Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1994, Síða 5

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1994, Síða 5
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ. SIÐFERÐI í VIÐSKIPTUM Síðustu misserin hefur mjög íjölgað þeim fyrir- tækjum og einstaklingum, sem telja sig fómarlömb vafasamra eða jafrivel siðlausra viðskiptahátta. Þar sem handsalið eitt var áður talið fullgilt til frágangs samninga þurfi nú helst fullgildar tryggingar og þekkingu á starfsferli og starfsháttum væntanlegra viðskiptamanna. Traustið sé á undanhaldi; við- skiptasiðferði fari versnandi. Efnahagserfiðleikar undangenginna ára hafa eðli- lega sett mark sitt á atvinnulíf og afkomu fyrirtækja. Til marks um það em nær 1400 gjaldþrota fyrirtæki, sem tekin hafa verið til skipta síðustu 4 ár, þar af flest á síðasta ári eða 447. Engin athugun mun hafa farið fram á því, hver hafi verið heildarfjárhæð tapaðra krafna í þessum gjaldþrotum. Þaðan af síður em tiltækar upplýsingar um tjón annarra fyrirtækja vegna tapaðra krafna. Á hinn bóginn liggur fyrir mat á útlánatapi bankanna vegna greiðsluþrots viðskiptamanna. Þetta mat end- urspeglast i framlögum bankanna á afskriftareikning útlána. Á árinu 1992 vom framlög á afskriftareikn- inga bankanna nær 6,8 milljarðar og ætla má, að á árinu 1993 ætli bankamir a.m.k. 5 milljarða til við- bótar til afskrifta útlána. Mat bankanna á afskriftaþörf endurspeglar ekki endilega raunveruleg tap á viðkomandi ári, svo ó- varlegt er að byggja mat á öðmm stærðum á þessum gmnni. Þó er fróðlegt að líta til þess, hvemig tjón af gjaldþroti eins stærsta verslunarfyrirtækis landsins nýverið skiptist á lánastofnanir og viðskiptamenn. Þar lýstu birgjamir, þeir sem lagt höfðu fyrirtækinu til vömr og þjónustu, 750 milljóna kr. laöfum en heildarfjárhæð lýstra krafna var um 1200 milljónir. Lánastofnanir munu meta tjón sitt á um 300 milljón- ir, eða innan við helming þess sem birgjamir töp- uðu. Auðvitað verður engin regla leidd af þessu ein- angraða dæmi og þótt hlutföllin séu ugglaust mjög á annan veg í öðmm atvinnugreinum, þá gefur það til- tekna hugmynd um aðstæður almennra kröfuhafa. Tilgátan styrkist enn þegar til þess er litið, að við- skiptabankar fyrirtækja hafa langtum betri aðstöðu til að fylgjast með aðstæðum skuldunautanna en al- mennir kröfuhafar. Lánastofnanir hafa eðlilega nán- ar gætur á ársreikningum, uppgjömm og áætlunum, sem almennum kröfuhafar eiga almennt ekki kost á að fylgjast með. Þvi má að öðm jöfnu ætla að lána- stofnunum sé mun hægara að sjá fyrir vandamál og tryggja hagsmuni sína. Þótt þannig sé engin leið að áætla með vissu heildarumfang tapaðra krafna í viðskiptalífinu, þá er ljóst að þær nema þó nokkmm milljörðum kr. á ári og sumir ætla þær geti numið allt frá 0,5% til 1,5% af heildarveltu í atvinnurekstri þessi árin. Þar við bætist tjón bankanna, því viðskiptavinir þeirra bera það í formi hærri vaxta en ella myndi vera. Loks er ótalið, að fyrirtækin em sjálf látin leggja í sjóð til að bæta starfsmönnum gjaldþrota fyrirtækja tjón þeirra vegna vangreiðslu launa og lífeyrissjóðsiðgjalda í allt að 3 mánuði fyrir þrot og aðra þrjá þar á eftir. Þennan kostnað bera aðrir atvinnurekendur með sér- stökum launaskatti, 0,2% af öllum launum eða nær 400 milljónum á ári. Tjón af völdum gjaldþrota er því vemlegur og vaxandi liður í rekstrarkostnaði fyrirtækja, sem knýr á um aðhald og aðgerðir til að spoma gegn þessari þróun. Er viðskiptasiðferði víkjandi? Vaxandi umfang tapaðra viðskiptakrafna kann að vera til marks um það að lög og reglur samfélagsins, skráðar sem óskráðar, veiti ekki það öryggi, sem viðskiptalífinu er svo mikilvægt. Bæði kunna regl- umar sjálfar að vera ófullkomnar og framkvæmd þeirra að vera ábótavant. Markaðslögmálin leyfa í raun allt, sem ekki er með einum eða öðmm hætti 5

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.