Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2016, Side 2
2 Fréttir Vikublað 26.–28. apríl 2016
J
ón Sigurðsson, fyrrverandi for
stjóri fjárfestingafélagsins FL
Group, hætti nýlega störfum hjá
fjármálafyrirtækinu GAMMA
Capital Management. Jón hafði starf
að við sérhæfðar fjárfestingar hjá
GAMMA frá árinu 2012 en Straum
nes eignarhaldsfélag, sem er í eigu
Bjargar Fenger, eiginkonu Jóns, og
fjölskyldu, á 9,99% hlut í GAMMA.
Þá hefur Friðrik Már Baldursson,
prófessor í hagfræði við Háskólann
í Reykjavík, verið ráðinn sem efna
hagsráðgjafi GAMMA. Ásgeir Jóns
son, dósent í hagfræði við Háskóla
Íslands, hafði áður gegnt sama starfi
hjá félaginu en hann sagði upp störf
um hjá GAMMA í árslok 2014 og
starfar núna sem efnahagsráðgjafi
Virðingar.
Jón hyggst einbeita sér að fjár
festingum í gegnum fjárfestinga
félagið Helgafell ehf. sem er í jafnri
eigu eiginkonu Jóns, Ara Fenger og
Kristínar Fenger Vermundsdóttur.
Eignir félagsins námu 1.550 millj
ónum króna í árslok 2014 og þar
af voru eignir Helgafells í skráðum
og óskráðum félögum metnar á ríf
lega 1.400 milljónir. Er félagið meðal
annars sjöundi stærsti hluthafi N1
með 4,21% eignarhlut og situr Jón
í stjórn olíufélagsins. Jón á einnig
sæti í stjórn evrópska drykkjarvöru
framleiðandans Refresco en áður var
hann í stjórn Tryggingamiðstöðvar
innar, Icelandair Group og Glitni. n
hordur@dv.is
Jón Sigurðsson
hættur hjá GAMMA
Eiginkonan á 10% hlut í félaginu
Jón Sigurðsson
Situr meðal annars
í stjórn N1.
R
ithöfundurinn Andri Snær
Magnason hefur mest fylgi
allra forsetaframbjóðenda á
Facebook af þeim frambjóð
endum sem útbúið hafa sér
staka kosningasíðu á samfélagsmiðl
inum vinsæla. Ljóst er að Facebook
getur reynst frambjóðendum haukur
í horni við að koma sér á framfæri
sem og áherslum sínum í kosninga
baráttunni enda mikill meirihluti Ís
lendinga á Facebook. Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, hefur enn
sem komið er ekki stofnað sérstaka
Facebooksíðu um framboð sitt að
þessu sinni.
Með 15 þúsund fylgjendur
Samkvæmt athugun DV eru sex
frambjóðendur af tólf með sérstaka
framboðssíðu á Facebook, en þar
af eru tveir sem höfðu stofnað sínar
fyrir löngu í jafnvel öðrum tilgangi,
en nota þær til að vekja athygli á
framboði sínu nú. Alls eiga forseta
frambjóðendurnir sex ríflega 15.600
fylgjendur á Facebook.Tveir fram
bjóðendur sem nú hafa dregið sig úr
kapphlaupinu, þeir Vigfús Bjarni Al
bertsson og Bæring Ólafsson, voru
með framboðssíðu á Facebook áður
en þeir hættu. Eru þeir því ekki með
í tölfræðinni.
Andri með 43% fylgjenda
Notendur geta „lækað“ við síður
frambjóðenda og fá þá tilkynningar,
upplýsingar og auglýsingar þeirra
beint af kúnni. Af öllum þeim fram
bjóðendum sem eru með svona síð
ur er Andri Snær Magnason í sér
flokki. Þegar þetta var tekið saman,
á mánudagsmorgun, var hann með
6.772 fylgjendur, eða ríflega 43% allra
Facebookfylgjenda forsetafram
bjóðenda.
Halla Tómasdóttir hefur verið á
talsverðri siglingu á Facebook og bætt
við sig fjölda fylgjenda að undan
förnu. Er hún með 2.564 fylgjendur,
nokkrum fleiri en Ari Jósepsson sem
stofnaði sína fylgjendasíðu árið 2009,
þá alls ótengt forsetaframboði. Síðuna
notaði hann áður til að vekja athygli
á myndbandsbloggi sínu og öðrum
uppátækjum, en notar hana nú til að
vekja athygli á framboði sínu. Ástþór
Magnússon hefur sömuleiðis verið
lengi á Facebook með sína síðu, eða
frá 2010, og notar hana mikið til að
vekja athygli á forsetaframboði sínu
að þessu sinni. Hefur hann þó að
eins náð að krækja í 1.749 fylgjendur
á þeim tíma. Hrannar Pétursson er
með 1.481 en Hildur Þórðardóttir
rekur lestina með aðeins 511.
