Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Síða 2
Helgarblað 20.–23. maí 20162 Fréttir
Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera skemmtilegur,
jákvæður, harðduglegur, samviskusamur, heiðarlegur,
ábyrgur, úrlausnamiðaður, hafa áhuga á sölumennsku
og markaðsmálum.
Laun eru árangurstengd. Góð laun í boði
fyrir góðan og duglegan sölumann.
Umsóknir sendist á Steinn@dv.is
Atvinna í boði á einum
skemmtilegasta
vinnustað landsins
Á markaðsdeild DV er í boði starf fyrir
góðan og harðduglegan starfsmann.
Formlegur frestur
Thorsil runninn út
Reykjaneshöfn hefur ekki enn borist 140 milljóna greiðsla Thorsil vegna lóðar undir kísilver
R
eykjaneshöfn hefur ekki enn
borist fyrsta greiðsla Thorsil
ehf. á gatnagerðargjöldum,
upp á 140 milljónir króna,
vegna lóðar fyrirtækisins í
Helguvík. Svo gæti farið að stjórn
hafnarinnar, sem stefnir í greiðslu-
fall í kjölfar árangurslausra viðræðna
við kröfuhafa hennar, samþykki að
seinka fyrsta gjalddaga Thorsil í
sjötta sinn. Fyrirtækið átti upphaf-
lega að ganga frá greiðslunni í des-
ember 2014.
Hefur mikil áhrif
Stjórn Reykjaneshafnar samþykkti í
mars síðastliðnum að fresta í fimmta
sinn fyrsta gjalddaga Thorsil, sem vill
reisa kísilmálmverksmiðju í Helgu-
vík, til 15. maí. Halldór Karl Her-
mannsson, hafnarstjóri Reykjanes-
hafnar, staðfestir í samtali við DV að
greiðslan hafi ekki borist. Stjórnend-
ur hafnarinnar munu að hans sögn
funda með forsvarsmönnum Thorsil
á næstu dögum.
„Við ætlum að hitta þá til við-
ræðna og þá munu næstu skref ráð-
ast. Við höfum ekki tekið neina af-
stöðu um framhaldið en mér þætti
ekki ólíklegt að það verði mynd-
að eitthvert svigrúm svo Thorsil geti
hnýtt saman lausa enda. Mér skilst
að þetta sé komið á þann spöl að
menn séu að loka málum og þá þurfa
þeir aukið svigrúm til að klára það,“
segir Halldór og heldur áfram:
„Þetta hefur mikil áhrif á tekju-
hliðina hjá okkur en við ráðum því
miður ekki við gang málsins. Það
hefur ekkert upp á sig að verða
ósáttur og ég er bjartsýnn á að þetta
fari að klárast.“
Skapar óvissu
Reykjaneshöfn hefur verið á
greiðslufresti gagnvart stærstum
hluta kröfuhafa sinna frá október í
fyrra. Ástæðan er sú að höfnin getur
ekki að óbreyttu staðið undir greiðslu
skulda sem námu rétt rúmum átta
milljörðum króna í árslok 2015. Í til-
kynningu hafnarinnar til Kauphall-
ar Íslands þann 14. apríl síðastliðinn
sagði að samkomulag við kröfuhafa,
sem staðið hefur yfir síðastliðna
18 mánuði, hefði ekki náðst. Að
óbreyttu væri fyrirséð að til greiðslu-
falls á skuldbindingum Reykjanes-
hafnar, sem er í eigu Reykjanesbæjar,
kæmi. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar
samþykkti í kjölfarið að tilkynna Eft-
irlitsnefnd með fjármálum sveitarfé-
laga að samningar um skuldalækkun
hjá sveitarfélaginu og höfninni séu
ekki í sjónmáli.
„Eins og hefur komið fram hjá
bæjarstjóranum þá höldum við áfram
að ræða við kröfuhafana í von um að
finna niðurstöðu sem menn geta ver-
ið sáttir við. Það hefur ekki verið tek-
ið nein afstaða til annars en að reyna
það til þrautar,“ segir Halldór.
Hæstiréttur felldi í síðustu viku
úr gildi ákvarðanir Ragnheiðar Elín-
ar Árnadóttur, iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra, og ráðuneytis hennar, um
að Landsneti væri heimilt að taka
land á fimm jörðum á Reykjanesi
eignarnámi. Niðurstaðan þýð-
ir að Landsnet þarf nú að tengja
Suðurnesjalínu 2 með öðrum leið-
um þannig að auka megi raforkuör-
yggi á Suðurnesjum. Thorsil samdi
við Landsnet í október 2015 um raf-
orkuflutninga fyrir væntanlegt kísil-
ver fyrirtækisins í Helguvík.
