Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2016, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2016, Síða 18
Vikublað 26.–28. apríl 20162 Heitir pottar og gufuböð - Kynningarblað Heitir pottar - íslenska framleiðsla í 30 ár N ormX er rúmlega þrjátíu ára gamalt íslenskt framleiðslu- fyrirtæki sem framleiðir heita potta úr hverfisteyptu plasti í plastverksmiðju sem staðsett er í Vogum á Vatnsleysu- strönd. Að sögn Kjartans Ragnars- sonar er NormX með verslun og glæsilegan sýningarsal að Auð- brekku 6 í Kópavogi. „Í salnum okk- ar eru til sýnis ýmsar vörur sem við framleiðum og seljum. Við höfum sérhæft okkur í heitum pottum en jafnframt teljum við mjög mikilvægt að vera með á boðstólum allar vörur sem tengjast pottunum, líkt og hita- stýringar, nokkrar gerðir af lokum, nuddbúnað og ýmsa fylgihluti.“ Frábær kostur í heitum pottum „Við stöndum við þau orð að heitu pottarnir frá NormX séu besti kosturinn hvað varðar bæði gæði og verð,“ segir Kjartan. „Pottarnir sem við framleiðum eru einstaklega sterkir og þola vel fjölbreytileika ís- lenskrar veðráttu. Þeir eru einkar auðveldir í þrifum enda framleidd- ir úr gegnheilu Polyethylene-plasti með UV-vörn (sólarvörn) og verjast því sólarljósi vel. Allir heitir pottar frá NormX eru endurvinnanlegir og allar gerðir er hægt að fá í mismun- andi litum. Við Íslendingar erum þeirrar gæfu aðnjótandi að hér er langoftast lítið sem ekkert mál að nálgast heitt vatn á mjög lágu verði og hönnun heitu pottanna okkar hjá NormX taka mið af því og eru djúpir og taka mikið vatn. Í Snorralauginni, sem er vinsælasti potturinn okkar, eru t.d. 66 cm frá sæti og upp á brún. Þá ætti að flæða vel yfir axlir á flestum. Það er því svo sannarlega leikur einn að njóta vellíðunar í pottinum hvort sem sólin skín glatt að sumri til eða kuldi og snjór sé í kortunum.“ Vinsælustu gerðirnar alltaf til Kjartan bendir á að afgreiðslutími NormX pottanna sé skammur þar sem algengustu og vinsælustu gerð- irnar séu alltaf til á lager og aðrar er hægt að framleiða með litlum fyrir- vara. „Við seljum að sama skapi allar lagnir sem til þarf, auk nudd- kerfa og ljósabún- aðar, allt eftir óskum viðskipta- vina. Starfs- menn okkar geta einnig séð um ísetningu og tengingar. Við leggjum metnað okkar í að viðskiptavinir okk- ar séu ánægðir alla leið,“ segir hann. Smáhýsi til sýnis og sölu NormX býður nú einnig upp á 14,9 fer- metra smáhýsi ósam- sett í sjö einingum. Gluggar og hurðir eru þá komnar í einingar og gólf og þakeiningar fulleinangraðar. Lýsing á vönduðu, fulleinangruðu 14,9 fer- metra, tveggja herbergja húsi: Í hvoru herbergi er tvíbreitt rúm og 90 cm koja fyrir ofan það. Dýnur fylgja bæði rúmum og kojum. Rehau-gluggar og hurðir. Vandaður panell festur með ryðfríum skrúf- um. Húsin eru framleidd í mörgum útfærslum. Smáhýsi henta vel við ýmsar að- stæður: Gistihús á tjaldstæðum, gesta- hús við sumarbústaði, sum- arhús, geymsluhús fyrir vél- sleðann og fjórhjólið, sæluhús, skíðakofi, bátaskýli, kvenna- og karlasalerni á ferðamannastaði, garðhús, golfbílahús fyrir tvo bíla og miðasöluhús á íþróttavelli og ferðamannastaði. n NormX Auðbrekku 6 200 Kópavogur Sími: 565-8899 normx@normx.is. Opnunartími: Mánudaga til fimmtudaga 10.00–18.00 Föstudaga 10.00–17.00 NormX

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.