Fréttablaðið - 24.05.2017, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 24.05.2017, Blaðsíða 28
 Mat á umhverfisáhrifum Athugun Skipulagsstofnunar Hvammsvirkjun, áhrif á ferðaþjónustu og úti- vist og landslag og ásýnd Landsvirkjun hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummats- skýrslu um Hvammsvirkjun, mat á áhrifum á ferðaþjónustu og útivist og á landslag og ásýnd lands í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Rangárþingi ytra. Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfis- áhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 24. maí til 6. júlí 2017 á eftirtöldum stöðum: Skrifstofum Skeiða-og Gnúpverjahrepps og Rangár- þings ytra, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulags- stofnun. Frummatsskýrslan er aðgengileg á vef Skipulagsstofnunar: www.skipulag.is. Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 6. júlí 2017 til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105 Reykja- vík eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is. Skipulagsstofnun Auglýsing Um deiliskipulagsbreytingu Eyravegar 11-13 á Selfossi. Samkvæmt 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, auglýsir bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar tillögu að breyttu deiliskipulagi Eyravegar 11-13 Selfossi í Sveitarfélaginu Árborg. Deiliskipulagsbreytingin felur í sér að í stað íbúða verður gert ráð fyrir hóteli í húsinu. Húsið verður fjögurra hæða með kjallara. Gert er ráð fyrir 70 hótelherbergjum. Á fyrstu hæð verður móttaka, morgunverðasalur, skrifstofa og mögulega önnur þjónusta. Hótelherbergi verða á fyrstu, annari, þriðju og fjórðu hæð. Í kjallara verður starfsmannaaðstaða, línherbergi og geymslur. Á lóðinni er gert ráðfyrir 21 bílastæðum sunnan við húsið ,einnig er gert ráð fyrir gróðri sunnan við húsið. Nýtingarhlutfall er 1.44 ofanjarðar en 1.79 ef kjallari er tekin með. Teikningar ásamt greinagerð (skilmálum), vegna tillögunnar mun liggja frammi á skrifstofu skipulags og- byggingarfulltrúa að Austurvegi 67 Selfossi frá og með miðvikudeginum 24.maí 2017 til og með miðvikudeginum 5.júlí 2017. Öllum er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila athugasemdum rennur út 5. júlí 2017 og skal þeim skilað skriflega til skipulags og byggingarfulltrúa á skrif- stofu hans að Austurvegi 67 , 800 Selfossi. Á sama tíma er teikning og greinagerð til kynningar á heima- síðu Árborgar http://www.arborg.is þar sem hægt er að skoða tillöguna og senda athugasemdir til skipulags og- byggingar- fulltrúa í netfangið skipulag@arborg.is. Bárður Guðmundsson skipulags- og byggingafulltrúi AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi, Flóahreppi og Ásahreppi Aðalskipulagsmál Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur að eftirfarandi aðalskipulagsbreytingum: 1. Breyting á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2004-2016 vegna Hvammsvirkjunar. Afmörkun lónstæðis. Árið 2011 var staðfest breyting á aðalskipulagi sveitarfélagsins þar sem gert var ráð fyrir Hvammsvirkjun. Fólst breytingin m.a. í afmörkun Hagalóns auk breyttrar legu Þjórsárdalsvegar. Á skipulagsuppdrættinum láðist þó að gera ráð fyrir færslu austasta hluta Gnúpverjavegar og afmörkun um 10 ha totu Hagalóns sem liggur ofan Þjórsárdalsvegar. Er hér auglýst breyting á aðalskipulagi þar sem þetta er lagfært, þ.e. veginum breytt og lónið afmarkað ofan Þjórsárdalsvegar. 