„Við höfum ekki hitt þá [forsvars-
menn Thorsil] síðan þetta kom upp
þannig að við vitum ekki hvort þetta
hefur áhrif. Auðvitað skapar þetta
ákveðna óvissu en mér finnst nú lík-
legt að Landsnet leysi þessi mál, enda
hefur fyrirtækið tvö ár til þess.“ n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is Lóðargreiðsla
United Silicon
í innheimtu
Líkt og DV greindi frá í febrúar þá hefur
Reykjaneshöfn ekki heldur borist 100
milljóna króna greiðsla sem eigandi
lóðarinnar undir kísilmálmverksmiðju
United Silicon í Helguvík átti að borga
í lok nóvember 2014. Stjórnendum
hafnarinnar og eigendum einkahlutafé-
lagið Geysis Capital greinir á um ákvæði
lóðarsamnings þeirra og eru vanskilin
komin í innheimtu.
Hafnarstjórinn Halldór Karl Hermanns-
son segir að þegar fyrsta greiðsla Thorsil
komi til með að berast Reykjaneshöfn komi
dagsetningar fyrir næstu greiðslur fyrirtæk-
isins vegna lóðarinnar í Helguvík. Frestun
fyrsta gjalddagans seinki því öllu ferlinu.
Helguvík Thorsil vill reisa kísilmálmverksmiðju við Berghólabraut í Helguvík. Fyrirtækið
gerði lóðarleigusamning við Reykjaneshöfn í apríl 2014 en hefur ekki enn greitt fyrstu
greiðslu gatnagerðargjalda. Mynd SiGtryGGur Ari JóHAnnSSon
„Þetta hefur
mikil áhrif á tekju-
hliðina hjá okkur en við
ráðum því miður ekki við
gang málsins.
Höfnin dýpkuð
Sveitarstjórn Norðurþings hefur
samþykkt að verja allt að fimm
milljónum króna til dýpkun-
ar í Kópaskershöfn. DV greindi
frá því á dögunum að ófremdar-
ástand væri við höfnina vegna
sandburðar. Bryggjurnar væri
ekki hægt að nota nema að
hluta og dæmi væru um að bát-
ar kæmust ekki í róðra á fjör-
unni. „Hafnanefnd telur brýnt
að rekstur Kópaskershafnar sé
tryggður eftir bestu getu og farið
verði í dýpkun hafnarinnar eins
fljótt og auðið er“, segir í bókun
en í framhaldinu verður farið í út-
tekt og greiningu á starfsemi og
rekstrarumhverfi hafnarinnar.
Mynd HAukur MArinóSSon
Margrét
Indriðadóttir
látin
Margrét Indriðadóttir, fyrrverandi
fréttastjóri Ríkisútvarpsins, lést á
Líknardeild Landspítalans á mið-
vikudag. Margrét fæddist á Akur-
eyri 1923 og varð fyrst kvenna á
Norðurlöndum til að gegna starfi
fréttastjóra á ríkisfjölmiðli. Hún
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum á Akureyri árið 1943.
Margrét var ráðin á fréttastofu
Útvarps árið 1949 og starfaði þar
til ársins 1986. Eiginmaður Mar-
grétar var Thor Viljhálmsson rit-
höfundur.
S
veitarfélagið Norðurþing var
rekið með 154 milljóna króna
tapi í fyrra. Meirihluti sveit-
arstjórnar segir niðurstöð-
una sýna krefjandi rekstrarumhverfi
en minnihlutinn segir hana valda
miklum vonbrigðum. Sveitarsjóður
Norðurþings hefur verið rekinn með
tapi frá árinu 2008.
Í bókun meirihluta Sjálfstæðis-
flokks og V-lista, sem sveitarstjórn-
arfulltrúar hans lögðu fram á þriðju-
dag, segir að fóðra hafi þurft á liðnum
árum háar skuldir með takmörkuð-
um rekstrartekjum. Ljóst sé að ýms-
ar hagræðingaraðgerðir á árinu 2015
hafi ekki skilað sér í uppgjöri ársins.
Tekið er fram að batnandi rekstr-
arhorfur séu innan sveitarfélagsins
vegna aukinna umsvifa í samfélagi
og atvinnulífi. Þá hafi komið fram
vísbendingar um auknar tekjur og já-
kvæðari íbúðaþróun. Minnihlutinn,
fulltrúar Framsóknarflokks og Sam-
fylkingarinnar, segir í annarri bók-
un af sama fundi það ljóst að rekstur
sveitarfélagsins búi ekki til það fé í
rekstri sem þurfi til að viðhalda sjálf-
bærni. n
haraldur@dv.is
Norðurþing rekið með tapi
Samfelldur taprekstur sveitarsjóðsins frá árinu 2008
Húsavík Sveitarfélagið
Norðurþing var stofnað
árið 2006.