Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2016, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2016, Blaðsíða 23
Helgarblað 15.–17. mars 2016 Kynningarblað - Sameignin 5 B ræðurnir Hjörleifur og Ró- bert eru eigendur Garða- þjónustu Íslands, sem var stofnuð í febrúar árið 2008. Að sögn Hjörleifs er þeirra sérsvið alhliða garðaþjónusta. „Við stofnuðum fyrirtækið í hruninu, þegar stærri framkvæmdir urðu sjaldgæfari ; sem sagt hellulögn og smíðavinna. Við urðum að bregð- ast við því og vera í stakk búnir til að taka það sem bauðst hverju sinni. Þess vegna hefur þetta þróast þannig að við erum orðnir vel tækjum búnir í allt sem tengist garðinum, frá beðahreinsunum og upp í allsherjar lóðabreytingar,“ segir Hjörleifur. „Við erum að helluleggja, sjáum um smíðavinnu og erum með öfluga viðhaldsþjón- ustu; við sinnum snjómokstri og hálkueyðingu á veturna. Auk þess sjáum við um klippingar, gróður- setningar og garðslátt, séu dæmi nefnd, fyrir húsfélög, einstaklinga og fyrirtæki. Við erum mjög vel tækjum búnir í alla fyrrnefnda þjónustu og gerum allt frá A til Ö,“ bætir hann við. Mikilvægt að panta þjónustu tímanlega Að sögn Hjörleifs er mjög mikið að gera og nóg af verkefnum. Mikil fjölgun hefur orðið í stærri verk- efnum. „Í fyrra náðum við til dæm- is ekki að sinna öllum fyrirspurn- um út af sprengingu sem varð á markaðnum. Það er staða sem við höfðum ekki upplifað áður. Eft- irspurnin hefur aukist gríðarlega og því er mikilvægt ef fólk er að hugsa um nýframkvæmdir og að taka garðana sína í gegn, að skipu- leggja fram í tímann og fá tilboð og ráðgjöf tímanlega,“ segir Hjör- leifur. Til að panta þjónustu eða skoðun er best að hafa samband við eigendur í síma 844-6547 eða 866-9767. Best er að hafa samband milli kl. 08.00–17.00 alla virka daga. Persónuleg þjónusta í hávegum höfð „Við höfum upplifað freistingar á leið okkar upp á við; að stækka fyrir tækið og þenjast út, en við höfum ekki áhuga á því,“ segir Hjörleifur. „Það sem við viljum er að geta verið í góðu sambandi við viðskiptavini okkar, staðið við orð okkar og að gæði vinnunnar séu okkur til sóma. Þess vegna höfum við lagt áherslu á að missa aldrei yfirsýn á starfsemina,“ segir Hjör- leifur. Til þess fá meiri upplýsingar um fyrirtækið er hægt að fara á www.garda.is eða Facebook-síðu fyrirtækisins. n Garðaþjónusta Íslands: Alhliða garðaþjónusta

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.