Fréttablaðið - 24.05.2017, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 24.05.2017, Blaðsíða 20
H lutafé Ölgerðar-innar var aukið um 1,6 milljarða króna í apríl eða á sama tíma og sala á 69 prósenta hlut í fyrirtækinu gekk í gegn. Eigendur þess keyptu þá húsnæði Ölgerðar- innar við Grjótháls og með útgáfu nýs hlutafés fóru nýir hluthafar inn í eigendahópinn. Fyrirtækið hagnað- ist um 800 milljónir króna á síðasta reikningsári sem lauk í lok febrúar, veltan jókst um fjóra milljarða milli ára og nam 24 milljörðum, en um bestu afkomu Ölgerðarinnar er að ræða frá upphafi. Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, segir svo geta farið að höfuðstöðvarnar verði stækkaðar og fyrirtækið skráð í Kauphöll Íslands eftir þrjú til fimm ár. Forstjórinn og Októ Einarsson, stjórnarformaður Ölgerðarinnar, hættu við að selja 31 prósents hlut OA eignarhalds- félags í drykkjarvöruframleiðand- anum þegar aðrir hluthafar seldu sín 69 prósent í október í fyrra og framtakssjóðirnir Horn III og Akur fjárfestingar ákváðu að fara inn í eigendahópinn ásamt hópi einka- fjárfesta. „Það er ákveðinn léttir að þessu söluferli er lokið. Þetta tekur alltaf ákveðinn tíma og orku frá stjórn- endum en í sjálfu sér eru engar nýjar stefnur settar. Fasteignin er nú komin aftur heim og við teljum að það fari betur á því. Við erum að skoða þann möguleika að stækka hérna á lóðinni og höfum leyfi fyrir að byggja rúma 3.000 fermetra. Við áttum húsið með Kaupþingi á sínum tíma, eða 51 á móti 49 pró- sentum, en svo misstum við það í uppgjöri við bankann árið 2010,“ segir Andri Þór. Skráning á teikniborðinu Auður 1, framtakssjóður í rekstri Virðingar, átti kauprétt á húsnæði Ölgerðarinnar og gekk að sögn Andra inn í kaupin 2010 og áfram- seldi fasteignina til Kolefnis ehf. Það félag er í eigu Hilmars Þórs Kristins- sonar og Hollendingsins Bernhards Jakobs Strickler. Þeir verða hluthafar í Ölgerðinni ef Samkeppniseftirlitið samþykkir kaup drykkjarvörufram- leiðandans á Kolefni. Aðspurður hversu stóran hlut Hilmar og Jakob muni þá eiga í Ölgerðinni svarar Andri Þór að hann vilji fá samþykki Samkeppniseftirlitsins áður en upp- lýst verði um nýjan hluthafalista. Þeir fái greitt annars vegar í formi hlutafjár en einnig í peningum. „Við borguðum að hluta til með Kaupir höfuðstöðvarnar eftir metár nýju hlutafé þannig að þeir koma inn sem hluthafar. Kaupin á hús- næðinu eru nú í skoðun hjá Sam- keppniseftirlitinu en það mun að öllum líkindum klárast á næstu dögum eða vikum. Nú erum við tilbúin til að stækka enn frekar og takast á við ný og spennandi verk- efni,“ segir Andri. Fasteignirnar að Grjóthálsi 7-11 eru að hans sögn um 20 þúsund fermetrar að stærð og skiptast í framleiðslurými, brugg- hús, lager og skrifstofurými. Markaðurinn greindi í byrjun mars frá dómsmáli sem fyrrverandi hluthafi og stjórnarmaður í Ölgerð- inni höfðaði vegna óánægju með söluna á 45 prósenta hlut Eignar- haldsfélagsins Þorgerðar í fyrir- tækinu í október. Einnig að beðið hefði verið að óþörfu eftir samþykki Samkeppniseftirlitsins fyrir sölunni. Af hverju tók það svona langan tíma að þínu mati að klára söluna endanlega eða frá því tilkynnt var um hana í október og fram í apríl? „Þetta dróst fyrst og fremst út af Samkeppniseftirlitinu en deilurnar voru aftur á móti innan Þorgerðar og við vorum ekki aðilar að þeim. Ég geri aftur á móti engar athuga- semdir við þær tafir sem urðu því menn vildu einfaldlega taka af allan vafa og hafa vaðið fyrir neðan sig.“ Það var stefnt að skráningu Ölgerðarinnar í Kauphöll Íslands áður en tilkynnt var um söluna á 69 prósenta hlutnum. Útilokar þú að fyrirtækið fari á markað í náinni framtíð? „Nei, við erum með það á teikniborðinu í sjálfu sér en það yrði ekki í fyrsta lagi fyrr en eftir þrjú ár. Við ætlum að fara í ákveðnar fjár- festingar og sýna fjárfestum að þær verði að veruleika og skila tekjum og þá verðum við tilbúnir til að fara á markað. Við viljum einfaldlega stækka fyrirtækið enn frekar áður en að því kemur,“ segir Andri Þór og heldur áfram: „Við getum ekki greint frá öðrum fjárfestingum á þessu stigi en að byggja hér nýtt hús. Það er þó ekki ákveðið og það getur vel verið að við förum eitthvað annað og jafnvel í leiguhúsnæði.