Fréttablaðið - 24.05.2017, Blaðsíða 4
Það hefur enginn
flaggað neinum
fyrirvara við afgreiðslu á
fjármálaáætluninni sem
slíkri.
Haraldur Bene-
diktsson, for-
maður fjárlaga-
nefndar
Mikið úrval garðsláttuvéla
- með rafmótor eða
bensínmótor
Garðsláttuvélar
ÞÓR FH
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
frá kl 8:00 - 18:00
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
Alþingi Formaður fjárlaganefndar
segir einhug um ríkisfjármálaáætlun
hjá meirihluta fjárlaganefndar. Ekki
komi annað til greina en að Sjálf-
stæðismenn samþykki áætlunina.
Í Morgunblaðinu í gær var fullyrt
að Sjálfstæðismenn myndu ekki sam-
þykkja ríkisfjármálaáætlun fjármála-
ráðherra. „Það að ekki sé stuðningur
við fjármálaáætlun er þvættingur,“
segir Haraldur Benediktsson, for-
maður fjárlaganefndar.
Fjármálaáætlun var til umræðu á
Alþingi í gær og kemur væntanlega til
atkvæðagreiðslu síðar í þessari viku
eða í byrjun þeirrar næstu. Afnám
undanþágu ferðaþjónustu frá virðis-
aukaskatti hefur farið öfugt ofan í
suma þingmenn Sjálfstæðisflokksins.
Haraldur segir það engin áhrif hafa á
fjármálaáætlunina
„Við gerum engar breytingar á
textanum en komum með ábend-
ingar um hvað ríkisstjórninni beri að
endurskoða og breyta. En við erum
ekki með breytingartillögur við ein-
staka ramma eða málefnasvið, aðeins
ábendingar um að ríkisstjórnin skuli
við undirbúning fjárlaga skoða ein-
staka liði. Við sviptum ríkisstjórnina
engum tekjum heldur leyfum henni
að fá svigrúm.“
Ríkisfjármálaáætlun er í raun drög
að fjárlögum næstu fimm ára. Eftir
sem áður þarf að taka stórar ákvarð-
anir við samþykkt fjárlaga næsta
haust.
„Á þessum tíma eru ekki komnir
fram allir tekjupóstar eins og þeir
munu standa þegar fjárlög verða
afgreidd. Við erum ekki að slá af
virðisaukaskattsbreytingar en ríkis-
stjórnin verður að vita hvaða afleið-
ingar breytingar kunna að hafa. En
þau mál koma öll fyrir þingið í haust
og þá taka menn afstöðu,“ segir Har-
aldur. „Ég á ekki von á því að neinn
verði á gulum takka eða eitthvað
slíkt. Því til viðbótar get ég sagt að
það hefur enginn flaggað neinum
fyrirvara við afgreiðslu á fjármála-
áætluninni sem slíkri.“
Benedikt Jóhannesson fjármála-
ráðherra segist engar áhyggjur hafa
af afdrifum ríkisfjármálaáætlunar á
þinginu. snaeros@frettabladid.is
Þvættingur að fjármálaáætlunin nái ekki í gegnum þingið
minjAr Áform Flugakademíu Keilis
um að setja upp bandaríska orr-
ustuþotu við höfuðstöðvar sínar á
Keflavíkurflugvelli vekja hörð við-
brögð í hópi áhugamanna um flug-
minjar sem óttast að þotan þoli
ekki geymslu utandyra.
„Allir hlutir sem eru úr járni og áli
og standa úti tærast og eyðileggjast.
Við þurfum ekki kjána sem halda
öðru fram,“ segir Tómas J. Knútsson
vélvirkjameistari sem í sjö ár sat í
stjórn Flug- og söguseturs Reykja-
ness ehf. og lét þar sig herminjar af
Keflavíkurflugvelli miklu varða.
Um er að ræða skel af Phantom-
þotu sem stóð á stöpli utan við
skrifstofu æðsta yfirmanns Banda-
ríkjahers á flugvellinum. Eftir að
herinn fór segir Tómas áhugamenn
um varðveislu þotunnar hafa
komið henni fyrir í geymslu í flug-
skýli á svæðinu.
„Ef það á að varðveita þessa vél
þá á að gera það innandyra en ekki
nota hana sem auglýsingu utan-
dyra. Þessi vél verður að vera í
umsjón safns en um það hefur ríkt
áhugaleysi,“ segir Tómas.
Í sama streng tekur Hinrik Steins-
son, sem einnig sat í stjórn Flug- og
söguseturs Reykjaness um árabil.
Hinrik segir Hjálmar Árnason,
framkvæmdastjóra Keilis, hafa
leitað samþykkis síns árið 2013 fyrir
áformunum og lofað að þotunni
yrði haldið í toppstandi.
