Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2016, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2016, Blaðsíða 31
Umræða 19Vikublað 15.–17. mars 2016 Myndin Sviptingar í veðri Eftir kaldan vetur er vorið á næsta leiti. mynd Þormar Vignir gunnarSSon Ég var álkulegur en ágætur Ég sá útreikninga í þá veru á dögunum og það eru gígantískar upphæðir Við fórum alla leið í 2007 vitleysunni Ævar Þór Benediktsson var nörd þegar hann var unglingur. – DV Karl garðarsson ítrekar að taka verði á gjaldtökumálum á ferðamannastöðum. – DV Signý Björk Ólafsdóttir missti allt á nokkrum árum. – Fréttatíminn T ryggingafélögin hafa nú látið undan þrýstingi frá al- menningi, vegna víðtækrar óánægju með framferði þeirra í iðgjalda og arð- greiðslumálum. Þau ætla að lækka arð- greiðslurnar. En þau ætla ekki að láta við- skiptavini njóta breyttra reglna ESB um bótasjóði né góðrar afkomu af ávöxtun þeirra. Það ætla þau að hafa alfarið áfram fyrir eigendur. Líka ofteknu iðgjöldin. Tryggingafélögin hafa sem sagt ekki enn lært lexíu sína, eins og FÍB bendir á. Þess vegna þarf að veita þeim mun meira aðhald. Nú ættu sem flestir viðskiptavinir stóru tryggingafélaganna þriggja að snúa sér til tryggingafélagsins Varð- ar og óska eftir tilboðum í tryggingar sínar (hringja eða senda skilaboð á netfang þeirra). Það er auðvelt, gerist fljótt og án nokkurrar fyrirhafnar. Vörður hefur ekki tilkynnt um neinar sambæri- legar arðgreiðslur og stóru félögin. Ég hef heyrt af mörgum sem hafa fengið tilboð þaðan með umtals- verðri lækkun iðgjalda. Menn geta slegið tvær flugur í einu höggi ef flutningur viðskipta til annars félags felur að auki í sér lækk- un iðgjalda. Þá er gráðugum skúrkum refsað og kjör viðskiptavina bætt. Það er mikil þörf á að kenna tryggingafélögunum hvað samkeppni er. Raunar þarf að kenna miklu fleiri fyrirtækjum á Íslandi þá lexíu. Þegar fyrirtæki ganga fram af óbilgirni gagnvart viðskiptavinum og starfsfólki, eða með siðleysi og græðgi gagnvart samfélaginu, þá á fólk að leita annað – ef hægt er. Það er hægt í máli tryggingafé- laganna. Nú skulum við sem flest kenna þeim hvað samkeppni er og kanna kjörin hjá öðrum. n Sýnum þeim hvað samkeppni er Stefán Ólafsson skrifar Af Eyjunni Sími 568-5556 www.skeifan.is Eysteinn Sigurðsson Löggiltur fasteignasali / Sími: 896-6000 eysteinn@skeifan.is / skeifan.is Magnús Hilmarsson Sölumaður / Sími: 896-6003 magnus@skeifan.is / skeifan.is Sigurður Hjaltested Löggiltur fasteignasali / Sími: 821-5400 sigurdur@skeifan.is / skeifan.is Föst söluÞÓKNuN Sími 568- 5556 www .skeifan.is 1% + vsk.Vegna mikillar sölu vantar allar stærðir eigna á skrá

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.