Facebook mikilvægt
Eins og fram kom í helgarblaði DV
töldu álitsgjafar blaðsins að Andri
Snær væri líklegastur til að veita Ólafi
Ragnari verðuga samkeppni í kosn
ingunum í sumar, þar til í ljós kem
ur hvað Guðni Th. Jóhannesson gerir.
Aldrei er að vita nema Andri noti Face
book til að vinna kjósendur á sitt band.
Andrés Jónsson almannatengill
segir að Facebook sé lykillinn fyrir
forsetaframbjóðendur, aðra en Ólaf
Ragnar. Þangað sæki Íslendingar
fréttirnar sínar og færsla þar, sem
mörgum líkar við og margir deila, geti
náð í gegn í umræðunni.
Andri Snær
er forSetinn
á fAcebook
n Með langflesta fylgjendur
„Það er því mjög góð leið til að
koma skilaboðum út, bregðast við
umræðu eða ummælum keppninaut
ar,“ segir Andrés og bendir á mikilvægi
mynda, myndbanda og sjónræna
þáttarins sem skipti miklu máli við val
á forseta. Þar sé Facebook lykilatriði.
„Hins vegar getur það líka skemmt
fyrir frambjóðanda sem fær litlar
undirtektir við því sem hann setur á
Facebook, því þá virðist hann njóta
lítils stuðnings og getur því verið
dæmdur úr leik. Þetta er því tvíeggja
sverð.“
Vakin er athygli á því að þessi út
tekt er aðeins til gamans gerð og vert
að benda á að almenningur getur
„lækað“ við fleiri en einn frambjóð
anda. Eitt liggur hins vegar fyrir, Andri
Snær er með flest „læk“. n
Andri Snær Magnason
43,3% fylgi á Facebook
Ari Jósepsson
16,3% fylgi á Facebook
Hrannar Pétursson
9,4% fylgi á Facebook
Halla Tómasdóttir
16,4% fylgi á Facebook
Ástþór Magnússon
11% fylgi á Facebook
Hildur Þórðardóttir
3,2% fylgi á Facebook
6.772 2.564
2.560 1.749
1.481 511
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Meðlimum Cobra
vísað úr landi
Lögreglan á Suðurnesjum vísaði
á fimmtudag þremur meðlimum
vélhjólaklúbbsins Cobra, sem er
stuðningsklúbbur MC Bandidos,
úr landi. Mennirnir þrír kváðust
vera forseti, varaforseti og ritari
Cobramótorhjólasamtakanna
og komu þeir frá Kaupmanna
höfn. Samkvæmt fréttatilkynn
ingu lögregluembættisins fund
ust einkennismerki klúbbsins
og fatnaður merktur Cobra í far
angri mannanna. Lögreglan á
Suðurnesjum gerði þeim grein
fyrir því að vegna tengsla Cobra
við vélhjólaklúbbinn Bandidos,
sem skilgreindur er sem skipu
lögð glæpasamtök, fengju þeir
ekki að fara inn í landið. Þeir voru
því vistaðir á lögreglustöð á landa
mærum þar til þeir fóru úr landi.
Tóku á flugdólgi
og túristum
Flytja þurfti ölvaðan farþega, sem
var á leið í flug frá Keflavíkur
flugvelli til Alicante um helgina,
á lögreglustöð til vistunar eftir
að hann æstist þegar honum var
meinað að fljúga með vél sinni.
Hafði hann þá verið með óspekt
ir á flugvellinum og síðan inni í
vélinni.
Áður hafði lögreglan á
Suðurnesjum haft afskipti af hópi
erlendra karlmanna sem komu
með flugi frá Berlín. Voru þeir
staðnir að því að taka upp mynd
bönd af flugfreyjum við störf sín
á síma sem þeir létu síga niður að
gólfi við sætin þannig að mynda
vélin sneri upp við tökuna. Sam
kvæmt tilkynningu lögreglu
embættisins höfðu starfsmenn
þess upp á handhafa símans og
reyndist hann hafa haft lítið er
indi sem erfiði með upptökun
um. Kvaðst hann sjá mjög eftir
þessu, baðst afsökunar og eyddi
öllu efninu úr símanum í viður
vist flugfreyja og lögreglu.