Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Page 15
Helgarblað 20.–23. maí 2016 Umræða Stjórnmál 15
Draumurinn fjaraði út eftir forskrift sögunnar
n Samfylkingin í tilvistarkreppu 16 árum eftir stofnun n Sagan endurtekur sig n Sameiningin er orðin að óeiningu n Næsti formaður mögulega sá síðasti
Í sæng með höfuðand-
stæðingnum
Engu að síður tók Samfylkingin í
fyrsta skipti sæti í ríkisstjórn með
„höfuðandstæðingnum“, Sjálfstæð
isflokknum. Davíð Oddsson hafði
þá ráðið sig í Seðlabankann og
Geir H. Haarde tekinn við valda
taumunum í Valhöll. Kom það á
daginn sem Steingrímur J. hafði
sagt í árdaga Samfylkingarinnar.
„Það eru ýmis teikn á lofti um að
Samfylkingin sé hraðbyri að þró
ast í sama farveg og gamli Alþýðu
flokkurinn, og við vitum hvert
sögulegt hlutskipti hans var í sam
skiptum við Sjálfstæðisflokkinn.
Það var allt annað en að vera höf
uðandstæðingur, heldur var hann
þvert á móti ein meginríkisstjórn
arhækja Sjálfstæðisflokksins.“
Þetta stjórnarsamstarf átti eftir
að verða Samfylkingunni örlagaríkt.
Bankahrunið reið yfir og Samfylk
ingin, sem þá var nánast forystulaus
vegna veikinda formannsins, sleit
samstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn.
Minnihlutastjórn var mynduð fram
að kosningunum vorið 2009 og Jó
hanna Sigurðardóttir var á þessum
tímapunkti eini stjórnmálamaðurinn
sem naut trausts til að leiða flokk
inn. Að loknum kosningum myndaði
hún ríkisstjórn með VG, fyrstu hreinu
vinstri stjórnina á Íslandi.
Óumflýjanlegt kosningatap
Óhætt er að segja að samstarfið við
VG hafi verið þyrnum stráð og má
færa rök fyrir því að það hafi ver
ið upphafið að hnignuninni. Ekki
skal dregið úr því að verkefnin voru
risavaxin. Rétta þurfti af fjárlaga
halla upp á hundruð milljarða,
skuldir almennings höfðu rok
ið upp úr öllu valdi og atvinnulífið
var botnfrosið. En það voru önn
ur mál sem léku vinstri stjórnina
grátt – Ice save, aðildarviðræðurnar
við Evrópusambandið og ný stjórn
arskrá. Ekki bætti úr skák að þing
flokkur VG var afar erfiður í sam
starfi.
Það var óumflýjanlegt að Sam
fylkingin myndi fá á sig högg í þing
kosningunum 2013, enda ríkis
stjórnin orðin afar óvinsæl og fylgið
tekið að reytast mjög af stjórnar
flokkunum. Árni Páll Árnason sigr
aði Guðbjart heitinn Hannesson í
formannskjöri nokkrum mánuð
um fyrir kosningar, en var settur í þá
einkennilegu stöðu að vera formað
ur stjórnarflokks utan ríkisstjórn
ar, þar eð Jóhanna ákvað að vera
forsætisráðherra út kjörtímabilið.
Kosningabarátta Samfylkingarinnar
var almennt talin frekar mislukkuð
en fáa óraði þó fyrir því bylmings
höggi sem kosningaúrslitin voru.
Samfylkingin fékk aðeins 12,9 pró
sent, eitt versta kosningatap á Vest
urlöndum.
Lagði haltur af stað
Formannsferill Árna Páls var þess
vegna strax orðinn fallvaltur þótt
hann hafi aðeins setið nokkra
mánuði í embætti. Hann sætti gagn
rýni flokksmanna sem vildu skella
fylgistapinu á hann og naut þar að
auki takmarkaðs stuðnings inn
an þingflokksins. Það kom berlega
í ljós þegar Sigríður Ingibjörg Inga
dóttir bauð sig fram gegn Árna Páli
á landsfundi, einungis með sólar
hrings fyrirvara. Þetta afhjúpaði
klofning innan raða Samfylkingar
innar og þótti mörgum sem at
laga Sigríðar Ingibjargar hafi ver
ið ómakleg. Sú staðreynd að Árni
Páll sigraði með aðeins einu at
kvæði, sínu eigin, varð síst til að efla
traustið á flokknum. Samfylkingin
hafði fram að þessu verið á þokka
legu, þó langt í frá ásættanlegu, róli
í skoðanakönnunum. Síðan þá hef
ur þróunin aðeins verið á einn veg,
niður á við.
