Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Side 11
Helgarblað 20.–23. maí 2016 Fréttir 11
því væru fjölmörg námskeið í boði
og væru nemendur ákaft hvattir til
þess að sækja sér aukna þekkingu
og helst gerast kennarar sjálfir með
réttindi frá Rocky Mountain School
of Mystery. Kennarar þyrftu hins
vegar reglulega að mæta á endur-
menntunarnámskeið í höfuðstöðv-
um skólans auk þess sem hlutdeild
af gjaldi hvers nemanda, sem slík-
ir kennarar tækju að sér, rynni til
eiganda skólans. Ljóst er að tekjur
Guðna af þessu fyrirkomulagi hafa
verið allnokkrar því samkvæmt op-
inberum tölum RMMS-skólans í
byrjun árs 2008 höfðu 4.412 Japanir
undirgengist byrjendanámskeið og
80 kennarar höfðu atvinnu sína af
því að kenna fræðin um allt Japan.
Þá er ótilgreindur sá fjöldi nemenda
og kennara sem starfaði utan Japans.
Virkjaði DNA-ið
Dr. Gaitanidis undirgekkst sjálfur
þrjár meðferðir hjá fyrrverandi
nemendum úr skóla Guðna. Eitt
þeirra bar heitið „DNA-virkjun“
(e. DNA Activation) og er að sögn
Gaitanidis vinsælasta námskeiðið
sem nemendur Guðna og hann
sjálfur bjóða upp á. Námskeiðið
er sagt virkja 22 af 24 þráðum í
DNA. Samkvæmt vísindunum er
DNA-kjarnasýra sem er mynduð
úr tveimur þráðum línulegra
fjölliða af deoxýríbókirnum en
í nýaldarkreðsunum er því hins
vegar haldið fram að þræðirnir
séu margfalt fleiri. Gaitanidis
lýsir því hvernig kona í eins konar
magadansaraklæðum kemur og
rótar í hárinu á honum og gerir ýmiss
konar handahreyfingar yfir höfði
hans með miklum tilþrifum. Síðan
tekur hún sér stöðu fyrir aftan hann
og nuddar niður hrygg hans í um
það bil 10 mínútur. Síðan úðaði hún
ilmvatni yfir hann og leyfði honum
að yfirgefa salarkynnin. Að auki fór
hann í meðferðir í „vampíruheilun“
og „einstakri rósaheilun“, sem að öll
tóku svipaðan tíma. Fyrir tvær fyrstu
meðferðirnar borgaði Gaitanidis
rúmlega 3.000 krónur en tæplega
6.000 krónur fyrir hið síðasta þar
sem rándýrt rósailmvatn var brúkað
við heilunina.
Telur að vinsældirnar hafi minnkað
DV hafði samband við dr. Gaitanidis,
sem er prófessor við Chiba-háskóla
í Japan. Hann kvaðst lítið hafa fylgst
með starfsemi Guðna síðan árið
2010 þegar hann lauk ritgerð sinni.
„Varðandi viðskiptamódel skólans þá
notuðu margir viðmælenda minna
orðið píramídasvindl um starfsem-
ina. Þessir aðilar höfðu tekið þátt
í starfi skólans og höfðu reynslu af
öðrum slíkum skólum í Japan. Það
er hins vegar rétt að taka það fram
að vinsældir slíkra skóla virðast vera
að minnka hratt en ákveðið andlegt
æði gekk yfir Japan fyrir nokkrum
árum, sem má rekja til mikillar fjöl-
miðlaumfjöllunar. Síðan þá hefur
umfjöllun um þessi mál minnkað og
ég er nokkuð viss um að skóli Guðna,
The Modern Mystery School, njóti
ekki sömu vinsælda og áður. Það má
líka rekja til þess að fleiri skólar hafa
tekið tekið til starfa,“ segir Gaitanidis.
30 milljónir fyrir nokkurra
daga námskeið
Hvort færri nemendur sæki The
Modern Mystery School nú en á
árum áður skal ósagt látið en ljóst
er að skólinn er að skila eigendum
sínum góðum tekjum. Á dögun-
um lauk í Tókíó í Japan námskeiði
sem bar yfirskriftina „The Healers
Academy“ og sóttu námskeiðið um
120 einstaklingar. Sé miðað við verð-
lista á heimasíðu The Modern My-
stery School fyrir sambærilegt nám-
skeið í Kanada, sem hefst 13. maí,
þá kosta sætin á bilinu 250–300 þús-
und krónur. Ef við gefum okkur að
sama verð sé á námskeiðinu í Jap-
an má reikna með að hið fimm daga
námskeið hafi skilað tekjum upp á
rúmlega 30 milljónir króna. Þá ber
að geta þess að enginn getur komið
inn af götunni og skráð sig í „Healers
Academy“. Viðkomandi þarf að vera
vígður inn í skólann og hafa tekið
þátt í fjölmörgum öðrum námskeið-
um sem öll kosta sitt. Vefurinn er
æði flókinn en ljóst er að fjárfesting
þeirra sem taka þátt hleypur á millj-
ónum. Allt er þetta gert til þess að
öðlast réttindi frá skólanum til þess
að bjóða upp á stuttar meðferðir, til
dæmis eru einstaklingar að sækjast
eftir réttindum frá skóla Guðna til
þess að bjóða upp á ýmsar heilun-
armeðferðir gegn gjaldi, eins og dr.
