Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2016, Blaðsíða 20
Helgarblað 15.–17. mars 20162 Sameignin - Kynningarblað
Garðaþjónusta
Reykjavíkur
í gjafastuði
G
arðaþjónusta Reykjavíkur
er rótgróið fyrirtæki sem
sérhæfir sig í alhliða garða-
þjónustu. Forsvarsmenn
Garðaþjónustu Reykja-
víkur segja aðaláherslu fyrirtæk-
isins vera lagða á almennt viðhald
á görðum og nýsmíði garða. „Við
sérhæfum okkur í að helluleggja,
smíða sólpalla og skjólveggi. Við
bjóðum einnig upp á bestu mögu-
legu torftegundir sem eru fáanlegar
á íslenskum markaði; allt frá green-
grasi upp í Óðalstorf. Við aðstoðum
einnig viðskiptavini við hönnun og
skipulag á görðum,“ segja þeir.
Nú eru fagmenn Garðaþjónustu
Reykjavíkur á fullu í vorklippingum
og er í nógu að snúast við að koma
trjám og runnum í gott stand, til
að fá sem fallegasta lögun og lauf-
gun fyrir sumarið. „Við leggjum
mikinn metnað í að þjónusta mik-
inn fjölda einstaklinga, fyrirtækja
og húsfélaga í almennu garða-
viðhaldi yfir sumarið, með mjög
góðum árangri. Það er því óhætt að
segja að við séum í allri almennri
garðvinnu eins og hún leggur sig,“
segja forsvarsmenn Garðaþjónustu
Reykjavíkur.
Sveigjanlegur vinnutími og
áratuga reynsla
„Við erum að vinna úti um allan bæ og
því er vinnutíminn töluvert sveigjan-
legur hjá okkur,“ segja forsvarsmenn
Garðaþjónustu Reykjavíkur. Við hag-
ræðum vinnutímanum eftir þörfum
viðskiptavina hverju sinni,“ segja
þeir. Tekið er á móti verkefnum alla
daga í síma 777-8100. Garðaþjónusta
Reykjavíkur er með áratuga reynslu í
að þjónusta viðskiptavini víðs vegar
um höfuðborgarsvæðið.
Í gjafastuði og
til margs að vinna
Fyrirtækið er með Facebook-síðuna
Garðaþjónusta Reykjavíkur þar sem
hægt er að nálgast frekari upplýsingar
um fyrirtækið og taka þátt í leik þar
sem hægt er að vinna 100.000 kr. inn-
eign í garðvinnu. Auk þess munu verða
dregnir út fjórir sem fá fríar vorklipp-
ingar að verðmæti 30.000 kr. hver. Jafn-
framt munu fimm heppnir fá gefins
garðaúðun að verðmæti 10.000 kr. Það
er nóg til að vinna. Eina sem fólk þarf
að gera er að „like“-a síðuna, kvitta og
deila færslu. Vinningshafar verða svo
tilkynntir föstudaginn 15. apríl. n
E
ignarekstur sérhæfir sig í
persónulegri þjónustu og veitir
faglega ráðgjöf í rekstri hjá hús-
félögum. Markmið fyrirtækis-
ins er að reka húsfélög á hag-
kvæman hátt með þarfir og væntingar
húsfélagsins að leiðarljósi. Eigandi
Eignareksturs er Ragnhildur Guð-
rún Pálsdóttir framkvæmdastjóri. Páll
Haraldsson sér um bókhaldsþjónustu
Eignareksturs og Haraldur Rafn Páls-
son er lögfræðingur fyrirtækisins. Þrí-
eykið býr að reynslu í rekstri húsfélaga
og hefur áunnið sér traust viðskipta-
vina sinna: „Við leggjum áherslu á að
vera í liprum og góðum samskiptum
við viðskiptavini okkar,“ segja þau.
Lækkun húsgjalda og ráðgjöf
„Það er nokkuð algengt að fólk hafi lít-
inn sem engan tíma til þess að sinna
hagsmunum húsfélaga en þar komum
við til skjalanna. Við aðstoðum m.a.
við að lækka húsgjöldin og leggjum til
ráðgjöf við hæfi. Það er okkar sérstaða
að vera persónuleg og sjá um allt fyrir
húsfélögin. Við bjóðum framúrskar-
andi þjónustu og lægra verð.“
Sérsniðin þjónusta
„Við hjá Eignarekstri sérsníðum þjón-
ustu okkar að hverju og einu hús félagi.
Húsfélög gera vissulega mismunandi
kröfur og hafa ólíkar þarfir. Við berum
hag húsfélagsins fyrir brjósti og erum
með lausnir á lægri kostnaðarliðum
á aðkeyptri þjónustu fyrir húsfé-
lög. Við komum ef þess er óskað og
kynnum okkar starfsemina, ykkur að
kostnaðar lausu.“ n
Eignarekstur
Sími: 612-5005
eignarekstur@eignarekstur.is
www.eignarekstur.is
Eignarekstur: Fagleg
ráðgjöf fyrir húsfélög