Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2016, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2016, Blaðsíða 32
Vikublað 15.–17. mars 201620 Sport Þ að var bara tímaspursmál hvenær hann tæki skrefið út,“ segir Ágúst Þór Gylfa- son, þjálfari karlaliðs Fjölnis í knattspyrnu, um Fjölnismanninn – nú leikmann Tromsö – Aron Sigurðarson. Aron skoraði glæsilegt mark fyrir Tromsö gegn stórliði Molde í fyrstu um- ferð norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu um helgina og þótti besti maður vallarins. Aron er ný- genginn til liðs við félagið. Eftir leikinn sagði goðsögnin Ole Gunnar Solskjær, þjálfari Molde, að hann hefði sjálfur viljað kaupa Aron um daginn, en að reglur um fjölda erlendra leikmanna hefðu komið í veg fyrir það. Norskir fjöl- miðlar fóru strax eftir leikinn að spá því að Aron myndi ekki staldra lengi við hjá Tromsö. Hans biðu stærri hlutir. En á meðan krafta hans nyti við ættu stuðningsmenn félagsins að njóta þess að fylgjast með honum spila. Lögðu á ráðin í nóvember Aron átti frábært tímabil með Fjölni í fyrra og var trekk í trekk valinn maður leiksins. Ágúst hefur þjálf- að Aron um árabil og nýtur þess að fylgjast með velgengni hans. „Þetta gerðist á mjög stuttum tíma,“ segir hann um aðdraganda þess að Aron fór í atvinnumennsku. Aron hafi verið búinn að eiga þrjú eða fjögur mjög góð tímabil á Íslandi þegar þeir félagar settust niður í nóvem- ber í fyrra og lögðu á ráðin með að Aron færi í atvinnumennsku í vor. Aron fékk tækifæri til að fara til reynslu til Tromsö þann 18. janúar og stóð sig þar með sóma. Nokkrum dögum síðar, þann 27. janúar, spilaði hann sinn fyrsta A-landsleik, gegn Bandaríkjunum. Þar skoraði hann annað marka Íslands og var valinn besti maður Íslands í leiknum. Jarðbundinn utan vallar Ágúst segir að ferill Arons og þau tilþrif sem hann hefur sýnt úti á vellinum að undanförnu hafi ekki farið fram hjá neinum. „Hann er loksins kominn á kortið og þá er ekki aftur snúið. Aron er frábær „entertainer“ á vellinum og gerir þar ótrúlegustu hluti. Það leiðist engum að sjá menn taka skæri og taka menn á,“ segir hann. Ágúst segir að þó Aron spili af feiknalegu sjálfstrausti á vellinum – og jafnvel smá hroka – sé hann afar blíður utan vallar. „Það eru engir stælar utan vallar og hann er með hausinn rétt skrúfaðan á.“ Hann sé afar jarðbundinn, hafi mikið metnað til að ná langt og æfi sjálfur aukalega til að ná markmiðum sínum. Hann hafi unnið mikið í líkamlegum styrk og þeim þáttum sem hann þurfti að bæta. „Þetta er einfaldlega allt að smella saman á réttum tíma.“ Ágúst segist vera í góðu sambandi við Aron og veiti honum þann stuðning sem hann getur. Mikilvægast fyrir hann sé nú að halda áfram að spila vel í Noregi og ná þar stöðugleika í leik sínum. „Hann þarf að halda áfram að skora mörk og leggja þau upp – þá kemur hitt af sjálfu sér,“ segir Ágúst spurður hvað hann telji að Aron geti farið langt. Hjá Tromsö geti hann bætt sig mikið sem leikmaður. Sjálfur sagði Aron í viðtali við norska ríkis útvarpið á dögunum að hann hafi metnað til að spila í bestu deildum heims og verða fastamaður í landsliðinu. Hefur X-factor Handan við hornið er fyrsta stórmót íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, en flautað verður til leiks á EM þann 14. júní. Þar er samkeppni um stöður hörð. Ágúst er þó ekki í vafa um að Aron eigi þar heima. „Hann getur tekið menn á og skorað glæsileg mörk. Hann er alveg óhræddur og þeir hljóta að íhuga að taka hann með. Hann hefur þennan X-factor og ég skora að sjálfsögðu á Lars og Heimi að taka hann með. Það er aldrei að vita nema við þurfum á honum að halda.“ n Baldur Guðmundsson baldur@dv.is Fagnað í Fjölnistreyju Aron tileinkaði fyrsta markið fyrir Tromsö föður sínum, Sigurði Hallvarðssyni, sem lést eftir baráttu við krabbamein 2014.„Frábær entertainer“ n Aron Sigurðarson slær í gegn í Noregi n Lagði á ráðin með Ágústi Gylfa í nóvember SJÓNMÆLINGAR LINSUR • GLERAUGU Skólavörðustígur 2 • 101 Reykjavík Sími: 511 2500 • www.gleraugad.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.