Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2016, Blaðsíða 8
8 Fréttir Vikublað 26.–28. apríl 2016
Náttúrulegar
hágæða
gæludýravörur F
jölgað hefur verið í hópi
þeirra sem eiga fast sæti í
ráðherranefnd um efnahags-
mál en Lilja Dögg Alfreðs-
dóttir, sem tók nýlega við embætti
utanríkisráðherra, og Ólöf Nordal,
innan ríkisráðherra og varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins, hafa
núna tekið sæti í nefndinni. Var
þetta ákveðið á ríkisstjórnarfundi
15. apríl síðastliðinn.
Fyrir áttu aðeins Sigurður Ingi
Jóhannsson forsætisráðherra og
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, fast sæti í ráð-
herranefnd um efnahagsmál. Með
nefndinni starfa embættismenn í
forsætis- og fjármálaráðuneytinu.
Ráðherranefnd um efnahags-
mál var upphaflega komið á fót
haustið 2009 af ríkisstjórn Jó-
hönnu Sigurðardóttur. Er hlutverk
nefndarinnar einkum að fjalla um
og undirbúa stefnu ríkisstjórnar-
innar í efnahagsmálum og gegna
eftirlits- og samræmingarhlut-
verki við framkvæmd stefnunn-
ar. Á meðal stórra verkefna sem
nefndin hefur haft aðkomu að ný-
lega er ákvörðun Seðlabanka Ís-
lands um að veita slitabúum föllnu
bankanna undanþágu frá höftum í
lok október á síðasta ári.
Á meðal þeirra mála sem fyrir-
séð er að verði fjallað um á vett-
vangi ráðherranefndar um
efnahagsmál á næstunni er út-
boð Seðlabanka Íslands til að
leysa út tæplega 300 milljarða
aflandskrónueignir. Áður en
Lilja, sem var aðstoðarfram-
Lilja í ráðherranefnd um efnahagsmál
Utanríkisráðherra og innanríkisráðherra fá fast sæti í
„Mig langaði bara að deyja“
n Bjarney Lára endaði á gjörgæslu eftir neyslu LSD n Vonar að fólk hugsi sig tvisvar um
É
g var á þessum tíma ung og vit-
laus og hafði ekki mikla reynslu
í þessum heimi og var ekki
meira viss um þetta en svo. Því
fór sem fór og þetta varð heil-
mikil lexía fyrir mig,“ segir Bjarney
Lára Sævarsdóttir, sem eina örlaga-
ríka páskahelgi fyrir sautján árum
endaði á gjörgæsludeild eftir hræði-
lega reynslu af LSD.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
sendi frá sér tilkynningu í síðustu viku
þar sem varað var við því að neysla
ofskynjunarlyfsins LSD væri að fær-
ast í aukana á meðal ungmenna. Sí-
fellt fleiri tilfelli kæmu nú inn á borð
lögreglu og svo virtist sem LSD væri
komið í tísku hjá ákveðnum hópi
ungs fólks, sem seld væri hugmyndin
um hættulaust ferðalag til að upplifa
nýjar víddir og skynjun. Lögreglan og
fleiri sérfræðingar vara þó við að LSD
geti reynst stórhættulegt efni. Þó eru
fjölmargir sem telja að LSD kunni,
undir réttum kringumstæðum og
með „réttri notkun“ hreinlega að
reynast allra meina bót. Bjarney féllst
á að segja reynslusögu sína af efninu
í von um að hún verði öðrum ung-
mennum og einstaklingum, sem séu
að hugleiða að prófa ofskynjunarlyfið
alræmda, víti til varnaðar.
Sófasett og veggir lifnuðu við
Nokkru áður en hún lenti í því sem
hún lýsir sem helvíti á jörð hafði hún
prófað LSD í fyrsta skipti. Upplifun-
in var jákvæð. Hún kveðst hafa verið
ung og óreynd í heimi fíkniefnanna
þó að hún hafi prófað amfetamín í
nokkur skipti.
„En ég tók þarna hálfa sýru, eða
hálfan skammt. Það var rosalega „in-
tense“ og ég fór mjög hátt upp. Miklar
ofskynjanir og ég var við það að verða
hrædd, en samt ekki því ég var svo
forvitin að sjá hvað kæmi næst,
því þetta var algjört ferðalag. Það
lifnaði allt við. Sófasettið lifnaði við
og veggirnir urðu eins og ég væri að
horfa á skjávarpa. Það komu teikni-
myndafígúrur út úr veggnum og það
var allt á lífi. Ég grét úr hlátri og þetta
var alveg rosalegt. Ég trúði ekki mín-
um eigin augum – að þetta gæti gerst.
