Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2016, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2016, Side 12
12 Fréttir Vikublað 15.–17. mars 2016 Karamella og perur Súkkulaði og ferskjur Vanilla og kókos Bragðgóð grísk jógúrt að vestan Framsal eigna er „einstakt tilFelli“ n Lögmaðurinn Lee Buchheit segir niðurstöðuna í uppgjöri slitabúanna fordæmalausa í alþjóðlegri S ú niðurstaða sem náðist varðandi uppgjör slitabúa gömlu bankanna, þar sem kröfuhafar samþykktu að framselja til íslenskra stjórn­ valda án endurgjalds innlendar eignir sem eru metnar á mörg hundruð milljarða króna, er fordæmalaus í al­ þjóðlegri fjármálasögu. Þetta er mat bandaríska lög­ mannsins Lee Buchheit sem aðstoð­ aði stjórnvöld við vinnu að losun fjár­ magnshafta en hann hefur áratuga reynslu af því að glíma við þekktustu vogunarsjóði heims í störfum sínum – núna nýlega sem ráðgjafi grískra og argentínskra stjórnvalda. Buchheit var staddur hér á landi í lok síðustu viku og í viðtali við DV ræddi hann um haftaáætlun íslenskra stjórnvalda og skuldaskil gömlu bankanna sem hafa núna lokið nauðasamningum eftir að hafa fengið undanþágu frá fjármagnshöftum til að greiða út er­ lendar eignir sínar til kröfuhafa. Buchheit segir að sú staðreynd að uppgjör slitabúanna – Glitnis, Kaup­ þings og gamla Landsbankans (LBI) – hafi þær afleiðingar að tæplega 500 milljarðar króna renna til íslenskra stjórnvalda „sé sannarlega einstakt tilfelli“ sem hann hafi aldrei orðið vitni að áður í störfum sínum. Hann viðurkennir jafnframt að „þetta sé fjárhagslega betri niðurstaða fyrir Ís­ land en hann hafi að minsta kosti reiknað með“ að væri hægt að ná fram þegar hann kom fyrst að þessari vinnu fyrir stjórnvöld sumarið 2014. Hafði jákvæðar afleiðingar Buchheit ítrekar hins vegar, rétt eins og seðlabankastjóri og forystumenn stjórnvalda hafa einnig gert, að í allri vinnu framkvæmdahóps stjórn­ valda að losun hafta hafi markmiðið sem slíkt aldrei verið að koma fram fram tillögur sem væru tekjuöflunar­ leið fyrir ríkissjóð, heldur aðeins að tryggja að krónueignir slitabúanna myndu ekki valda gengisóstöðug­ leika ef þeim yrði hleypt úr landi. „En niðurstaðan sem náðist að lok­ um hafði þær jákvæðu afleiðingar að uppgjör slitabúanna aflar verulegra fjármuna fyrir ríkið og Seðlabanka Ís­ lands. Þegar öllu er lokið þá mun stöð­ ugleikaframlagið, og þá erum við ekki taka með í reikninginn þann ávinn­ ing sem fylgir öðrum ráðstöfunum á borð við fjármögnun bankakerfisins í erlendri mynt, þýða að ríkið fær af­ hent án endurgjalds eignir sem nema um fjórðungi af landsframleiðslu Ís­ lands,“ útskýrir Buchheit, og heim­ færir þessa niðurstöðu á Bandaríkin. „Ímyndaðu þér ef Barack Obama Bandaríkjaforseti gæti notið góðs að því ef einhver myndi afhenda honum ávísun upp á 6–7 billjónir Bandaríkja­ dala,“ segir hann og hlær. Niðurstaðan ekki formsatriði Sá málflutningur hefur engu að síð­ ur heyrst úr ýmsum áttum, meðal annars hjá þingmönnum sem áttu sæti í síðustu ríkisstjórn, að það hafi nánast verið formsatriði að fá er­ lenda kröfuhafa til að fallast á stöð­ ugleikaskilyrði stjórnvalda – og gefa eftir nánast allar innlendar eignir sín­ ar. Kröfuhafar hafi með öðrum orðum um árabil verið reiðubúnir að fallast á slíka niðurstöðu gagnvart íslenskum stjórnvöldum. Aðspurður hvort hann taki undir þessi sjónarmið svarar Buchheit því skýrt að raunveruleikinn hafi verið allt