Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1993, Blaðsíða 33

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1993, Blaðsíða 33
Gunnar Svavarsson, forstjóri Hampiðjunnar og form. Félags ísl. iðnrekenda STARFSUMHVERFI OG SAMKEPPNISSTAÐA ÍSLENSKRA FYRIRTÆKJA Inngangur Þann 17. þessa mánaðar var EES-samningurinn loks undirritaður í endanlegri gerð. Þrátt fyrir það er enn óvissa um hvenær hann tekur gildi. I ljósi reynslunnar er ólrklegt að það verði 1. júlí næst- komandi, en á hinn bóginn má reikna með að það verði einhvem tíma á síðari hluta ársins. Hvað sem því líður, er ljóst, að við Islendingar höfum ákveðið að vera með. Við viljum vera með vegna þess að við teljum það okkur til hagsbóta. Samningurinn um EES einkennist af því að hann setur þátttakendum tilteknar leikreglur, en tryggir ekki á nokkum hátt að þeir nái árangri. Því má líkja við að taka þátt í starfi íþróttafélags. Maður gengur í félagið, fær aðstöðu til æfinga og keppni og gengst um leið undir reglur félagsins. Hvaða árangur næst í íþróttinni er eingöngu undir manni sjálfum komið. Þátttaka í íþróttafélaginu tryggir hvorki árangur né afrek. Þar ræður eigin ástundun, eljusemi og þraut- seigja. Þessu er ekki ólíkt farið með Evrópska efna- hagssvæðið. Samningurinn setur leikreglumar sem fara þarf eftir, en aðildarríkin, stjómvöld og atvinnufyrirtæk- in verða sjálf að ná árangri. Þetta er mergurinn málsins, sem við þurfum að átta okkur á. Starfsumhverfið og samkeppnin Með veru okkar í EES felst ákveðin skuldbinding um að Island ætli sér að vera fullgildur þátttakandi í alþjóðlegum viðskiptum, aukinni alþjóðavæðingu og verkaskiptingu. Við höfum ákveðið að hér gildi að mestu sömu leikreglur og annars staðar í Vestur Evrópu. I því felst að íslensk fyrirtæki taka með sama eða svipuðum hætti þátt í hinu „fjórþætta frelsi" og fyr- irtæki innan Evrópubandalagsins. Þar er átt við frjálst flæði vöru, fjármagns, þjónustu og vinnuafls. Með EES opnum við íslenska markaðinn á svið- um sem áður nutu mikillar vemdar. Þar ber helst að nefna þjónustu- og fjármagnsgreinar. Þar má búast við aukinni samkeppni erlendis frá og um leið auk- inni alþjóðavæðingu. Með sama hætti veitir samn- ingurinn okkur aðgang að öðmm ríkjum innan EES. EES-samningurinn gengur út á að ryðja hindmn- um úr vegi frjálsra viðskipta og setur sameiginlegar reglur sem auðvelda viðskipti. Þrátt fyrir að sumir kunni að halda hið gagnstæða, segir EES-samning- urinn lítið sem ekkert um starfsskilyrðin að öðra leyti. Hann segir ekkert um hvernig eigi að skatt- leggja fyrirtæki. Hann segir ekkert um hversu hár virðisaukaskattur eigi að vera og hann segir ekkert um hverjir vextir skuli vera. Samningurinn kveður heldur ekki á um umsvif hins opinbera, erlendar skuldir eða greiðslubyrði erlendra lána. Allt eru þetta þættir sem verða meira og minna á valdi okkar sjálfra. Gagnið af EES-samningi verður ekki mikið ef við stjómum þeim ekki með viðun- andi hætti. Eins og áður sagði, felst í aðildinni að EES sú á- kvörðun íslenskra stjómvalda að ísland ætli að vera fullgildur þátttakandi í alþjóðlegum viðskiptum. Það gerist með því að við tökum upp sömu leikregl- ur í viðskiptum, opnum markaði og veitum erlend- um aðilum sömu réttindi hér og okkur sjálfum. Af þessum sökum hljóta íslensk stjómvöld að gera sér fulla grein fyrir því að íslenskt atvinnulíf verður að búa við sömu starfsskilyrði og hinir erlendu keppi- nautar. 33

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.