„Ég svaraði honum að þetta væri
heimskuleg hugmynd sem myndi
eyðileggja vélina, því hún væri nú
þegar orðin talsvert tærð,“ segist
Hinrik hafa svarað. „Núna er staðan
sú að Hjálmar er búinn að fara bak-
leiðir til að þröngva þessu í gegn,
þótt búið sé að segja honum að
þetta skemmi vélina. Hann er ekki
galdramaður sem getur komið í veg
fyrir náttúrulögmál.“
Þá segir Hinrik um að ræða brot
á samningi um varðveislu þotunnar
en Hjálmar, sem reyndar er einn
þeirra sem stóðu að stofnun Flug-
og sögusetursins, hafnar því. Flug-
safn bandaríska flughersins hafi
gefið Keili leyfi fyrir fyrirhugaðri
uppsetningu að fenginni úttekt á
ástandi þotunnar.
„Þotan er búin að vera í óupp-
hituðu skýli og það fer mjög illa
með hana, hún er farin að láta á sjá.
Við viljum einfaldlega setja vélina
á stöpul aftur svo fólk geti dáðst að
henni enda eru þessar vélar gerðar
til að vera undir beru lofti,“ segir
Hjálmar. Það verði síðan flugvirkja-
deild Keilis sem annist þotuna með
reglulegu eftirliti og viðhaldi.
„Þotan á að vera eins og tákn um
söguna og líka um þá starfsemi sem
fer fram á og við flugvöllinn,“ segir
Hjálmar og gefur lítið fyrir þá gagn-
rýni að nota eigi þotuna sem aug-
lýsingu fyrir Keili.
„Fólk má túlka það eins og það
vill en við ætlum að setja hana
hér við fjölförnustu gatnamótin
sem allir sem leið eiga um völlinn
fara um. Þetta er skemmtilegt fyrir
svæðið í heild.“
gar@frettabladid.is
Herþota veldur usla í Keflavík
Keilir hyggst setja upp gamla herþotu við flugskólann á Keflavíkurvelli. Fyrrverandi stjórnarmenn í Flug- og
sögusafni gagnrýna áformin. Verja þurfi þotuna innandyra en ekki nota hana sem auglýsingu fyrir Keili.
Bandaríkjaher hefur að sögn skólastjóra Keilis gefið leyfi fyrir því að þessi Phantomþota verði varðveitt á stöplum
utan við flugskólann. Hópur áhugamanna um flugminjar óttast að þotan þoli ekki geymslu utandyra. FréttaBlaðið/atli
Ef það á að varð-
veita þessa vél þá á
að gera það innandyra en
ekki nota hana sem aug-
lýsingu utan-
dyra.
Tómas J.
Knútsson vél-
virkjameistari
leiðrétting
Í frétt sem birtist í Fréttablaðinu í
gær um uppbyggingu í Reykjavík
stóð að uppbygging yrði við
Allianz-húsið. Rétt nafn hússins
er Alliance-húsið. Við biðjumst
velvirðingar á þessum mistökum.
Viðskipti Í apríl nam erlend
greiðslukortavelta 18,6 milljörðum
króna samanborið við 14,6 millj-
arða í sama mánuði í fyrra. 27,7
prósenta vöxtur var á tímabilinu
samkvæmt Rannsóknasetri versl-
unarinnar.
Vöxtur síðustu þriggja mánaða
(febrúar til apríl) frá sama tímabili
í fyrra er 29 prósent en að meðaltali
var árlegur hlutfallsvöxtur síðustu
12 mánuði þar á undan 52 prósent.
Vöxturinn í apríl er einnig minni í
krónum talið. Frá apríl 2016 jókst
kortavelta um 4 milljarða saman-
borið við 5,3 milljarða í apríl á
síðasta ári.
Ekki er ótrúlegt að sterkara gengi
eigi sinn þátt í því að kortavelta vex
minna nú en áður. – sg
Gengisáhrif á
erlenda veltu
slYs Ítalskur ferðamaður á þrítugs-
aldri lést á sjúkrahúsi í gær. Hann
fannst meðvitundarlaus á Nesja-
vallavegi í fyrradag. Svo virðist sem
maðurinn hafi fallið af reiðhjóli. Við
það hafi hann hlotið höfuðáverka
sem síðar drógu hann til dauða.
Þá lést drengur á þrettánda ári í
slysi á Eyjafjarðarbraut vestari, sunn-
an við Hrafnagil, í gær. Drengurinn,
sem ók litlu bifhjóli, lenti í árekstri
við jeppabifreið í fyrradag. Hann var
fluttur á Sjúkrahúsið á Akureyri en
lést skömmu síðar.
Ekki er unnt að greina frá nöfnum
hinna látnu að svo stöddu. – jóe
Létust af
slysförum
2 4 . m A í 2 0 1 7 m i ð V i k U D A g U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t A B l A ð i ð
2
4
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
E
C
-F
5
3
0
1
C
E
C
-F
3
F
4
1
C
E
C
-F
2
B
8
1
C
E
C
-F
1
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K