Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1970, Side 14

Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1970, Side 14
12. Það mun venjulegast vlð endurskoðaða relknlnga hér á landl, að endurskoðandi tekur fram um nokkur atrlði, að þau byggist á hluta á endurskoðun t.d. bókum, sem endurskoðaðar hafi verið, en tekur fram um önnur atriöi, að þar sé farið eftir upplýsingum eða ákvörðunum fyrirsvarsmanna eða eiganda. Hafi endurskoðandi lýst því yfir, að hann hafi endurskoðað ákveðln atriði, þá verður að telja, að hann ber venjulega endurskoðunarábyrgð á því, þ.e.a.s. að hann hafi framkvæmt endurskoöun sína á venjulegan hátt, á þann hátti sem gáðum og skynsömum endurskoðanda ber að gera. Sé það brotið, er það enginn vafi, að endurskoðandinn getur oröið refsi- ábyrgur á einn eða annan hátt. Að því er varðar þau atriði, sem hann hefur beint undanskilið sig að hafa ekki rannsakað, þá mundi naumast koma til, að hér yrði um ábyrgð á hendur honum að ræða, nema hann hafi sýnt af sér stórkostlegt gáleysi við verk sltt, þ.e., að honum hafi mátt vera ljóst eftir því, sem fyrir lá, að þa$ sem hann færðl eftir upplýsingum eiganda eða annarra manna var rangt. Að því er varðar þau atrlði, þar sem ekkert er um talað, þá vil ég strax taka fram, að ég mundi segja, að frekar væri ástæða til að líta tll þess hvort atriðin væru felld undan viljandi, til þess að dyljast, eða nvort siður væri að taka ekki slíka hluti með. En um þetta tel ég að nokkuð strangari reglur gildi, en um það, sem beint var undanskilið. Það hlýtur að vera hverjum manni ljóst, að endurskoðendur og vottorð endurskoðenda af þeirri gerð, sem ég gat um nú síðast, nægir í mjög fáum tilvikum þeim aðilum, sem þurfa að nota endur- skoðuð plögg eða endurskoðaða reikninga. Til þess kaupa menn endurskoðunarvinnu, að þrlðji maðurinn, sem ekki hefur aðgang að öðrum gögnum en endurskoðunarskýrslu og reikningunum eins og endurskoðendurnir hafa gengið frá þeim og áritað, megl treysta þeim. Er því óhjákvaanilegt, enda ljóst af öllum atvlkum, að endurskoð- endur verða að hafa aritun, sem nær yfir það, sem venjulega verður að krefjast af endurskoðanda, þannig, að sá, sem relkning fær í hendurnar með slíkri árltun geti treyst því, að þar sé um rétta hluti að ræða. Sf rangt reynist þrátt fyrir venjulega aðgæzlu og þær almennu endurskoðunarreglur, sem ætla verður að gildi meðal endurskoðenda, þa er ekkert vafamál, aö brot á því getur varðað endurskoðandann refsiábyrgð, fébótaábyrgð og án efa skattsektum ef svo ber undir.

x

Tímarit um endurskoðun og reikningshald

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um endurskoðun og reikningshald
https://timarit.is/publication/1257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.