Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2016, Page 29
Vikublað 26.–28. apríl 2016 Lífsstíll 21
(e. doorbitches),
sem eru tveggja
metra dragdrottn-
ingar í korsettum,
sokkaböndum og
á himinháum hæl-
um. Þær hafa vald til
að meina hverjum
sem er inngöngu,
og skeyta engu um
hvort viðkomandi
hafi greitt aðgangs-
eyri. Hver einasti
gestur er grannskoð-
aður fyrir inngöngu,
og þeim sem ekki
uppfylla klæðaregl-
ur er miskunnar-
laust vísað frá. Á
undan mér í röðinni
er kona í sokkabönd-
um, korsetti og látlaus-
um jakka yfir. Dyratík-
urnar horfa hneykslaðar
á hana og senda hana til baka í bún-
ingsklefann til að losa sig við jakk-
ann. Það er ekki laust við að ég finni
fyrir örlitlu
stressi þegar
að mér kemur
í röðinni, en
með því að
flassa sokka-
bandi, tekst
mér að gleðja
tíkurnar nægi-
lega, og þær
hleypa mér
inn.
Nektardans
Við erum mætt snemma. Bart
er búinn að taka ecstasy-töfluna
sem hann smyglaði inn á staðinn
í nærbuxunum sínum. Hann segir
mér að líklega sé meira en helm-
ingur gestanna á ecstasy. Hann
er líka búinn að skipta um föt, er
núna í leðurbuxum og ber að ofan.
Kakíbuxur og flíspeysa bíða í bún-
ingsklefanum. Bart hverfur inn
í mannhafið, og ég sé hann ekki
meir.
Staðurinn er gríðarstór, og skipt
í fjögur rými. Dansgólfin eru fjög-
ur og mismunandi tónlist ómar úr
gríðarstórum hátölurum. Í stærsta
salnum er svið og pallar fyrir gógó-
dansara. Uppi á einum pallanna
er karl sem minnir mig á Bernie
Sanders, virðulegur mjög frá hálsi
og upp, en allsnakinn fyrir neðan
háls fyrir utan járnhring sem hann
hefur smeygt utan um kynfæri sín.
Hann dansar eins og andsetinn á
pallinum.
Siðgæðisdrottningar
Eftir því sem líður á kvöldið eykst
mannfjöldinn, og stemningin í réttu
hlutfalli. Fjölbreytileiki gestanna er
ótrúlegur. Þarna er fólk á öllum aldri,
af öllum stærðum og gerðum. Um
staðinn svífa nokkrar dragdrottn-
ingar með
körfur og
bjóða gestum
smokka, sleipi-
efni og sleikip-
inna. Þær
gegna líka
hlutverki sið-
gæðisvarða og
gæta þess að
það sem fram
fer sé með
samþykki allra
hlutaðeigandi,
hvort sem um
er að ræða
flengingar,
munnmök
eða
hópsam-
farir. Já,
kynlíf var
vissulega
stundað á
staðnum. En það var fjarri því aðal-
atriði fyrir alla gesti kvöldsins. Sumir
kusu að njótast fyrir opnum tjöldum,
aðrir kusu
að horfa
á, og all-
ir virtu-
st virða
regluna
um að
snerta ekki
nema að
undan-
gengnu
tilboði.
Nic og
Benno
Ég spjallaði við nokkra gesti. Til
dæmis hann Nic, 66 ára gamlan
homma, sem er að koma í sjötta
sinn á Wasteland. „Ég er búinn að
vera giftur manninum mínum í níu
ár,“ segir hann mér þar sem við sitj-
um hlið við hlið á pleðurpalli, hann
klæddur í leðurpungbindi, leður-
axlabeisli og með leðuról um háls-
inn. „Áður var ég giftur konu, og á
með henni tvö börn sem eru bæði
fullorðin í dag. En svo kom ég út
úr skápnum fyrir 15 árum og byrj-
aði að lifa í alvöru,“ heldur hann
áfram. „Maðurinn minn fílar ekki
þessi stóru partí, en við stundum
BDSM-kynlíf heima. Ég er vanur að
koma hingað með leikfélaga okkar,“
segir hann og strýkur lærið á grönn-
um latexklæddum manni sem situr
hinum megin við hann. Hann kynn-
ir mig fyrir Benno, 33 ára leikfé-
laga þeirra hjóna. Benno er tvíkyn-
hneigður, listamaður og segist hafa
verið virkur í fetish-senunni í nokk-
ur ár. „Ég elska þetta!“ segir hann og
faðmar mig og Nic af áfergju.
Viltu lesa meira?
Partíið stóð fram á morgun. Blaða-
kona og fylgilið voru komin heim í
næturpítsu um klukkan fimm, um
það leyti sem fuglar í trjám byrjuðu
að syngja. Þessi auðmjúka opna er
fjarri því nógu stór til að rúma frá-
sagnir af öllu sem fyrir augu bar.
Á dv.is verður fjallað ítarlegar
um það sem fyrir augu bar á
Wasteland. Dómínuna sænsku
sem leyfði fimm ungum homm-
um að fullnægja sér með handafli,
fetish-dverginn Phil, sjötuga parið
sem klæddist samstæðum latex-
göllum og pastellitum korsettum
yfir, „hundana“ með leðurgrímurn-
ar sem voru leiddir um skríðandi í
ólum, mannlegu gúmmídúkkuna
og auðvitað þríkantinn þar sem
leður klæddur vöðvakarl, tvær
latexklæddar konur, flenginga-
bekkur og saflát koma við sögu.
Ekki missa af því! n
Tilboð þér að kostnaðarlausu.
Uppl. í síma: 820 8888 eða markmid@markmid-ehf.is
ALHLIÐA
FASTEIGNAVIÐHALD
Smíðavinna · Pípulagnir · Raflagnir
Málningavinna · Múrvinna · Flísalagnir
Hellulagnir · Jarðvinna · Lóðavinna
í alla bíla
Varahlutir
Við einföldum líf bíleigandans
Leður, Latex og Losti í amsterdam
n stærsta blætisball í evrópu fór fram í amsterdam á dögunum n dV var á staðnum og lýsir því sem fyrir augu bar n Flengingar, munnmök og hópkynlíf
Mannfjöldi Þessi mynd er tekin yfir stærsta dansgólfið. Stuðið var svakalegt!
Latexpar Þessi tvö voru svolítið
dæmigerð fyrir D/s par á Wasteland.
D/s stendur fyrir „Dominance/submis-
sion“ eða Drottnun/undirgefni.
Pallíettubrjóst Þessi
hressi og vingjarnlegi
karl var í miklu stuði.