Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1993, Qupperneq 27

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1993, Qupperneq 27
birtingu þessara atriða til að vemda hagsmuni fé- lagsmanna og þriðja aðila. Arsreikningar verða að gefa glögga mynd af eignum og skuldum félags, fjárhagsstöðu og af- komu. I þessu skyni verður að mæla fyrir um uppsetningu efnahags- og rekstrarreiknings og efni skýringa með ársreikningum og ársskýrsl- um. Samræma þarf hinar ýmsu aðferðir við mat á eignum og skuldum að því marki sem þörf krefur til að tryggja að í ársreikningum komi fram sam- bærilegar og jafngildar upplýsingar. Ársreikningar skulu endurskoðaðir af löggiltum endurskoðendum, en lágmarkskröfur sem gerðar eru til þeirra um menntun og hæfi verða sam- ræmdar síðar. Einungis má létta þessari endur- skoðunarskyldu af litlum félögum. 3.3. Almenn ákvæði. I almennum ákvæðum segir að ársreikningur skuli hafa að geyma efnahagsreikning, rekstrar- reikning og skýringar og að hann skuli gefa glögga mynd af eignum og skuldum, fjárhagsstöðu og af- komu. Ennfremur er tekið fram að ef glögg mynd verður ekki gefin, þrátt fyrir ákvæði tilskipunarinn- ar, beri að veita viðbótampplýsingar í skýringum. Efnahags- og rekstrarreikningur skal settur upp í samræmi við ákvæði tilskipunarinnar og er þessi framsetning mjög frábrugðin því sem við eigum að venjast hér á landi. Meðfylgjandi eru gefin dæmi um framsetningu samkvæmt tilskipuninni, en nokk- uð er mismunandi hvaða kröfur eru gerðar og ræður þar annars vegar stærð fyrirtækja og eignarhald og hins vegar er nokkuð mismunandi framsetning eftir aðildarlöndum. 3.4. Endurskoðun. í 51. grein tilskipunarinnar er fjallað um endur- skoðun og þar kemur fram eftirfarandi: Ársreikningur félags skal endurskoðaður af ein- um eða fleiri endurskoðendum sem löggiltir eru samkvæmt landslögum. Sá eða þeir sem annast endurskoðun ársreiknings skulu einnig sannreyna að ársskýrslan sé í sam- ræmi við ársreikninga sama reikningsárs. Aðildarríkjum er heimilt að undanþiggja lítil fé- lög, samkvæmt skilgreiningu hér að framan, skyldu til að láta endurskoða ársreikninga sína. Ef slík und- anþága er gerð skulu aðildarríkin setja í lög sín við- eigandi refsiákvæði sem beitt skal þegar ársreikn- ingur eða ársskýrslur félaganna eru ekki gerðar í samræmi við ákvæði þessarar tilskipunar. I 47. greininni sem fjallar um birtingu ársreikninga kemur m.a. fram: Þegar ársreikningur og ársskýrsla eru birt í heild skulu þau birt á sama formi og með sama texta og lá til grundvallar áliti endurskoðanda. Áritun hans skal fylgja með í heild. Ef endurskoðandi hefur gert fyrirvara eða synjað um áritun skal taka það fram og tilgreina ástæður þess. Ef ársreikningur er ekki birtur í heild skal geta þess að útgáfan sem birt er sé stytt. Ekki er gerð krafa til að áritun endurskoðanda fylgi útgáfu þessari, en koma skal fram hvort áritunin var með eða án fyrirvara, eða hvort synjað var um hana. 3.5. Endurmat og verðbólgureikningsskil. I tilskipuninni er fjallað um matsreglur eigna og er þar um að ræða atriði sem eru endurskoðendum hér á landi kunn, með vísan til góðrar reiknings- skilavenju. Athygli vekur að m.a. er heimilað að “aðildarríkin megi tilkynna framkvæmdastjóminni að þrátt fyrir ákvæði 32. gr. (að liðir ársreiknings skuli metnir á grundvelli reglunnar um kaupverð eða kostnaðarverð, innskot mitt) áskilji þau sér meðan beðið er síðari samræmingar, rétt til að heim- ila eða krefjast af félögum eða tilteknum flokkum þeirra: ... c) að rekstrarfjármunir og áhættufjármunir séu endurmetnir.” Ekki virðist þó heimilt samkvæmt tilskipuninni að semja ársreikninga að hætti verðbólgureiknings- skila og hefur þetta leitt til bréfaskrifta í tengslum við EES samninginn milli Islendinga og Fram- kvæmdastjómarinnar. Af hálfu íslendinga var farið fram á að fá tímabundna eða varanlega heimild Framkvæmdastjómarinnar til undanþágu frá ákvæð- um fjórðu tilskipunarinnar að því er þetta varðaði. Niðurstaða þeirra bréfaskipta, ef niðurstöðu skyldi kalla, er sú að Framkvæmdastjórnin neitar að veita formlega undanþágu frá ákvæðum fjórðu tilskipun- arinnar um verðbólgureikningsskil. Framkvæmda- stjómin segist hins vegar standa í þeirri trú að ís- lendingar muni skipta um aðferð um leið og verð- bólga hér á landi kemst á svipað stig og í öðrum að- ildarlöndum. Ennfremur er lýst þeirri skoðun að þar sem verðbólgureikningsskil séu mjög flókin, hafi Framkvæmdastjómin skilning á því að ekki verði breytt úr verðbólgureikningsskilum í hefðbundin reikningsskil fyrr en hæfilegur tími er liðinn eftir að stöðugleiki kemst á. Til þess að auka enn á óvissu málsins varð ekki betur skilið af máli sérfræðings Framkvæmdastjómarinnar á ráðstefnu FLE í Brus- 27

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.