Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Side 12
Helgarblað 20.–23. maí 201612 Fréttir SJÓNMÆLINGAR LINSUR • GLERAUGU Skólavörðustígur 2 • 101 Reykjavík Sími: 511 2500 • www.gleraugad.is Lífeyrissjóðirnir ósáttir við fjárfestingarfjötra n Gagnrýna frumvarp sem á að takmarka heimildir til fjárfestinga n Vilja hækka úr 15% í 25% L andssamtök lífeyrissjóða (LL) gagnrýna frumvarp sem á að takmarka heimild- ir þeirra til fjárfestinga við 15% í hverju félagi. Telja þau frumvarpið leiða til þess að erfiðara verði að fjármagna verkefni eins og stærri innviðafjárfestingar. Slík þró- un eigi eftir að draga úr umsvifum í hagkerfinu til lengri tíma sem og hagvexti og lífskjörum. Forstjóri verðbréfafyrirtækisins Virðingar tekur undir þetta og segir mikilvægt að frumvarpinu verði breytt. „Þetta er óheppilegt fyrir margra hluta sakir og getur hreinlega kom- ið í veg fyrir fjárfestingar á ýmsum sviðum. Sér í lagi núna þegar líf- eyrissjóðum er að fækka með sam- einingum,“ segir Hannes Frímann Hrólfs son, forstjóri Virðingar, í sam- tali við DV. Vilja hækka í 25% Samkvæmt stjórnarfrumvarpi um breytingu á lögum um skyldu- tryggingu lífeyrisréttinda og starf- semi lífeyrissjóða á að koma í veg fyrir að lífeyrissjóður eigi meira en 15% í hverju hlutafélagi. Einnig er í frumvarpinu tekin af tvímæli um að rýmri mörk til fjárfestinga í samlags- hlutafélögum, sem voru hækkuð úr 15% í 20% á árunum 2009 til 2015, til að liðka fyrir aðkomu sjóðanna að fjármögnun fjárfestingarfélaga, verði framlengd. Landssamtök líf- eyrissjóða gagnrýna þessar ákvarð- anir í umsögn þeirra sem efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis barst síðastliðinn þriðjudag. Í henni er bent á að rýmri mörk hafi stuðlað að fjármögnun ýmissa félaga sem styðja við nýsköpun og sprotastarf- semi sem og lítilla og meðalstórra fyrirtækja. „Að mati LL eru rök til þess að þrengja ekki þessar heimildir, held- ur, ef eitthvað er, að lögfesta rýmri heimildir og gera þær almennar. Það væri ráðlegt að miða við 25% í þeim efnum og láta slíkar heimildir ná til annarra félaga, þó að undan- skildum þeim félögum sem eru skráð á skipulegum verðbréfamark- aði,“ segir í umsögn samtakanna. Þar er einnig varað við því að verði frumvarpið að lögum geti það skert svigrúm sjóðanna til skilvirkr- ar eignastýringar og þannig tak- markað svigrúm til ávöxtunar fjár- muna sjóðfélaga. Bent er á að flest fjárfestingarverkefni lífeyrissjóð- anna undanfarin ár hafi verið fjár- mögnuð með stofnun samlags- hlutafélaga. Ástæðan sé sú að með því móti hafi sjóðirnir getað átt allt að 20% hver í ákveðnu verkefni. „Líklegt er að mörg eða jafnvel flest innlend framtaksfjárfestingar- verkefni undanfarinna ára hefðu ekki orðið að veruleika ef hámark- ið hefði verið 15%. [...] Ef ákvæði um 15% hámarkshlutdeild í samlags- hlutafélögum verður viðvarandi leiðir það til þess að erfitt verð- ur að fjármagna ýmis verkefni og færri verkefni, fyrirtæki eða inn- viðafjárfestingar verða að veruleika. Jafnframt er líklegt að gerðar verði hærri arðsemiskröfur til þeirra ver- kefna sem þó tekst að fjármagna. Þetta gæti leitt til minni umsvifa í hagkerfinu til lengri tíma, minni hagvaxtar og þar af leiðandi lakari lífskjara,“ segir í umsögninni. Frjálsi lífeyrissjóðurinn, Gildi – lífeyrissjóður og sjóðastýringarfyr- irtækið Stefnir, dótturfélag Arion banka, hafa einnig sent inn um- sagnir þar sem fjárfestingarheim- ildir frumvarpsins eru gagnrýndar á sama hátt. Sundabraut og spítalinn Hannes Frímann hélt erindi á morgunverðarfundi Samtaka fjár- málafyrirtækja (SFF) föstudaginn 13. maí þar sem hann benti á að reglan um hámarkshlutdeild lífeyr- issjóða í félögum hafi sífellt meiri áhrif þar sem sjóðunum hafi fækk- að mikið á undanförnum árum. Verði fleiri sjóðir sameinaðir, með- al annars út af hagkvæmniskröfum, muni hún hafa sífellt meiri áhrif. Hlutdeild upp á 15% þýði að sjö lífeyrissjóði hið minnsta þurfi svo þeir geti fjármagnað verkefni ein- ir. Reynslan hafi sýnt að oft þurfti sjö til tíu sjóði til að koma að einu verkefni þrátt fyrir 20% regluna í samlagshlutafélögum. „Fyrir stóru sjóðina, ef þetta eru flóknar fjárfestingar, kann að myndast sú skoðun að þeir hugsa, heyrðu, þetta tekur því ekki. Þetta er of lítið fyrir okkar stóra sjóð og of mikill tilkostnaður að skoða slíka fjárfestingu ef við megum ekki fjár- festa fyrir til að mynda meira en 300 milljónir króna í tveggja milljarða króna verkefni,“ segir Hannes. „Rök fyrir 15% reglunni gætu verið að það sé vilji löggjafans að takmarka áhrif lífeyrissjóða í stærstu hlutafélögum landsins. Hægt er að ná þeim vilja á skyn- samlegri hátt. Til dæmis með því að láta 15% regluna einungis gilda fyrir skráð hlutafélög en 25–50% hlutfall gilda fyrir aðrar fjárfestingar. 25% regla myndi til dæmis þýða að fjórir lífeyrissjóðir gætu fjármagnað verk- efni í sameiningu.“ Aðspurður hvaða innviðafjár- festingar gætu orðið fyrir áhrifum ef frumvarpið verður að lögum nefnir Hannes meðal annars Sundabraut, nýjan Landspítala og Flugstöð Leifs Eiríkssonar. „Öll þau verkefni sem mögulega hafa verið nefnd þar sem þarf að fá einkafjármagn að opinberum fram- kvæmdum. Allt eru þetta dæmi um verkefni sem allir vita að er brýn þörf á að ráðast í og finna fjármagn fyrir.“ n Forstjóri Virðingar Hannes Frímann Hrólfsson. Mynd hag@Vb.iS haraldur guðmundsson haraldur@dv.is Keflavíkurflugvöllur Landssamtök lífeyrissjóða óttast að takmarkanir á getu þeirra til að fjármagna ný verkefni hafi neikvæð áhrif á hagvöxt og innviðafjárfestingar. „Þetta er óheppi- legt fyrir margra hluta sakir og getur hreinlega komið í veg fyrir fjárfestingar á ýmsum sviðum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.