Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1993, Blaðsíða 36

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1993, Blaðsíða 36
þegar stórfyrirtæki eiga í hlut, því heimilt er að leggja á sektir sem nema allt að 10% af veltu. Hæstu sektir sem framkvæmdastjóm Evrópubanda- lagsins hefur lagt á vegna brota á samkeppnisregl- um voru lagðar á sænskættuðu samsteypuna Tetra Pak. Það mál er athyglisvert fyrir margra hluta sakir og ætla ég því að skýra frá málavöxtum í stuttu máli. Tetra Pak er stærsti framleiðandi tækja og um- búða til þess að pakka inn fljótandi matvælum, aðal- lega mjólk og ávaxtasafa. A sumum sviðum er nán- ast um einokun að ræða, t.d. hvað varðar umbúðir um gerilsneydda vöru. Þar hefur Tetra Pak 95% af markaðnum. Helsti samkeppnisaðili Tetra Pak, norska fyrir- tækið Elo Pak, kvartaði yfir háttalagi fyrirtækisins. Að lokinni rannsókn komst framkvæmdastjóm Evr- ópubandalagsins að þeirri niðurstöðu, að Tetra Pak hefði gróflega brotið samkeppnisreglur EB. Markaðsstefna fyrirtækisins hafði að markmiði að skipta Evrópubandalaginu í marga aðskilda markaði. Samningar við viðskiptavini miðuðu beinlínis að því að koma í veg fyrir samkeppni. T.d. mátti að- eins nota umbúðir frá Tetra Pak í vélum frá Tetra, á- kvæði vom um reglubundið eftirlit og viðhald vél- anna og tiltekinn afsláttur veittur ef viðskiptavinur- inn héldi sig bara við Tetra Pak. Verðstefnan mismunaði viðskiptavinum þannig að verð lækkaði eftir þörfum ef eitthvað bólaði á samkeppni. Samkeppni var hindmð með margvíslegum hætti, meðal annars með því að kaupa fyrirtæki og vélbún- að keppinauta og/eða ryðja tækni þeirra eða aðferð- um af markaði. Með ákvæðunum um að bara mætti nota umbúðir frá Tetra Pak í vélum frá fyrirtækinu var komið í veg fyrir að virk samkeppni gæti þróast og sömu- leiðis tryggði fyrirtækið sér tekjur allan líftíma vél- anna. Með skiptingu markaðarins gat fyrirtækið haft verðstefnu sem orsakaði allt að 100% mun á um- búðaverði milli markaða og allt að 400% mun á verði vélanna. Þá notaði Tetra Pak einokunarstöðu sína á sviði gerilsneyddra matvæla til þess að greiða niður tap á öðrum sviðum, á mörkuðum þar sem fyrirtækið mætti einhverri samkeppni. Þetta átti t.d. við á Italíu þar sem Elo Pak var að reyna að ná fótfestu og hafði sett upp verksmiðju. Þar var sannað að Tetra Pak greiddi niður tap sem nam allt að 35% af kostnaði. Framkvæmdastjómin skipaði fyrirtækinu að breyta háttalagi sínu, svo það bryti ekki í bága við samkeppnisreglur EB, og sektaði Tetra Pak jafn- framt um hvorki meira né minna en 75 milljónir ekna eða 5,7 milljarða íslenskra króna. Þetta dæmi sýnir að vissara er að taka mark á reglunum. Áhættufjármagn og erlend fjárfesting í ís- lensku atvinnulífi Það er kunnara en frá þurfi að segja, að íslenskt atvinnu- og viðskiptalíf er á margan hátt einangrað, að minnsta kosti hvað varðar þátttöku erlendra að- ila. Ef frá eru talin örfá fyrirtæki í orkufrekum iðn- aði er vart hægt að tala um erlenda fjárfestingu hér á landi. Þetta er að mörgu leyti okkur sjálfum að kenna. Islensk löggjöf hefur verið þannig, að út- lendingar hafa almennt ekki verið velkomnir að taka þátt í atvinnurekstri. Þá höfum við einblínt um of á orkufrekan stóriðnað. Verst er þó að við höfum lík- lega misst af stóriðjutækifærum vegna annarlegra sjónarmiða í æðstu stjóm ríkisins. Hinu má þó ekki gleyma, að það er mikill mis- skilningur að trúa því að hér hafi útlendingar beðið í röðum með fulla vasa fjár til þess að fjárfesta á Is- landi. Það verður því enginn straumur af útlending- um hingað þó við afléttum hömlum. En einmitt þess vegna er mikilvægt að við komum ekki í veg fyrir að þeir fáu, sem hingað kunna að vilja koma, hrökk- list frá vegna gamalla, úreltra vamarmúra eða girð- inga. Þessar girðingar verður að rjúfa og það gerist m.a. með samningnum um EES. Árið 1991 voru sett ný, heildstæð lög um erlend- ar fjárfestingar á Islandi. Á þeim þarf að gera nokkrar breytingar vegna EES-samningsins og ligg- ur nú frumvarp þess efnis fyrir Alþingi. Þá voru í lok síðasta árs samþykkt ný gjaldeyrislög og á Þor- láksmessu var gefin út ný gjaldeyrisreglugerð. Allar þessar breytingar gera ráð fyrir auknu frjálsræði og auðveldari viðskiptum. Samkvæmt EES-samningnum höfum við frest til 1. janúar 1996 til að ganga endanlega frá nauðsyn- legum breytingum á lögum um fjárfestingar EES- borgara í íslenskum atvinnurekstri og sömuleiðis lögum um fasteignakaup þeirra. Þá höfum við frest til 1. janúar 1995 til þess að létta af hömlum á skammtímahreyfingum fjármagns. EES-samningurinn gerir ráð fyrir því að fjárfest- ingar erlendra aðila í atvinnurekstri hérlendis verði almennt heimilar. Okkur tókst að vísu, með miklu harðfylgi, að koma í veg fyrir að erlendum aðilum 36

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.