“ Þið Októ Einarsson ákváðuð í söluferlinu í fyrra að halda 31 pró- sents eignarhlut ykkar í fyrirtækinu, í gegnum OA eignarhaldsfélag. Af hverju selduð þið ekki? „Við mátum stöðuna þannig að þetta væri ekki rétti tímapunkturinn fyrir okkur. Við erum uppfullir af hugmyndum og viljum hrinda í framkvæmd ákveðnum málum. Okkur líst vel á þessa fjárfesta sem voru að koma inn og plön um skráningu í kaup- höll og eigum nóg eftir. Það er stuð og stemning fram undan.“ Bjórinn mikilvægastur Síðasta reikningsár var að sögn Andra það besta í sögu Ölgerðarinn- ar en því lauk 28. febrúar. Hagnaður fyrirtækisins eftir skatta nam þá 800 milljónum króna og EBIDTA, hagn- aður fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta, nam um tveimur millj- örðum. „Tekjuvöxturinn var um sextán prósent sem er mjög gott miðað við sjálfbæran vöxt og fjórar verðlækk- anir á síðasta ári. Við erum með mjög gegnsæja stefnu hvað varðar gengisbreytingar og lækkuðum til að mynda verð á allri innfluttri dagvöru í fyrra í fjórgang. Við erum alltaf að vaxa og erum vanir því,“ segir Andri. „Núna erum við að njóta góðs af sáningunni eftir hrun. Á þeim tíma tókum við þann pól í hæðina að draga ekki úr fjárfestingu í mark- aðsmálum og náðum að halda sjó í gegnum mögru árin og jukum okkar markaðshlutdeild en á minnkandi mörkuðum. Núna þegar mark- aðir eru að vaxa aftur erum við að njóta góðs af því. Tökum bjórinn sem dæmi sem er mikilvægasti ein- staki vöruflokkur okkar. Áður var gosið mikilvægast eða þangað til fyrir þremur árum en vöxturinn í bjórnum hefur verið ævintýralega mikill. Það er bæði vegna þess að bjórmarkaðurinn hefur stækkað en auk þess erum við að stækka okkar hlutdeild í ÁTVR. Árið 2009 var hlutdeild okkar í bjór í ÁTVR rúm- lega tuttugu prósent á meðan Vífil- fell var með ríflega fimmtíu prósent. Við settum okkur markmiðið ESB, eða „Egils stærstir í bjór“, og náðum því á síðasta ári og nú er hlutdeildin jöfn eða sirka þannig að bæði fyrir- tækin [Ölgerðin og Coca Cola Euro- pean Partners Ísland, áður Vífilfell] eru með um 33-35 prósent. Okkar hlutdeild hefur því vaxið um fimm- tán prósentustig en þeirra dregist saman um fimmtán prósentustig frá 2009. Þessar tölur ná einungis utan um sölu í ÁTVR en um þrjátíu pró- sent af áfengissölunni er á hótelum og veitingahúsum og sá markaður, eða svokallaðir kútabjórar að mestu leyti, stækkaði um 29 prósent hjá okkur í fyrra.“ Hvað með útflutning á vörum Ölgerðarinnar? Hversu stór hluti er sú sala af heildarveltunni? „Útflutn- ingur er um eitt prósent af okkar sölu þannig að það er enn mjög lítið. Við erum að flytja aðeins út Bríó og aðra bjóra frá Borg brugg- húsi og höfum aðeins verið að fikta í Noregi með Gull Lite. Nú erum við að flytja út ýmsa bjóra í dós en það er sú pakkning sem hentar betur til útflutnings og þetta smám saman stækkar. Við lítum fyrst og fremst á þetta sem sáningarverkefni. Svona útflutningsverkefni eru engar flug- eldasýningar heldur er í þeim hægur og góður vöxtur. Þetta er ekki hefð- bundin markaðssetning því við erum að fara inn á handverksbjóra- markaðinn og þú ferð öðruvísi inn á hann. Prósentuvöxturinn í útflutningi á næstu árum verður mikill en þetta er enn þá svo lítið. Þetta verður ekki verulegur hluti af rekstri Ölgerðarinnar fyrr en eftir um tíu ár.“ Er þessi hluti starfseminnar sem tengist örbrugghúsinu ykkar Borg farinn að skila afgangi? „Borg brugg- Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, segir svo geta farið að höfuðstöðvar fyrirtækisins við Grjótháls verði stækkaðar. FréttABlAðið/GVA Eigendur Ölgerðarinnar juku hlutafé fyrirtækis- ins um 1,6 milljarða króna í apríl þegar þeir keyptu höfuðstöðvarnar við Grjótháls. Hagnað- urinn í fyrra nam 800 milljónum, stefnt er að stækkun húsnæðisins en forstjóri Ölgerðarinnar útilokar að innflutn- ingur á drykkjarvörum verði aukinn. Kristall er verðmætasta vöru- merkið. Við settum okkur markmiðið ESB, eða „Egils stærstir í bjór“, og náðum því á síðasta ári Haraldur Guðmundsson haraldur @frettabladid.is Í dag, miðvikudaginn 24. maí kl.15:00 að Ofanleiti 2, Reykjavík (Verkís) Breather Ventilation er nýsköpunarfyrirtæki, og því eiga fjárfestar rétt á skattaívilnun skv. lögum 90/2003 um tekjuskatt. Nánari upplýsingar: www.breatherventilation.com ANDBLÆR: OPIN FJÁRFESTAKYNNING Þynnsta loftræstikerfi í heimi 2 4 . m a í 2 0 1 7 m I Ð V I K U D a G U R4 markaðurinn 2 4 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :2 4 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C E D -0 D E 0 1 C E D -0 C A 4 1 C E D -0 B 6 8 1 C E D -0 A 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.