2. Breyting á aðalskipulagi Hraungerðishrepps 2003-2015, Flóahreppi, á svæði úr landi Laugardæla. Golfvöllur í stað íbúðarsvæðis. Auglýst er tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hraungerðishrepps 2003-2015, Flóahreppi, á svæði úr landi Laugardæla. Svæðið er í dag skilgreint sem blönduð landnotkun íbúðarsvæðis og opins svæðis til sérstakra nota. Er breytingin gerð vegna fyrirhugaðrar stækkun golfvallar, Svarfhólsvallar, og breytist íbúðarsvæði Í4 og að hluta íbúðarsvæði Í5 í opið svæði til sérstakra nota. Þa breytist um 4 ha landbúnaðarsvæði í opið svæði til sérstakra nota. 3. Breyting á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjarhrepps 2004-2016 á svæði austan við Árnes. Svæði fyrir verslun- og þjónustu í staði landbúnaðarsvæðis. Auglýst er tillaga að breytingu á aðalskipulagi sem nær til svæðis sem liggur upp að þéttbýlinu Árnes. Er fyrirhugað að byggja þar upp þjónustu í tengslum við hestaferðir og er m.a. er gert ráð fyrir byggingu gistiaðstöðu og þjónustuhúss. Landið er rúmlega 9 ha að stærð og er í dag skilgreint sem landbúnaðarsvæði en með breytingunni er gert ráð fyrir að um 4 ha svæðisins breytist í verslunar- og þjónustusvæði. 4. Breyting á Aðalskipulagi Bláskógabyggðar fyrir Þingvallasveit 2004-2016. Ákvæði um deiliskipulag. Árið 2006 var staðfest aðalskipulag fyrir Bláskógabyggð fyrir svæði sem var áður innan fyrrum Þingvallasveitar. Í greinargerð aðal- skipulagsins var sett sú stefna að unnið yrði að gerð deiliskipulags fyrir öll svæði sem ekki voru með lögformlegt deiliskipulag og að fjórum árum eftir staðfestingu yrði ekki heimilt að gefa út byggingarleyfi nema á grundvelli deiliskipulags. Frá þvi að aðalskipulagið tók gildi hefur reynst erfitt að koma í gegn deiliskipuagsáætlunum fyrir eldri frístundabyggðarsvæði og er því talið nauðsynlegt að heimila útgáfu byggingarleyfa á grundvelli grenndarkynningar eins og heimilt er á öðrum svæðum innan sveitarfélagsins. Í breytingunni felst því að fella út ákvæði um að deiliskipulag verði ávallt að vera forsenda útgáfu byggingarleyfis. Deiliskipulagsmál Samkvæmt 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að eftirfarandi deiliskipulagi: 5. Deiliskipulag 6 smábýlalóða úr landi Litla-Fljóts í Bláskógabyggð. Lögð fram til kynningar tillaga að deiliskipulagi fyrir 6 lögbýlislóðir úr landi Litla-Fljóts lnr. 167148. Skipulagssvæðið er 15,5 ha að stærð og liggur upp að landi Brautarhóls, norðan þéttbýlisins í Reykholti. Gert er ráð fyrir að lóðirnar tengist þjóðvegi um nýja vegtengingu austan núverandi tengingar að Litla-Fljóti. Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum: 6. Deiliskipulag svæðis fyrir smáhýsi á spildu austan við Árnes í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Auglýst er tillaga að deiliskipulagi fyrir landið Réttarholt A lnr. 166587 sem er um 9 ha spilda austan við þéttbýlið Árnes. A svæðinu er afmarkaður einn 11.500 fm byggingarreitur þar sem gert er ráð fyrir að byggð verði allt að 30 smáhýsi á bilinu 12-30 fm. Innan reitsins er þegar 117 fm hús sem gert er ráð fyrir að nýta sem þjónustuhús. 7. Breyting á deiliskipulagi frístundahúsalóða í landi Sturluholts í Grímsnes- og Grafningshreppi. Auglýst er tillaga að breytingu á deiliskipulagi þriggja frístundahúsalóða á landi Sturluholts. Í breytingunni felst að lóð sem kallast Sturluholt færist til vesturs og breytist heiti hennar í Fögrubrekku. 