Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1993, Blaðsíða 37

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1993, Blaðsíða 37
yrði heimilt að fjárfesta í útgerð og fiskvinnslu. Ekki eru menn á eitt sáttir um hversu skynsamleg sú ráðstöfun var. En þannig þarf að búa um hnútana að fjárfestingarbannið verði ekki svo þröngt túlkað, að það leiði til þess að stór hluti atvinnulífsins verði útilokaður frá erlendum fjárfestum, vegna beinna eða óbeinna eignatengsla við útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki. Við fáum ekkert á silfurfati, frekar en fyrri dag- inn. Þótt við búum þannig um hnútana, að íslenskar reglur hindri ekki erlenda aðila í að fjárfesta hér, er ekki þar með sagt að þeir geri það. Þar getur margt komið til. Útlendingar þurfa að vita að ísland er til og að þeim sé heimilt að fjárfesta hér. Þetta krefst þess að landið sé markvisst markaðssett sem heppilegur staður til fjárfestinga og að gengið sé þannig frá málum að erlendir aðilar fái hér, helst á einum stað, góðar og skilmerkilegar upplýsingar. Á þessu er verulegur brestur í dag, svo ekki sé meira sagt. Þá er óskynsamlegt að ætla að láta einhverjar sér- reglur gilda um útlenda fjárfestingu, s.s. skattaaf- slætti og önnur fríðindi. Miklu frekar verður að sjá til þess að almenn starfs- og samkeppnisskilyrði séu í góðu lagi. Að síðustu ber svo að nefna nauðsyn þess að treysta íslenskan verðbréfamarkað svo hann geti borið talsverð umsvif; erlendir fjárfestar verða að geta treyst því, að þeir lokist ekki inni á íslandi með þá fjármuni sem þeir leggja í atvinnulífið. Góðir fundarmenn. Heimurinn er sífellt að breytast. Þjóðskipulög hafa riðlast og tekið á sig nýja mynd. Lýðræðisöfl hafa leyst einræði af hólmi og frelsi komið í stað hafta. Islendingar hafa markað stefnu sína í við- skiptum með alþjóðasamningum um fríverslun. Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið er af svipuðum toga. Hann er samningur um aukið frelsi til athafna á okkar langmikilvægasta viðskipta- svæði. Hann opnar dyr alþjóðlegra samskipta upp á gátt. Síðan er það undir okkur sjálfum komið hvort við göngum um þær dyr og hvaða árangri við náum.

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.