Vegna mikillar undiröldu innan
flokksins var ákveðið að flýta for
mannskjöri og verður það haldið í
sumar. Í kjölfarið skrifaði Árni Páll
flokksmönnum einlægt bréf þar sem
farið var hörðum orðum um ákvarð
anir sem teknar voru í stjórnartíð Jó
hönnu. Þannig hafi flokkurinn „ekki
varið ítrustu hagsmuni þjóðarinn
ar“ í Icesavemálinu, að aðildarum
sóknin að ESB hafi byggst á flóknu
baktjaldasamkomulagi sem aldrei
hélt og að Samfylkingin hafi tek
ið stöðu með fjármálakerfinu gegn
fólkinu í skuldamálum heimilanna.
Þetta bréf vakti mismikla lukku inn
an flokksins, einkum gagnrýni Árna
Páls á meðferð stjórnarskrármálsins
sem hann sjálfur hefur verið sakað
ur um að drepa. Enda kom á daginn
að hann dró formannsframboð sitt
til baka.
„Flokkar okkar klofnuðu og
sundruðust“
Með fullri virðingu fyrir þeim fram
bjóðendum sem sækjast eftir for
mannsembættinu, þá verður að
segja það hreint út að enginn þeirra
er líklegur til að endurheimta fylgi
flokksins. Tveir þeirra koma úr
þingflokki sem hefur verið áberandi
slappur á kjörtímabilinu og sá þriðji
hefur starfað utan flokksins eftir að
hafa fallið út af þingi. Samfylkingin
er í bráðri þörf fyrir blóðgjöf og nýtt
blóð kemur ekki með þessum þrem
ur frambjóðendum. Flokkurinn þarf
á sínum Bernie Sanders eða Jeremy
Corbin að halda, en slíkur maður
virðist ekki vera til. Í besta falli situr
Samfylkingin uppi með John Ed
wards eða Ed Miliband.
Staðan er því þessi: Fylgið er í
sögulegu lágmarki og það er ekkert
í kortunum sem bendir til þess að
það breytist, flokkurinn er forystu
laus og nýr formaður getur í besta
falli vænst þess að skríða aftur upp
í tveggja stafa tölu í fylgi, þjóðin hef
ur engan áhuga á helsta baráttu
máli Samfylkingarinnar frá stofnun
(aðild að ESB) og lúinn þingflokkur
ákallar endurnýjun en undanskilur
sjálfan sig. Næsti formaður flokks
ins verður þess vegna mögulega sá
síðasti. Hvort hann leggi flokkinn
niður sjálfur, eins og Magnús Orri
Schram hefur viðrað, eða það falli í
hlut kjósenda verður að koma í ljós.
Í grein Óskars Guðmundssonar,
sem vitnað var til í upphafi, segir:
„Það þarf ekki að rekja þessa rauna
sögu lengi, flokkar okkar klofnuðu
og sundruðust forðum á um það
bil áratugs fresti. Vinstri hreyfingin
var margklofin frá 1930 og fram á
okkar dag.“ Hver hefði trúað því að
16 árum síðar myndi Samfylkingin
liggja banaleguna? Nú, ef sagan
kennir okkur eitthvað hefðu allir átt
að búast við því. n
Kökulist | Firði Hafnarfirði og Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 í Reykjanesbæ
Skoðaðu tertuúrvalið á heimasíðunni www.kokulist.is
Bakarameistari & Konditormeistari
Allt frá konfektmola upp í fullbúna veislu
Sími: 562 5900
www.fotomax.is
Yfirfærum
yfir 30 gerðir
myndbanda,
slides og
fleira
Björgum
minningum
Persónulegar
gjafir við öll
tækifæri
Allt til að
merkja
vinnustaðinn