8. Deiliskipulag fyrir þjónustuhús og baðaðstöðu á jörðinni Hæðarendi í Grímsnes- og Grafningshreppi. Auglýst er að nýju tillaga að deiliskipulagi fyrir baðaðstöðu á svæði umhverfis núverandi fjárhús og hlöðu á jörðinni Hæðarendi, sunnan frístundabyggðar við Selhól.Gert er ráð fyrir að breyta núverandi húsum í þjónustubyggingu í tengslum við starfsemina auk þess sem heimilt verð að byggja allt að 900 fm til viðbótar. Aðgengi að svæðinu verður um núverandi veg frá Búrfellsvegi. Samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt niðurstaða sveitarstjórnar varðandi eftirfarandi deiliskipulagsáætlun: 9. Deiliskipulag fyrir alifuglabú á jörðinni Vatnsenda í Flóahreppi. Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi 10. maí 2017 tillögu að deiliskipulagi fyrir alifuglabú á jörðinni Vatnsenda. Tillagan var auglýst 16. febrúar 2017, ásamt umhverfisskýrslu, með athugasemdafresti til 31. mars. Athugasemdir bárust en að mati sveitar stjórnar gáfu þær ekki tilefni til breytinga á tillögunni og hefur hún verið send Skipulagsstofnun til afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipu- lagslaga nr. 123/2010. Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma frá 9-16. Að auki er hægt að nálgast nánari lýsingu á tillögunum og tillögurnar sjálfar á vefslóðinni http://www.sbf.is. Skipulagstillögur 1-4 og 6-8 eru í kynningu frá 24. maí til 6. júlí 2017 en tillaga 5 frá 24. maí til 5. júní 2017. Athugasemdir og ábendingar við tillögur 1-4 og 6-8 þurfa að berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 6. júlí 2017 en 5. maí fyrir tillögu 5. Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar. Pétur Ingi Haraldsson Skipulagsfulltrúi petur@utu.is Auglýsing um skipulagsmál í sveitarfélögunum Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt sameiginleg tillaga að deiliskipulagi fyrir Hvammsvirkjun Hvammsvirkjun, deiliskipulag virkjunar í Þjórsá. Sveitastjórnir Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverja hrepps leggja sameiginlega fram tillögu að deiliskipulagi fyrir Hvammsvirkjun. Framkvæmdasvæði Hvamm¬svirkjunar er í báðum sveitarfélögunum. Stöðvarmannvirki verða í landi Hvamms í Rangárþingi ytra, en stíflumannvirki og lón munu taka yfir land í ofanverðri Landsveit og í Skeiða- og Gnúp-verjahreppi. Ofantalin tillaga er til kynningar á opnunartíma hjá Skipulagsfulltrúum ofangreindra sveitarfélaga, og á heimasíðum sveitarfélaganna Rangárþings ytra, www.ry.is og Skeiða- og Gnúpverjahreppur www.skeidgnup.is Jafnframt má nálgast frummats- skýrsluna hjá Skipulagsstofnun eða á vef þeirra www.skipulag.is Frestur til að skila inn athugasemdum er til 5. júlí 2017 Haraldur Birgir Haraldsson, Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra og Pétur Ingi Haraldsson, Skipulagsfulltrúi Skeiða- og Gnúpverjahrepps Tilkynningar Mat á umhverfisáhrifum Ákvörðun um matsskyldu Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eftirtaldar framkvæmdir · Efnistaka af hafsbotni í Skutulsfirði · Efnistaka af hafsbotni í Álftafirði · Jarðefnarannsókn á efni við Eyri í Reyðarfirði skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106 /2000. Ákvarðanirnar liggja frammi hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b, Reykjavík og á vef stofnunarinnar www.skipulag.is. Ákvörðun má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála til 26. júní 2017. Aðalfundur SÁÁ verður haldinn fimmtudaginn 1. júní kl. 17:00 í Von, húsi SÁÁ Efstaleiti 7. Aðalfundur SÁÁ SÁÁ Efstaleiti 7 103 Reykjavík Sími: 530 7600 saa@saa.is www.saa.is Dagskrá fundarins er: Skýrsla stjórnar Reikningar samtakanna lagðir fram Lagabreytingar Kosning í stjórn Önnur mál 2 4 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :2 4 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C E C -F F 1 0 1 C E C -F D D 4 1 C E C -F C 9 8 1 C E C -F B 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.