Gaitanidis lýsti í ritgerð sinni. Mark-
mið nemenda er að hafa atvinnu
sína af slíkri starfsemi og ná þar með
upp í fjárfestingu sína.
Starfið afar umdeilt
Það er óhætt að fullyrða að starfsemi
Guðna og fylgjenda hans sé umdeild.
Aðeins þarf að leita að nafni hans og
skólans til þess að fá upp fjölmarga
þræði þar sem gagnrýnendur rífa
starfsemina í sig. Einn slíkur aðili
er Travis Bodick frá Seattle sem
sótti námskeið hjá Rocky Mountain
Mystery School: „Ég sótti námskeið
hjá skólanum um langt skeið og get
ekki mælt með því við nokkurn mann.
Ég eyddi stórfé og rak mig alltaf á
fleiri leyndarmál. Kennarar predika
í sífellu að heimurinn sé að breytast
og peningar séu kerfi sem er að verða
úrelt en fyrir það rukka þeir stórfé.
Starfsemi skólans snýst ekki um að
bæta sjálfan þig eða heiminn, heldur
að læra hvernig eigi að rukka annað
fólk fyrir að miðla þekkingunni,“
segir Travis, sem segist hafa lent
í fjárhagsvandræðum út af því að
kennarar pressuðu hann sífellt til
þess að taka fleiri og dýrari námskeið.
Þá hafi hann verið hvattur til þess að
taka lán ef hann sagðist ekki eiga
fyrir tilteknu námskeiði. Einnig rekur
Travis hvernig meirihluti þeirra sem
sæki skólann eigi félagslega erfitt
uppdráttar og séu einmana sálir sem
séu auðveld skotmörk.
Það skal hins vegar tekið fram
að á sömu síðum stíga iðulega fram
nafnlausir einstaklingar sem verja
starfsemi skólans og telja sig og
aðra hafa fengið mikið út úr nám-
inu sem þar fer fram. Þá er bent á
að verðskrá skólans sé yfirleitt mjög
aðgengileg og ekki sé hægt að áfell-
ast skólann fyrir að bjóða upp á
námskeið sem fullorðið fólk er til-
búið að greiða fyrir.
Umsvifamikil viðskipti
Þá er þess ógetið að Guðni hefur
reynt að hasla sér völl á markaði fyr-
ir ýmiss konar heilsuvörur. Á síðunni
OfficeGudnason selur hann vör-
ur frá Alkemistanum og Gullsteini
sem framleiddar eru á Íslandi. Guðni
hafði háar hugmyndir um starfsemi
hérlendis en fyrirtæki í hans eigu,
Ísland, hvar er þín fornaldarfrægð
ehf., fékk úthlutað lóð við Langa-
vatn í Reykhólasveit þar sem ætlun-
in var að byggja upp verksmiðju sem
myndi vinna heilsuvörur úr þörung-
um. Jón Árni Sigurðsson, eigandi
Gullsteins ehf., staðfestir í samtali
við DV að Guðni hafi lagt 6 milljónir
króna í að hjálpa honum með upp-
byggingu lítillar verksmiðju fyrir vör-
ur Gullsteins. Frekari fjárfestingar
eru hins vegar óráðnar og verkefnið
hefur legið í dvala um nokkurt skeið.
Þá herma heimildir DV að hvers
konar vörusala sé stór hluti af starf-
semi Modern Mystery School, hvort
sem um sé að ræða alls kyns vörur
til að nota við heilunarmeðferðir en
einnig sérmerkta einkenningsbún-
inga sem merktir eru sem „stríðs-
menn ljóssins“.
Rétt er að geta þess að Guðni
Guðnason svaraði ekki fyrirspurnum
DV um viðtal í gegnum Facebook-
síðu sína. n
BB | |
BB BB
BB | BLEMISH BAL
M
THE ORIGINAL
Light
Classic
Honey|
www.schrammek.com
The power of medical beauty.
Útsölustaðir
Verði þinn vilji snyrti og nuddstofa Borgartún 3 Reykjavík / Heilsa og útlit Hlíðasmára 17 Kópavogi / Deluxe snyrti og dekurstofa Glæsibæ
Nánari upplýsingar: www.vilja.is
Dregur úr bólgum í
húð og róar húðina
Örvar endurnýjun húðar
Hylur háræðaslit,
stórar húðholur,
roða og litabreytingar
Sótthreinsandi
Gott á sólbruna,
brunasár og
önnur sár
Gott á bólur
Góður hyljari
Hentar öllum
húðgerðum
www.schrammekshop.com
erði þinn vilji snyrti- li lí rs ára i - og dekurstofa Glæsib
Snyrtistofan Tulip Hæðasmára 6 Kópavogi / Pandora snyrti- og fót ðgerðastofa Þangbakka 8-10 Reykjavík
Nánari upplýsingar: www.vilja.is
BB | |
BB BB
BB | BLEMISH BAL
M
THE ORIGINAL
Light
Classic
Honey|
www.schrammek.com
The power of medical beauty.
