Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Blaðsíða 10
Helgarblað 20.–23. maí 201610 Fréttir
óskað eftir upplýsingum um hvort
Guðni hefði numið fræði reglunn-
ar. Skriflegt svar barst nokkru síðar
þar sem fulltrúi reglunnar sagði að
enginn innan hennar kannaðist við
Guðna Guðnason. Skýringin kom
fram nokkru síðar þegar blaðamað-
ur horfði á viðtal við Guðna á youtu-
be en þar tekur hann fram að hann
hafi numið við leynilega reglu hinnar
gullnu dögunar en ekki þá opinberu.
Í frekari upptalningu um afrek
Guðna kemur fram að hann sé sér-
fræðingur í meðhöndlun fjörutíu
mismunandi bardagavopna og hafi
þjálfað öryggis- og hryðjuverkahópa
lögreglu um allan heim. Þá hafi hann
einnig haldið námskeið fyrir lífverði
hins heilagleika Dalai Lama. Guðni
segir einnig frá þeirri staðreynd að
hann hafi starfað sem áhættuleikari,
meðal annars í mynd Hrafns Gunn-
laugssonar, Hrafninn flýgur. Þá seg-
ist hann hafa verið atvinnumaður í
nútímadansi og haldið sýningar um
alla Evrópu í ellefu ár. Einnig sé hann
afar fær málari, bæði með olíu- og
vatnslitum. Þá má ekki gleyma því
að hann er líka myndhöggvari sem
og þekktur rithöfundur en eftir hann
liggi ritverk sem gefin hafi verið út í
fjölmörgum löndum. Hann var að
eigin sögn mikill vinur David Bowie
og fjölmargar Facebook-færslur hans
fjalla um meinta vináttu þeirra.
Á annarri síðu, í tilefni af fyrir-
lestri á alþjóðlegri ráðstefnu alkem-
ista árið 2008, er Guðni kynntur til
leiks sem Dr. Barón Gudni Gudna-
son von Thoroddsen. Þar er svipuð
afreksskrá útlistuð en að auki segir
þar að Guðni hafi lært í leynilegum
skóla í Salzburg í Austurríki, numið
kristilegt Kabbalah í skóla í Bern og
alkemískt Kabbalah í skóla í Madrid.
Þá hafi hann lært stjörnufræði í Kaíró
í Egyptalandi, alkemísk seiðmanna-
fræði nærri Alexandríu sem og tantra
í sérstökum skóla í Kongó. Þá hafi
hann fundið sér tíma til þess að læra
dulspeki við skóla í Rúmeníu og Sví-
þjóð en einnig viðað að sér óskil-
greindri þekkingu í fornum fræðum í
Tíbet, Indlandi og Japan. Þetta er að-
eins toppurinn á ísjakanum af þeim
meintu námskeiðum og titlum sem
Guðni hefur að eigin sögn viðað að
sér í gegnum árin.
Skilnaður og nýr skóli
Laurie og Guðni ráku RMMS-skól-
ann í rúman áratug allt þar til að leið-
ir þeirra skildu og Guðni tók saman
við fyrrverandi nemanda sinn, hina
japönsku Eiko, sem nú ber einnig
eftirnafn hans. Þau stofnuðu nýj-
an skóla á grunni hins fyrri sem ber
heitið The Modern Mystery School.
Þrátt fyrir fullyrðingar Guðna um að
skólinn sé starfræktur í 48 löndum
þá er greinilegt á námskeiðadagatali
skólans að starfsemi hans fer aðal-
lega fram í Japan, þar sem Guðni og
Eiko búa nú um stundir, og Kanada
en þar virðast öflugir samstarfsmenn
Guðna reka starfsemina áfram. Hins
vegar virðast einnig vera haldin
námskeið í Bandaríkjunum, Bret-
landi, Suður-Afríku og Brasilíu.
Tekinn fyrir í doktorsritgerð
Í september árið 2010 skilaði Ioann-
is Gaitanidis doktorsritgerð sinni sem
hann vann að við Háskólann í Leeds.
Í lauslegri þýðingu ber ritgerðin yfir-
skriftina: „Andleg viðskipti? Gagn-
rýnin úttekt á öldu andlegra með-
ferða í Japan nútímans“ (e. Spiritual
Business? A Critical Analysis of the
Spiritual Therapy Phenomenon
in Contemporary Japan). Þar fjall-
ar doktorsneminn meðal annars
um uppgang Rocky Mountain My-
stery School í Japan, skóla Guðna,
og hvernig viðskiptamódel skólans
er. Að sögn Gaitanidis var umræddur
skóli sá stærsti í Japan af sinni tegund
og mögulega í heiminum. Útibúin í
Japan voru tvö, í Tókíó og Osaka, en
einnig væru starfrækt 11 útibú í öðr-
um löndum, m.a. Bandaríkjunum,
Kanada, Bretlandi, Svíþjóð og Suður-
Afríku. Japan væri hins vegar miðstöð
starfseminnar sem helgaðist einmitt
af því að Guðni hefði skilið við eig-
inkonu sína, Laurie, og kvænst nem-
anda sínum, hinni japönsku Eiko,
sem komið hafði af krafti inn í starfið.
