Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1970, Síða 11

Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1970, Síða 11
9. af góðum og skynsömum endurskoðanda, annað hvort af gáleysi eða ásetningi. Oftast myndi fábótaskyldan geta komið til ef um refsiverðan verknað væri að ræða, en hins vegar í mörgum tilvikum þar sem ekki komi til refsingar. í tilvikum, sem ekki eru það þjóðfélags- lega hættuleg, að ástæða só til fyrir hið oplnbera að beita refsi- vendi sínum. Engir dómar eru hér á landi um fébótaábyrgð endurskoðenda, en í nágrannalöndum vorum eru slík mál ekki mjög sjaldgæf. Ég vil hér nefna eitt dæmi. A. seldi B. verzlun sína og var við kaupin lögð til grund- vallar endurskoðunarskýrsla löggilts endurskoðanda C. í skýrslunni kom fram hver hefði verió velta verzlunarinnar á undanförnum mán- uðum. Skýrslan reyndist röng að þessu leyti og talið var, að endur- skoðandinn hefði eigi sýnt þá gætni, sem krefjast verði, við samningu hennar. Talið var, að verðið hefði verið of hátt, ef hið rétta hefði verið vitað og voru þeir A. og C. dæmdir in solidum til að greiða B. bætur af þessu efni. 2g mun nú rifja upp aftur lagaákvæði um skyldustörf endur- skoðenda. Akvæði 4. gr. laganna frá 1926 um það, að þegar opin- berir sjóðir, félög eða einstakir menn láti löggilta endurskoðendur endurskoða reikninga sína, þá Jafngildi sú endurskoðun skoðun dóm- kvaddra manna og í 5. gr., að vilji dómstólarnir hafa röksamlega endurskoðun á reikningum eða rekstri fyrirtækja eða á þrotabúum þá skulu jafnan hafðir til þeirrar skoðunar löggiltir endurskoð- endur ef til næst. í reglugerð nr. 18/1929 er talað um það í 9. gr., að endurskoðandinn skuli byggja álit sitt á nákvaanri rannsókn og athugun á öllum þeim gögnum, sem fyrir hendl séu enda eigi hann heimtingu á að fá afhentar bækur og skjöl, er snerta starf það, sem framkvæma á, svo og aðrar upplýsingar hjá viðkomandi mönnum, sem eru nauðsynlegar í þessu sambandi. í reglugerðinni frá 1953 er tekið fram, að löggiltum endurskoðanda sé skylt að vinna þau störf, sem þeim er falið með kostgæfni og álit sitt og niöurstöðu skuli hann byggja á nákvæmri rannsokn og öllum gögnum, sem fáanleg séu, enda sé aöllum skylt að veita honum allar þær upplýsingar, sem hann telur nauðsynlegar og varða framkvæmdir starfa hans. Þá vil ég hér enn benda á ákvæði lo. gr. laga nr. 89/1953, Þa.r sem segir að ráðherra ákveður að fengnum tillögum stjórnar Félags Löggiltra Endurskoðenda hvort endurskoðendastarf sé samrýmanlegt öðru starfi eða starfrækslu fyrirtækis og ennfremur á ákvæði í reglugerðinni frá 1953 um það, að löggiltur endurskoöandi geti ekki framkvæmt endur-

x

Tímarit um endurskoðun og reikningshald

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um endurskoðun og reikningshald
https://timarit.is/publication/1257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.