Og svona hélt ég að þetta yrði alltaf á
LSD. Alltaf svona skemmtilegt.“
En raunin varð önnur eins og
Bjarney komst að um páskana árið
1999. Margir samverkandi þættir
spiluðu þar inn í. Fyrir það fyrsta var
hún búin að vera vakandi í sex daga.
Hafði neytt e-taflna og amfetamíns
í nokkru magni og því varla í miklu
jafnvægi eða í góðu ástandi líkam-
lega að eigin sögn.
„Við vorum nú ekki tilbúin að
hætta, ég man það. Við vorum reiðu-
búin að finna eitthvað meira og gera
eitthvað skemmtilegt. Svo ég fann
einn vin minn sem var með einn
„pappa.“ Við vorum fjögur saman og
skiptum honum í fjögur brot. Það
endaði illa.“
Það sem Bjarney vissi nefnilega
ekki var að þessi skammtur af LSD
var í raun þrefalt sterkari en sýran
sem hún hafði svo jákvæða reynslu
af í fyrra skiptið. „Þetta litla brot
reyndist þrídýfð sýra. Ég hafði ekki
hugmynd um það og það endaði
bara mjög illa.“
Hún rifjar upp að áhrifin hafi byrj-
að hægt og rólega.
Byrjaði að bráðna
„Ég hélt að þetta væri að verða eins og í
fyrsta skiptið. Litirnir fóru að breytast,
það fór að teygjast á öllu og ofskynjan-
ir fóru að gera vart við sig. Svo urðu tvö
af okkur svolítið skelkuð og það urðu
læti í kringum okkur. Það var einhver
æsingur þarna og ég sagði þeim að
róa sig niður því það væri ekki sniðugt
að koma með hræðslu inn í þetta. En
þau hættu ekki og ég tók það einhvern
veginn þannig inn á mig að ég byrjaði
bara að bráðna. Ég veit að það hljóm-
ar ótrúlega en þetta er ógeðslegasta
tilfinning sem ég hef upplifað á ævi
minni – að byrja að bráðna.“
Hún lýsir þessu á þann veg að hún
hafi ekki þekkt muninn á því sem
var blautt og þurrt. Í ofvæni hafi hún
skrúfað frá krana í vaskinum.
„Til að reyna að finna hvort ég væri
að upplifa rétta tilfinningu. Ég bara
fann ekki muninn, því mér fannst ég
sjálf vera bara öll að leka. Upp úr því
varð ég skíthrædd. Litirnir voru svo
rosalega skærir. Þetta var eins og vera
fastur í Simpsons-teiknimynd. Þetta
var rosalega óþægilegt og upp frá því
hugsaði ég bara; ég kemst örugglega
aldrei héðan út.“
Ótti og paranoja greip um sig. Eftir
einhverja rekistefnu þeirra á milli var
ákveðið að hringja á sjúkrabíl.
Langaði að deyja á sjúkrahúsinu
„Löggan kom þarna að okkur og lög-
reglumennirnir héldu kannski að þeir
væru komnir í eitthvert „böst“ en við
sögðum bara: Nú þurfum við bara
hjálp, það er ekkert hérna fyrir ykkur
að hafa. Það komu fjórir sjúkrabílar
sem brunuðu með okkur á gjörgæslu.
Þar tóku við margir klukkutímar af
einhverri geðveiki. Mig langaði bara
að deyja. Læknirinn sagði að það væri
ekkert hægt að gera – þú deyrð ekkert,
þér líður bara eins og þú sért að deyja.
Þú verður bara að harka þetta af þér.“
Aðspurð hvort það hafi þurft að
binda hana niður segir hún að það
hafi ekki mátt. Hún hafi alltaf verið
látin setjast á rúm sem hún klifraði
alltaf niður af aftur.
„Ég gat ekki verið kyrr. Það var allt
á milljón. Mér leið eins og ég væri að
hrapa inn í eitthvert ljós á milljón kíló-
metra hraða. Það var allt á fleygiferð.
Ég gat alveg hugsað skýrt, en ég gat
ekki með nokkru móti stjórnað sjálfri
mér. Ég gat innst inni náð að tala til
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Víti til varnaðar Bjarney
Lára endaði páskahelgina
árið 1999 á gjörgæsludeild
eftir að hafa tekið inn sýru
sem reyndist mun sterkari
en hana óraði fyrir. Henni
fannst hún vera að bráðna
og vildi helst deyja þegar
ofskynjunarlyfið fór með
hana í ferðalag til helvítis.
Nýr utanríkisráðherra
Lilja DöggAlfreðsdóttir.
„Þetta er ógeðs-
legasta tilfinning
sem ég hef upplifað á
ævi minni – að byrja að
bráðna.