Merki um píramídasvindl
Doktorsritgerð Gaitanidis var byggð
á ítarlegum viðtölum við einstak-
linga sem voru á kafi í hinum and-
lega heimi í Japan, þar á meðal átta
einstaklinga sem sótt höfðu nám-
skeið í skóla Guðna og fram kemur að
mikil vinna hafi verið lögð í að rann-
saka fullyrðingar viðmælenda. Hann
segir þó að erfitt hafi verið að fá upp-
lýsingar hjá nemendum Guðna því
að þeir vantreystu aðila sem hafði
ekki verið innvígður af skólanum.
Í ritgerðinni kemur fram að helgi-
samkomur og fyrirlestrar sem Guðni
héldi væru tilkomumiklar í meira
lagi og um árabil hefði hann ver-
ið fyrirlesari á árlegum samkomum
gullgerðarmanna. Doktorsneminn
fjallar síðan um starfsemi skólans
sem hann segir að beri ýmis merki
um píramídasvindl.
Vefur námskeiða
Þannig rekur Gaitanidis hvernig
hver nemandi skólans þarf að undir-
gangast tveggja daga námskeið þar
sem heimsmynd skólans væri út-
skýrð. Verðið á slíku námskeiði væri
um 60 þúsund krónur. Í framhaldi af
RáðgeRiR
mynd með
HasselHoff
Guðni H. Guðnason hefur mörg
járn í eldinum. Auk reksturs The
Modern Mystery School þá hef-
ur hann gefið út geisladiska með
house-tónlist og spilað á tón-
leikum. Þá hefur hann uppi háar
hugmyndir um að hasla sér völl
í kvikmyndageiranum. Árið 1982
lék Guðni í mynd Hrafns Gunn-
laugssonar, Hrafninn flýgur, og
þannig fékk hann smjörþefinn
af bransanum. Eftir langt hlé
framleiddi hann heimilda-
myndina „3 Magic
Words“ árið 2010
sem og myndina
„Beyond The
Trophy“ þar
sem leikar-
inn Micha-
el Madsen lék
aðalhlutverk-
ið. Þá er Guðni
einnig titlað-
ur framleið-
andi japönsku
myndarinnar
„Story“ eftir leikstjórann Darryl
Wharton-Rigby en sú mynd hefur
verið í vinnslu frá árinu 2014.
Samkvæmt vefsíðunni þekktu,
imdb.com, eru hins vegar stærri
sigrar í farvatninu. Þar kemur
fram að Guðni sé einn af fram-
leiðendum myndarinnar „Amer-
ican Paradise“ sem gengur einnig
undir nafninu „Paradi$e“ og
kemur fram að tökur standi yfir.
Á vefsíðunni kemur fram að að-
alhlutverk myndarinnar sé í
höndum hjartaknúsar-
ans góðkunna, David
Hasselhoff, en að
auki kemur fram að
Guðni muni sjálf-
ur mögulega taka
að sér hlutverk
í myndinni. DV
hafði samband
við almannatengil
Hasselhoff, Judy
Katz, til þess að
spyrjast fyrir um
fyrirætlanirnar. „Ég
var að tala við David
í morgun og hann er
ekki í neinum tökum. Ég
hef aldrei heyrt minnst á
þessa mynd fyrr,“ sagði
Judy. Skráningin á
imdb.com kom
henni mjög
á óvart og
kvaðst hún
síðar ætla
að láta
blaða-
mann vita
hvernig á
því stæði.
„Ég hef
aldrei heyrt
minnst á þessa
mynd fyrr.
Haraldur Dean
Nelson Haraldur
minnist Guðna sem
kjána sem kunni lítið
fyrir sér í bardaga-
listum þrátt fyrir
fullyrðingar um annað.
Tónlistarmaður Guðni hefur gefið
út tónlist í gegnum tíðina, aðallega
raftónlist, meðal annars plötuna
Voight Kampff. Mögulega hefur hann
fengið innblástur fyrir tónlist í krafti
vináttu sinnar við David heitinn Bowie,
en að sögn Guðna voru þeir miklir vinir
á námsárum Guðna í Englandi.
allar gerðir
skreytinga
Kransar, krossar,
hjörtu og kistu-
skreytingar
Smáralind - S: 578 5075 - www.bjarkarblom.iS
Persónuleg og
fagleg þjónust
a