Útsölustaðir
Verði þinn vilji snyrti og nuddstofa Borgartún 3 Reykjavík / Heilsa og útlit Hlíðasmára 17 Kópavogi / Deluxe snyrti og dekurstofa Glæsibæ
Nánari upplýsingar: www.vilja.is
Dregur úr bólgum í
húð og róar húðina
Örvar endurnýjun húðar
Hylur háræðaslit,
stórar húðholur,
roða og litabreytingar
Sótthreinsandi
Gott á sólbruna,
brunasár og
önnur sár
Gott á bólur
Góður hyljari
Hentar öllum
húðgerðum
www.schrammekshop.com
erði þinn vilji snyrti- li lí rs ára i - og dekurstofa Glæsib
Snyrtistofan Tulip Hæðasmára 6 Kópavogi / Pandora snyrti- og fót ðgerðastofa Þangbakka 8-10 Reykjavík
Nánari upplýsingar: www.vilja.is
B |B |
BB BB
BB | BLEMISH BAL
M
THE ORIGINAL
Light
Classic
Honey|
www.schrammek.com
The power of medical beauty.
Útsölustaðir
Verði þinn vilji snyrti og nuddstofa Borgartún 3 Reykjavík / Heilsa og útlit Hlíðasmára 17 Kópavogi / Deluxe snyrti og dekurstofa Glæsibæ
Nánari upplýsingar: www.vilja.is
Dregur úr bólgum í
húð og róar húðina
Örvar endurnýjun húðar
Hylur háræðaslit,
stórar húðholur,
roða og litabreytingar
Sótthreinsandi
Gott á sólbrun ,
brunasár og
önnur sár
Gott á bólur
Góður hyljari
Hentar öllum
húðgerðum
www.schrammekshop.com
erði þinn vilji snyrti- li lí rs ára i - og dekurstofa Glæsib
Snyrtistofan Tulip Hæðasmára 6 Kópavogi / Pandora snyrti- og fót ðgerðastofa Þangbakka 8-10 Reykjavík
Nánari upplýsingar: www.vilja.is
Útsölustaðir
Verði þinn vilji
Snyrti- og nuddstofa.
Borgartún 3, Reykjavík
Heilsa og útlit
Hlíðarsmára 17, Kópavogi
Deluxe snyrti-
og dekurstofa
Glæsibæ
Snyrtistofan Tulip
Hæðasmára 6, Kópavogi
Pandora snyrti- og
fótaðgerðastofa
Þangbakka 8-10 Reykjavík
Nánari upplýsingar:
www.vilja.is
S
íðastliðinn föstudag fékk
Salome Estevez Garcia
Buabonah að vita að til stæði
að senda hana, eiginmann
hennar og tvö ung börn þeirra úr
landi. Hún segist vera hrædd við að
vera send til baka en að hennar sögn
stendur til að senda fjölskylduna
aftur til Afríku.
Fjölskyldan býr í Reykjanesbæ,
þar sem sonur hennar, þriggja ára,
gengur í skóla. Stúlkan þeirra, eins og
hálfs, er fædd á Íslandi en þau hafa
búið hér í tæp tvö ár.
Sonur þeirra hefur þurft á aðstoð
að halda vegna talörðugleika. Hana
hefur skólinn veitt. Eiginmaður
Salome, sem er frá
Nígeríu, hefur staðið í
hungurverkfalli síðan
á mánudag vegna
yfirvofandi brottvísunar.
Hún segir að erfitt sé að
horfa á eiginmann sinn
í slíkum aðstæðum og er
hrædd um að eitthvað slæmt
muni gerast. „Ég þarf einhvern
til að heyra sögu mína og hlusta á
hana,“ segir Salome, sem er hrædd
um að ef þau snúi aftur til Afríku
verði hún, maður hennar eða börnin
jafnvel drepin. Þá segist Salome
þurfa að taka lyf vegna sykursýki, lyf
sem hún fái ekki í Afríku. Í úrskurði
Útlendingastofnunar, kemur
fram að Salome, ásamt
börnunum tveimur og
eiginmanninum, séu
send heim á grundvelli
laga um útlendinga.
Miðbaugs-Gínea sé
tiltölulega „friðsælt ríki“
þótt mannréttindi væru
þar ekki virt að öllu leyti. „Það
var mat Útlendingastofnunar að
fyrirliggjandi upplýsingar bentu
ekki til annars en að kærandi og
börn hennar gætu búið í Miðbaugs-
Gíneu þótt barnsfaðir hennar væri
ekki sömu trúar og hún.“ Salome er
múslimi en hann er kristinnar trúar.
Send úr landi me tvö ung börn