Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2016, Side 18
Vikublað 26.–28. apríl 20162 Heitir pottar og gufuböð - Kynningarblað
Heitir pottar - íslenska
framleiðsla í 30 ár
N
ormX er rúmlega þrjátíu ára
gamalt íslenskt framleiðslu-
fyrirtæki sem framleiðir
heita potta úr hverfisteyptu
plasti í plastverksmiðju sem
staðsett er í Vogum á Vatnsleysu-
strönd. Að sögn Kjartans Ragnars-
sonar er NormX með verslun og
glæsilegan sýningarsal að Auð-
brekku 6 í Kópavogi. „Í salnum okk-
ar eru til sýnis ýmsar vörur sem við
framleiðum og seljum. Við höfum
sérhæft okkur í heitum pottum en
jafnframt teljum við mjög mikilvægt
að vera með á boðstólum allar vörur
sem tengjast pottunum, líkt og hita-
stýringar, nokkrar gerðir af lokum,
nuddbúnað og ýmsa fylgihluti.“
Frábær kostur í heitum pottum
„Við stöndum við þau orð að heitu
pottarnir frá NormX séu besti
kosturinn hvað varðar bæði gæði
og verð,“ segir Kjartan. „Pottarnir
sem við framleiðum eru einstaklega
sterkir og þola vel fjölbreytileika ís-
lenskrar veðráttu. Þeir eru einkar
auðveldir í þrifum enda framleidd-
ir úr gegnheilu Polyethylene-plasti
með UV-vörn (sólarvörn) og verjast
því sólarljósi vel. Allir heitir pottar
frá NormX eru endurvinnanlegir og
allar gerðir er hægt að fá í mismun-
andi litum.
Við Íslendingar erum þeirrar
gæfu aðnjótandi að hér er langoftast
lítið sem ekkert mál að nálgast heitt
vatn á mjög lágu verði og hönnun
heitu pottanna okkar hjá NormX
taka mið af því og eru djúpir og taka
mikið vatn. Í Snorralauginni, sem er
vinsælasti potturinn okkar, eru t.d.
66 cm frá sæti og upp á brún. Þá ætti
að flæða vel yfir axlir á flestum. Það
er því svo sannarlega leikur einn að
njóta vellíðunar í pottinum hvort
sem sólin skín glatt að sumri til eða
kuldi og snjór sé í kortunum.“
Vinsælustu gerðirnar alltaf til
Kjartan bendir á að afgreiðslutími
NormX pottanna sé skammur þar
sem algengustu og vinsælustu gerð-
irnar séu alltaf til á lager og aðrar er
hægt að framleiða með litlum fyrir-
vara. „Við seljum að sama skapi allar
lagnir sem til þarf, auk nudd-
kerfa og ljósabún-
aðar, allt eftir
óskum viðskipta-
vina. Starfs-
menn okkar
geta einnig
séð um
ísetningu og
tengingar.
Við leggjum
metnað okkar í að
viðskiptavinir okk-
ar séu ánægðir alla
leið,“ segir hann.
Smáhýsi til sýnis
og sölu
NormX býður nú
einnig upp á 14,9 fer-
metra smáhýsi ósam-
sett í sjö einingum.
Gluggar og hurðir eru
þá komnar í einingar
og gólf og þakeiningar
fulleinangraðar.
Lýsing á vönduðu,
fulleinangruðu 14,9 fer-
metra, tveggja herbergja
húsi:
Í hvoru herbergi er tvíbreitt
rúm og 90 cm koja fyrir ofan það.
Dýnur fylgja bæði rúmum og kojum.
Rehau-gluggar og hurðir. Vandaður
panell festur með ryðfríum skrúf-
um. Húsin eru framleidd í mörgum
útfærslum.
Smáhýsi henta vel við ýmsar að-
stæður:
Gistihús á tjaldstæðum, gesta-
hús við sumarbústaði, sum-
arhús, geymsluhús fyrir vél-
sleðann og fjórhjólið,
sæluhús, skíðakofi, bátaskýli,
kvenna- og karlasalerni á
ferðamannastaði, garðhús,
golfbílahús fyrir tvo bíla og
miðasöluhús á íþróttavelli
og ferðamannastaði. n
NormX
Auðbrekku 6
200 Kópavogur
Sími: 565-8899
normx@normx.is.
Opnunartími: Mánudaga til
fimmtudaga 10.00–18.00
Föstudaga 10.00–17.00
NormX