Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1993, Blaðsíða 6
störf þeirra löggiltu endurskoðenda að segja sem
ekki eru félagsmenn í Félagi löggiltra endurskoð-
enda, enda ekki fyrir hendi lögbundin skylda lög-
gilts endurskoðanda að vera félagsmaður.
En spyrja má hvort þörf sé á aga? Um það eru ef-
laust deildar meiningar. Ég fullyrði hins vegar, að ef
framvegis á að vera fyrir hendi hér á landi, og þró-
ast áfram, trúverðug stétt samkeppnishæfra löggiltra
kunnáttumanna á sviði endurskoðunar og reiknings-
skila, verði að beita hæfilegu aðhaldi og aga af
hálfu framkvæmdavaldsins, og af hálfu Félags lög-
giltra endurskoðenda, samfara því að stuðlað sé
með skipulegum og virkum hætti að viðhaldi þekk-
ingar og viðbótum við menntun og þjálfun endur-
skoðendanna.
Að höfðu samráði við fjármálaráðuneytið hefur
stjóm FLE hafið undirbúning að breyttum reglum
og nýju agakerfi fyrir endurskoðendur hér á landi.
Það agakerfi verður að sjálfsögðu að taka til allra
löggiltra endurskoðenda, hvort sem þeir eru félags-
menn í FLE eða ekki. Vonandi munu tillögur stjóm-
arinnar í þessu sambandi sjá dagsins ljós um mitt
þetta ár.
íslenskir endurskoðendur eru að mörgu leyti á
umbrotatímum. Víða erlendis hefur staðið mikill
styr um endurskoðendur og má reikna með að ein-
hver angi af þeirri umræðu nái til Islands fyrr eða
síðar. Imynd endurskoðandans hjá stjómendum í
viðskiptalífi og hjá almenningi hér á landi er ekki
nógu jákvæð og það orðspor sem fer af stéttinni er
ekki fullnægjandi. Samkeppni á milli endurskoð-
enda er stöðugt að aukast og reynir þar mjög á mis-
munandi hæfni og reynslu endurskoðendanna. Þró-
unin í faglegum efnum er hröð og sífellt em gerðar
auknar kröfur. Við erum ekkert eyland og það um-
fjöllunarefni sem er á dagskrá þessarar ráðstefnu,
þ.e. Evrópskt efnahagssvæði, mun án efa hafa um-
talsverð áhrif á störf og samkeppnisstöðu íslenskra
endurskoðenda framvegis. Þeir sem fylgjast með á
þessu sviði munu standa mörgum fetum framar en
hinir.
Góðir ráðstefnugestir!
Við val á ræðumönnum á þessa ráðstefnu hefur
verið reynt að dekka flest þau svið er varða áhrif
EES-samningsins á atvinnulíf og fjármál hér á
landi, bæði almennt og með tilliti til starfa og starfs-
umhverfis endurskoðenda. Fyrirfram vil ég þakka
ræðumönnunum fyrir þátttökuna. Mikilvægt er að
skoða og fræðast um hinar pólitísku hliðar EES-
samningsins, en m.a. um þann þátt munu fjalla þeir
Ami Páll Amason frá utanríkisráðuneytinu fyrir
hönd Jóns Baldvins Hannibalssonar, utanríkisráð-
herra, og Aneurin Rhys Hughes, sendiherra. Hr.
Hughes hefur aðstoðað FLE mikið við skipulagn-
ingu þessarar ráðstefnu og vil ég nota þetta tækifæri
og þakka honum sérstaklega fyrir það. Mér er jafn-
framt mikil ánægja að Bjöm Markland, löggiltur
endurskoðandi frá Svíþjóð, sem nú er framkvæmda-
stjóri Norræna endurskoðendasambandsins, skuli
vera hér til að fræða okkur um þær sérstöku reglur
um endurskoðun og reikningsskil, sem fylgja munu
EES-samningnum. Ami Tómasson, löggiltur endur-
skoðandi, mun síðan m.a. skoða reglumar sérstak-
lega að því er varðar bókhald og reikningsskil hér á
landi. Þeir Gunnar Svavarsson, formaður Félags ís-
lenskra iðnrekenda, og Ari Skúlason, hagfræðingur
hjá ASI, munu fræða okkur um áhrif EES-samn-
ingsins á starfsumhverfi íslenskra fyrirtækja og á
efnahagslíf okkar almennt.
Ég hef þá trú, að í lok þessarar ráðstefnu munum
við öll vera orðin afar margs vísari um EES og hina
nýju Evrópu, og áhrif þessa markaðssamstarfs og
opnu landamæri á atvinnulíf, fjármál og starfsum-
hverfi endurskoðenda hér á landi. Njótið þess vel!
6