annar. „Nei, nei, nei, nei. Það var svo sannarlega ekki einhver óumflýj­ anleiki með þá niðurstöðu sem náð­ ist í þessu máli. Kröfuhafar tóku þá afstöðu að erlendar eignir slitabú­ anna sköpuðu engan vanda gagn­ vart greiðslujöfnuði Íslands en viður­ kenndu að það þyrfti að grípa til ráðstafana vegna hluta krónueign­ anna – þó ekki öllum – þannig að útgreiðsla þeirra ógnaði ekki gengis­ stöðugleika. Hugmyndir þeirra til að taka á þessum vanda fólu það í sér að krónueignirnar yrðu greiddar út yfir lengra tímabil fremur en að gefa þær nánast allar eftir til íslenskra stjórn­ valda.“ Tæknileg og pólitísk vídd Buchheit bendir hins vegar á að kröfu hafar og fulltrúar þeirra hafi meira verið að líta til þess hvað stjórn­ völd álitu viðeigandi ráðstafanir til að leysa þennan vanda er laut að krónu­ eignum slitabúanna. „Þeir virtust líka átta sig á því að fyrir íslensk yfirvöld var þetta mál ekki aðeins tæknilegs eðlis, heldur hafði það einnig póli­ tíska vídd.“ Kjarni þess vanda sem við var að eiga, útskýrir Buchheit, var sem fyrr segir að búa þannig um hnútana samhliða skuldaskilum bankanna að mörg hundruð milljarða krónu­ eign þeirra hefði ekki neikvæð áhrif á greiðslujöfnuð Íslands. „Ein leið til að gera það, og mjög harkaleg leið, var að beita skattlagningarvaldi ríkisins. Krónueign slitabúanna þriggja nam samtals um 37% af heildareignum þeirra. Ef við hefðum lagt flatan skatt Hörður Ægisson hordur@dv.is Buchheit aðstoðar við aflandskrónuútboðið Lee Buchheit hefur nýlega verið fenginn til að veita íslenskum stjórnvöldum ráðgjöf vegna fyrirhugaðs útboðs á aflandskrónum að fjárhæð um 300 millj- arðar. Stefnt hefur verið að því að laga- frumvörp og útboðsskilmálar í tengslum við útboðið geti litið dagsins ljóst öðrum hvorum megin við næstu mánaðamót. Standist sú tímasetning ætti framkvæmd útboðsins að gera farið fram snemma í maímánuði. Buchheit staðfestir í viðtali við DV að hann sé að veita þeim hópi sem vinnur að útboðinu fyrir hönd Seðlabankans ráð- gjöf. Hann segir að aflandskrónuvandinn sé mjög ólíkur þeim vanda sem hafi staf- að af slitabúunum. Aðspurður segist hann hins vegar eiga von á því að útboðið muni klárast með farsælum hætti fyrir Ísland og í kjölfarið verði hægt að lyfta höftum af íslenskum heimilum og fyrirtækjum. Rétt eins og DV hefur áður upplýst um þá er aflandskrónustabbinn að mestu í eigu aðeins fjögurra erlendra fjárfestinga- sjóða. Til stendur að Seðlabankinn haldi annars vegar gjaldeyrisuppboð þar sem aflandskrónueigendur greiða „verulegt álag“ kjósi þeir að losna strax með fé sitt úr höftum. Hins vegar útgáfu ríkisskulda- bréfs í krónum til 20 ára sem samræmist greiðslujöfnuði þjóðarbúsins og útgöngu- gjaldi fyrstu sjö árin eða skuldabréfi til meðallangs tíma í evrum. Þeir fjárfestar sem fallast ekki á þessi skilyrði stjórn- valda munu enda með krónueignir sínar á læstum reikningum til langs tíma á eng- um eða neikvæðum vöxtum. Lykilatriðið er því að enginn fjárfestir er þvingaður til að taka þátt í útboðinu heldur standa þeir frammi fyrir ólíkum valkostum. „Nei, nei, nei, nei. Það var svo sannarlega ekki einhver óumflýjanleiki með þá niðurstöðu sem náðist í þessu máli. Lee Buchheit „Hefðu þessir vogunarsjóðir ákveðið að sínu eigin frumkvæði að gefa eftir eignir að slíkri fjárhæð ef við hefðum bara látið samskotabauk ganga á milli manna á þessum fundum? Ég held ekki.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.