Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1994, Síða 40
voru niðurstöður þess kynntar á aðalfundi félagsins
í nóvember.
5. Mat á varanlegum rekstrarfjármunum í árs-
reikningum félaga.
í októbermánuði barst félaginu erindi um mat
fastafjármuna í ársreikningum félaga með tilliti til
hugsanlegs ofmats þeirra. Nefndin tók mál þetta til
umfjöllunar og tók saman upplýsingar um málið.
Hún sendi síðan frá sér álitsgerð um málið í desem-
ber sl. þar sem fram kom að álitsgerðin er byggð á
athugun nefndarinnar og upplýsingum úr alþjóðleg-
um reikningsskilastöðlum.
6. Reikningsskilaráð.
í janúarmánuði sendi reikningsskilaráð nefndinni
til umsagnar álitsgerð ráðsins um grundvallaratriði
um reikningsskil. Óskað var eftir umsögn um álits-
gerðina áður en reikningsskilaráðið tæki hana til
formlegrar afgreiðslu. Haldnir voru nokkrir fundir
um efnið og í framhaldi af þeim sendi nefndin frá
sér umsögn í bréfi dags. 21. febrúar 1994.
Á aðalfundi félagsins, sem haldinn var í nóvem-
ber sl. stóð nefndin fyrir könnun á viðhorfum fé-
lagsmanna til þeirra leiðbeinandi reglna, sem reikn-
ingsskilanefndin hefur gefið út í gegnum árin auk
tveggja annarra atriða. Hér var verið að leita eftir á-
liti félagsmanna á þörf fyrir umfjöllun nefndarinnar
á þessum málum með tilliti til þeirra breytinga sem
orðið hafa frá því að drög þessi voru upphaflega sett
fram. Könnunin leiddi í ljós að mestur áhugi var
meðal félagsmanna á umfjöllun um lífeyrisskuld-
bindingar og tekjuskattsskuldbindingar . Þar á eftir
komu árshlutauppgjör og fjárstreymisyfirlit.
Nefndin hefur í framhaldi af þessum niðurstöðum
ákveðið að umfjöllun um lífeyrisskuldbindingar
verði næsta verkefni hennar. Stefnt er að því að gefa
út álitsgerð um efnið á þessu starfsári. Einnig hefur
verið ákveðið að fjalla um framsetningu útflutnings-
kostnaðar í reikningsskilum félaga, sérstaklega út-
gerðar- og fiskvinnslufyrirtækja.
ÁLITSNEFND FLE
Álitsnefnd FLE bárust mörg erindi á starfsárinu
1992-1993 og hélt nefndin alls 9 fundi. Á milli
funda var mikil vinna unnin við samningu greinar-
gerða o.fl. Umfangsmestu erindin bárust annars
vegar frá Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis og
hins vegar frá stjórn FLE.
Sú fasta venja virðist vera komin á að Efnahags-
og viðskiptanefnd Alþingis sendi FLE til umsagnar
öll frumvörp sem nefndin hefur til umfjöllunar og
snerta með einhverjum hætti störf og hlutverk end-
urskoðenda. Þetta er afar jákvætt og gefur félaginu
möguleika á að hafa áhrif og koma að nauðsynleg-
um athugasemdum og ábendingum um viðeigandi
efni. Þau frumvörp sem nefndin fékk til umsagnar
voru m.a. frumvarp til laga um viðskiptabanka og
sparisjóði, frumvarp til laga um breytingu á hlutafé-
lagalögum, frumvarp til laga um Seðlabanka Islands
og frumvarp til laga um eftirlaunaréttindi launa-
fólks. Stærst þessara mála var umfjöllun og gerð
umsagnar um frumvarp til laga unt viðskiptabanka
og sparisjóði. ítarleg greinargerð með margháttuð-
um athugasemdum, ábendingum og breytingartil-
lögum var send frá nefndinni 22. desember 1992, en
frumvarpið var síðan samþykkt sem lög frá Alþingi
á vormánuðum 1993. Er skemmst frá því að segja
að Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis féllst á all-
flestar þeirra breytingar- og viðbótartillagna, sem
Álitsnefndin sendi frá sér og vörðuðu endurskoðun
og reikningsskil. í frumvarpinu voru margvísleg
ákvæði sem að mati Álitsnefndar byggðust á mis-
skilningi á hlutverki endurskoðenda og verka- og á-
byrgðarskiptingu á milli þeirra og stjómenda. Ur
þessum vanköntum tókst að bæta og má FLE vel
við una, því úr varð ágætur lagabálkur um viskipta-
banka og sparisjóði að því er endurskoðun og reikn-
ingsskil varðar.
Frá stjóm FLE bámst Álitsnefnd þrjú erindi til
umsagnar. Mikil umfjöllun átti sér stað um tillögur
og greinargerð stjórnar um breytingu á lögum um
löggilta endurskoðendur, einkum að því er varðar
svonefnt ytra agakerfi endurskoðenda. Þessar tillög-
ur hafði stjórn FLE samið að höfðu samráði við
fjármálaráðuneytið. Álitsnefnd yfirfór tillögurnar og
lagði til ýmsar breytingar, sem stjórnin tók tillit til
að mestu leyti. Álitsnefnd fjallaði jafnframt ítarlega
um tillögur stjórnar um breytingar á samskiptaregl-
um FLE og breytingar á nokkrum greinum sam-
þykkta félagsins. Tillögur um þessar breytingar á
samskiptareglum og samþykktum voru síðan sam-
þykktar á aðalfundi félagsins 1993. Tillögur stjómar
um breytingu á lögum um löggilta endurskoðendur
eru hins vegar enn til umfjöllunar í fjármálaráðu-
neytinu. Fyrirheit hafa verið gefín um að frumvarp
um efnið verði lagt fyrir yflrstandandi þingi.
Álitsnefnd FLE er afar mikilvægur og reyndar
óhjákvæmilegur vettvangur fyrir stjóm félagsins.
Að mati undirritaðs hafa störf nefndarinnar á síð-
ustu tveimur starfsárum ótvírætt staðfest gildi slíkr-
ar nefndar og mikilvægi hennar fyrir félagsstarfið.
ENDURSKOÐUNARNEFND FLE
Helstu verkefni endurskoðunamefndar FLE á
liðnu starfsári (1992/1993) voru eftirfarandi:
40