- ins, en ég veit, að fram úr því verður ráðið, þegar haft er í huga hagsmunamál þetta. Þelm tilmælum vil ég beina til allra félagsmanna, að þeir geri tfmarit þetta að vettvangi sínum, þar sem skipzt verður á skoöunum, látnar í ljós hugmyndir um málefni löggiltra endurskoðenda bæðl innlend og erlend, en að auki munu verða birtar í því fræðilegar greinar, sem varða endurskoðenda starfið, fréttír frá opinberum aðilum, bókasafni félagsins, erlendum samskiptum, félagsmálum og svo frv.. Ég óska félagsmönnum til hamingju með þennan áfanga og vona ég, að nýr þáttur hafi bætzt í félagsstarfiö. BJarni BJarnason LANGSGOKÁSAFN 3 C> 4 9 0 3 ÍSL;.í:DS

x

Tímarit um endurskoðun og reikningshald

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um endurskoðun og reikningshald
https://timarit.is/publication/1257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.